Fölsk nóta

Læsileg bók sem skortir til­finn­inga­legt upp­gjör og dýpt.

Fölsk nóta
Bók

Kvöldsónatan

Höfundur Ólafur Jóhann Ólafsson
Bjartur / Veröld
314 blaðsíður
Niðurstaða:

Læsileg bók sem skortir tilfinningalegt uppgjör og dýpt. Afstöðuleysi söguhetjunnar grefur undan sögunni og eftir stendur falskur tónn.

Gefðu umsögn

Það má segja að Ólafur Jóhann Ólafsson sé meist­ari íslenska meló­dram­ans. Það skrifa ég í jákvæð­ustu mein­ingu sem mögu­legt er. Þessi und­ir­grein skáld­skap­ar­ins inni­heldur stór­kost­legar bækur, allt frá Hinum mikla Gatsby yfir í til­finn­inga­hlað­inn skáld­skap Emily Brontë, sem er fræg­ust fyrir að skrifa Fýkur yfir hæðir.

Sjálfur hefur Ólafur Jóhann átt ljóm­andi góðar bækur, síð­ast Snert­ingu. Meló­dra­mað er lunkið form sem miðar að því að kalla fram til­finn­ingar les­and­ans frekar en að skoða heim­inn eða mann­eskj­una út frá dramat­ískum for­sendum með öllum þeim blæ­brigðum sem því fylgir. Það er einnig það list­form sem við neytum hvað oft­ast, allt frá lækna­drama ER yfir í sápu­óp­eru­heim Glæstra vona. Og einmitt þar liggur gildran. Ef það tekst ekki vel til, getur sagan vissu­lega verið áheyri­leg, nán­ast ávana­bind­andi, en svo þvæld að maður bíður þreyttur eftir því að ein­hver vakni óvænt upp úr dái og sprengi tilfnn­inga­hlaðna sög­una í loft …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár