Yngra fólk vill RÚV af auglýsingamarkaði

Yngra fólk er lík­legra til að vera and­vígt veru Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði en eldra fólk hlynnt.

Yngra fólk vill RÚV af auglýsingamarkaði
Almanna­út­varp Mót­mæl­endur við Rík­is­út­varpið. Mynd: Geirix

Aðeins 27% lands­manna eru hlynnt því að Rík­is­út­varpið sé á aug­lýs­inga­mark­aði. Þá eru 38% bein­línis and­víg því. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

Minnstur stuðn­ingur við umsvif RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði eru hjá yngra fólki, en hann eykst með aldri. Þannig eru 37% fólks yfir 60 ára aldri hlynnt aug­lýs­ingum á RÚV en 16% fólks undir þrí­tugu og 21% fólks á fer­tugs­aldri.

Stuðn­ing­fólks Mið­flokks­ins (64%) og Sjálf­stæð­is­flokks­ins (53%) eru mest and­víg, en Fram­sókn­ar­flokks­ins, VG og Sam­fylk­ingar mest hlynnt aug­lýs­ingum á RÚV.

Mestur stuðn­ingur land­fræði­lega er á Aust­ur­landi, þar sem 46% vilja að RÚV sé á aug­lýs­inga­mark­aði, en í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur eru aðeins 21% hlynnt því.

Ísland sker sig úr

Rík­is­út­varpið á Íslandi er, ólíkt í Danmörku, Finn­landi, Noregi, Svíþjóð, Bret­landi og víðar, rekið með aug­lýs­ingafé og selur þar af leið­andi aug­lýs­ingar í sam­keppni við einka­rekna fjöl­miðla, sam­hliða fjár­mögnun frá rík­inu. Alls fékk Rík­is­út­varpið 6,7 millj­arða króna í fjár­fram­lög frá rík­inu sem fengið er með skattfé

Á sama tíma og Alþingi hefur með fjár­lögum hækkað fram­lög til Rík­is­út­varps­ins ár frá ári, voru fram­lög til einka­rek­inna fjöl­miðla í gegnum styrkja­kerfi lækkuð lít­il­lega.

Við­skipta­ráð hefur bent á að starfs­mönnum einka­rek­inna fjöl­miðla hafi fækkað um 69% frá 2008 en fækkun á RÚV á tíma­bil­inu verið 16%, með fjölgun frá árinu 2012.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Áróður gegn RÚV er að skila sér ! Hvað hafa ,,kúk og piss brandarar" SÝNAR mikið vægi í þessu ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár