Endurheimtu Bakkavör eftir hrun og fá tugi milljarða við samruna

Verði af sam­runa Bakka­varar við Greencore fá bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir and­virði 40 millj­arða króna greiðslu og 100 millj­arða hlut í sam­ein­uðu fyr­ir­tæki. Eftir að hafa misst Bakkavör í hrun­inu eign­uð­ust þeir fyr­ir­tækið aftur frá líf­eyr­is­sjóð­unum og Arion banka fyrir brot af þess­ari upp­hæð.

Endurheimtu Bakkavör eftir hrun og fá tugi milljarða við samruna
Bakka­var­ar­bræður Ágúst og Lýður end­ur­heimtu fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Bakkavör eftir að hafa misst það í hrun­inu en eign­ast nú 44% í sam­ein­uðu fyr­ir­tæki við Greencore-sam­run­ann. Mynd: Samsett / Heimildin

Sam­keppn­is­eft­ir­lit Bret­lands hefur í grund­vall­ar­at­riðum sam­þykkt yfir­töku írska mat­væl­aris­ans Greencore Group á Bakkavör.

Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, gjarnan kall­aðir Bakka­var­ar­bræður, eiga 50,2 pró­senta hlut í Bakkavör ásamt við­skipta­fé­laga sínum, Sigurði Val­týs­syni.

Hlut­hafar Bakka­varar fá greidd 85 pens á hlut og fá þre­menn­ing­arnir því rúm­lega 246 millj­ónir pund greidd út gangi salan eftir, eða um 40 millj­arða króna.

Þá eign­ast hluhafar Bakka­varar 0,604 hluti í Greencore fyrir hvern hlut í Bakkavör með sam­run­anum. Eign­ar­hlutur bræðr­anna og Sigurðar í sam­ein­uðu félagi verður um 22 pró­sent og virði tæp­lega 582 millj­óna punda að loknum sam­runa, eða tæp­lega 100 millj­arða króna.

Til sam­an­burðar var 50,2 pró­sent hlutur í Bakkavör árið 2016, árið þegar bræð­urnir eign­uð­ust fyr­ir­tækið aftur í heild sinni, met­inn á tæp­lega 30 millj­arða króna.

Saga þess hvernig bræð­urnir eign­uð­ust Bakkavör á ný eftir að hafa misst það úr hendi sér til kröfu­hafa og íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna eftir banka­hrun sýnir hversu mikið …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár