Forsetinn varar við ógn við þýskt lýðræði

Fagna falli Berlín­ar­múrs­ins í skugga vax­andi öfga­hyggju. „Get­ur ver­ið að við höf­um ekki lært af sög­unni?“ spyr Stein­meier, for­seti Þýska­lands.

Forsetinn varar við ógn við þýskt lýðræði
Forseti Þýskalands Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, heldur ræðu í tilefni af falli Berlínarmúrsins 1989. Mynd: AFP

Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, varaði við því í dag að uppgangur öfgahægrimanna og vaxandi gyðingahatur væri vaxandi ógn við lýðræðið í Þýskalandi.

„Eitt hundrað og sjö árum eftir 1918, árið sem fyrsta þýska lýðveldið var stofnað, er frjálslynt lýðræði okkar undir þrýstingi,“ sagði hann í Bellevue-höll, embættisbústað sínum í Berlín.

„Popúlistar og öfgamenn hæðast að stofnunum okkar, eitra opinbera umræðu og notfæra sér ótta,“ bætti hann við.

9. nóvember er táknrænn dagur fyrir Þýskaland – á þessum degi árið 1918 var lýðveldið stofnað, árið 1938 brutust út ofsóknir gegn gyðingum og árið 1989 féll Berlínarmúrinn.

Steinmeier vísaði til nýlegs uppgangs öfgahægrimanna í formi flokksins Alternative für Deutschland (AfD), sem fékk 20,5 prósenta fylgi í þingkosningunum í febrúar síðastliðnum og lenti í öðru sæti, sem neyddi Kristilega demókrata (CDU), sem voru í fyrsta sæti, til að mynda samsteypustjórn með Jafnaðarmönnum sem höfðu beðið lægri hlut. AfD mælist nú með mest fylgi allra flokka, litlu ofar Kristilegum demókrötum.

Nýi kanslarinn, Friedrich Merz, hefur hert orðræðu sína um innflytjendamál frá því hann tók við embætti en núverandi skoðanakannanir sýna AfD jafnan flokki hans að fylgi.

Að mati Steinmeiers „má ekkert pólitískt samstarf eiga sér stað við öfgamenn. Hvorki í ríkisstjórn né á þingi.“

„Gyðingahatur er ekki komið aftur, því það hefur alltaf verið til staðar,“ sagði hann og vísaði til þess að metfjöldi, 6.236 gyðingahatursglæpa, var skráður í Þýskalandi á síðasta ári.

„Getur verið að við höfum ekki lært af sögunni?“ sagði hann.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft......

    Sumt fólk hefur það betra en annað fólk. Það fólk vill kannski frekar kaupa sér einhvern óþarfa en hjálpa fólki sem býr á ruslahaugum útí heimi. Ríka fólkið óttast að fátæka fólkið komi og taki auðinn og hagi sér eins og það gerði. Með öðrum orðum það óttast sig sjálft. Í þessu felst ótti um misskiptingu en einnig rasísk hugsun um að aðkomufólk megi ekki efnast í sama mæli og heimamenn eða meira en það sjálft. Svo er þekkt að þeir sem aðhyllast hægri stefnu - sem felur yfirleitt í sér misskiptingu, eru yfirleitt andsnúnari innflytjendum. Kannski er það vegna þess að þeir óttast sjálfir mest að verða undir. Auk þess tel ég þjóðrembu, önnur trúarbrögð og "yfirisma" geta stuðlað að andúð á innflytjendum og skortur á kærleika?
    3
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Tilgáta um brjálsemi þjóðarleiðtoga

    Þjóðarleiðtogar eru oft miklir egóistar og eru í stöðugri keppni um að vera fremstir. það er þessi keppni um að vera fremstir sem veldur brjálsemi þeirra - það kemst ekkert annað að. Sumir þeirra vita ekki afhverju þeir vilja vera þjóðarleiðtogar, þeir vita það eitt að þeir vilja vera fremstir.

    Þjóðarleiðtogar eiga það til að fangelsa eða ryðja úr vegi stjórnarandstæðingum og þeim sem gætu átt til að gagnrýna þá, dómurum og blaðamönnum og stundum fara þeir í stríð. Ástæðan fyrir þessu gæti verið að þeir eru að verja þá hugmynd um sjálfa sig, um að vera fremstir og til að þessi sjálfsmynd bíði ekki hnekki, gera þeir hvað sem er. Þeir eru í raun hræddir menn að verja hugmyndina um sjálfa sig sem mikilmenni og númer eitt og ryðja þeim úr vegi sem gætu raskað þeirri hugmynd.

    Rótin að þessu ástandi gæti verið lífsskoðun eins og sú, að láta engan vaða yfir sig. Í slíku lífsviðhorfi felst átök, jafnvel átakasækni (til að sanna sig) og ákveðin mikilmennskukennd, því ef enginn getur vaðið yfir viðkomandi þá hlýtur hann að vera númer eitt?

    Mótefnið við þessu kann að vera "jafnaðarmennska", tilfinningaleg meðvitund, kærleikur, átakafælni og muna að fæstir eru fullkomnir?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ásgeir Brynjar Torfason
3
Pistill

Ásgeir Brynjar Torfason

Und­ir pils­faldi Banda­ríkj­anna

Hvernig lít­ur það út að hafa hafn­að að­ild­ar­við­ræð­um ut­an frá? Með því að úti­loka þann kost, hvernig bregð­umst við hér þá við breytt­um heimi? Ein leið er að taka landa­korti banda­ríska for­set­ans, sem sett hef­ur fána­lit­ina á yf­ir­ráða­svæð­ið sitt, sem gríni. Hvorki Kan­ada né Mexí­kó taka því gríni. Eyj­ar­skeggj­ar á Jamaíku og Kúbu eru lík­leg­ast hrædd­ir. Kannski er það kost­ur að vera bara kok­hraust.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.
Borgþór Arngrímsson
5
PistillEitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­ur og lé­leg laun hafa orð­ið til þess að færri sækj­ast eft­ir her­mennsk­unni. Ný­lega varð danski flot­inn að af­lýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skip­ið. Slík­ar frétt­ir skaða ímynd flot­ans og geta ver­ið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
4
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár