Kári Stefánsson og Hannes Smárason í viðskipti saman

Lækn­ir­inn og athafna­mað­ur­inn byggðu upp Íslenska erfða­grein­ingu og hafa nú stofnað eigið félag.

Kári Stefánsson
Kári Stef­áns­son Var vikið úr stöðu for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar í fyrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tauga­lækn­ir­inn og fyrr­ver­andi for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, Kári Stef­áns­son, hefur aftur tekið höndum saman með Hannesi Smára­syni athafna­manni, sem starf­aði með honum í upp­bygg­ingu félags­ins sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri áður en hann varð einn af umdeild­ustu fjár­festum Íslands, meðal ann­ars sem stjórn­ar­for­maður FL Group.

Kári og Hannes hafa nú stofnað félagið ESH ehf, með þann til­gang að „þróa lausnir á sviði heil­brigð­is­þjón­ustu og hug­bún­aðar“. Þar með taldar eru fjár­fest­ingar, lána­starf­semi, kaup og rekstur fast­eigna og önnur skyld starf­semi. Frétta­vefur Mannlífs greindi fyrst frá.

Sonur Kára, Ari Kárason, er í vara­stjórn, en Kári sjálfur er stjórn­ar­for­maður með Hannes sem með­stjórn­anda. Hannes og Kári eru helm­ings­eig­endur til jafns.

Hannes var á sínum tíma ráð­gjafi við sölu Íslenskrar erfða­grein­ingar til banda­ríska félags­ins Amgen. Hann hefur búið erlendis síð­ustu ár og er skráður til heim­ilis í Bret­landi. Eins og Stundin greindi frá árið 2018 leiddi Hannes félagið NextCODE, sem vann að þróun á hug­bún­aði …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár