Krefjast aðgerða vegna „ólöglegra viðskiptahátta fyrirtækja“

Neyt­enda­sam­tökin og Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda vilja að gripið verði til aðgerða til varnar neyt­endum vegna inn­heimtu­að­ferða bíla­stæða­fyr­ir­tækja. Þau setja meðal ann­ars út á inn­heimtu hárra van­greiðslu­krafa og upp­lýs­inga­gjöf og gera kröfu um end­ur­greiðslu þjón­ustu­gjalda sem hafi verið umfram greidd.

Krefjast aðgerða vegna „ólöglegra viðskiptahátta fyrirtækja“

Neyt­enda­sam­tökin og Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) segja að dag­lega ber­ist þeim fjöldi kvart­ana vegna ósann­gjarnra við­skipta­skil­mála bíla­stæða­fyr­ir­tækja, rugl­ings­hættu milli gjald­skyldra bíla­stæða, hárra van­greiðslu­gjalda, órök­studdra greiðslu­krafna, flækju­stigi, skorti á merk­ingum, skorti á upp­lýs­ingum, brotum á rétt­indum P-kort­hafa og skorti á val­mögu­leikum til að borga fyrir afnot bíla­stæða.

Biðla sam­tökin bæði til rekstr­ar­að­ila bíla­stæða og stjórn­valda að grípa til aðgerða til varnar neyt­endum vegna þessa.

Fyrr á þessu ári beitti Neyt­enda­stofa fjögur fyr­ir­tæki, sem sinna bíla­stæða­þjón­ustu við gjald­skyld bíla­stæði, sektum vegna ólög­legra við­skipta­hátta og upp­lýs­inga­gjafar.

„Í ljósi ólög­legra við­skipta­hátta fyr­ir­tækja á þessu sviði, sem og ófull­nægj­andi samn­ings­bund­inna heim­ilda til inn­heimtu van­greiðslu­gjalda, er gerð krafa um að þjón­ustu­gjöld sem greidd hafa verið umfram skyldu verði end­ur­greidd til neyt­enda,“ segir í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum tveimur.

Í andstöðu við góða viðskiptavenju

Neyt­enda­sam­tökin og FÍB biðja bíla­stæða­fyr­ir­tækin að laga upp­lýs­inga­gjöf sína, breyta kröfum þegar greitt er fyrir rangt stæði og hætta að krefja hand­hafa P-korta um van­greiðslur.

Rekstr­ar­að­ila biðja sam­tökin að haga inn­heimtu van­greiðslu­gjalda líkt og lög kveði á um – það er að senda fólki skrif­lega inn­heimtu­við­vörum og veita 10 daga frest til að greiða og upp­lýsa um and­mæla­rétt. Hámarks kostn­aður slíkrar við­vör­unar má, að þeirra sögn, vera 1.178 krónur.

„Sá fyr­ir­sláttur bíla­stæða­fyr­ir­tækja að þau ann­ist inn­heimt­una fyrir sig sjálf á grund­velli leigu­samn­inga og séu því ekki bundin af inn­heimtu­lögum er ósann­fær­andi,“ segir í til­kynn­ingu FÍB og Neyt­enda­sam­tak­anna. 

Þá segja þau birt­ingu greiðslu­kröfu í heima­banka bíl­eig­enda án skýr­inga vera með öllu ófull­nægj­andi „Bíla­stæða­fyr­ir­tæki getur ekki haft rétt­mætar vænt­ingar um að fá slíka kröfu greidda.“

Samtökin segja það vera í and­stöðu við góða við­skipta­venju og í trássi við samn­inga­lög að van­greiðslu­kröfur séu víða tals­vert hærri en raun­kostn­aður við inn­heimtu. Raunar mætti efast um þörf­ina fyrir van­greiðslu­kröfu í ljósi þess að eitt fyr­ir­tæki, Checkit.is, inn­heimti ekki slík gjöld á ýmsum ferða­manna­stöðum.

Neyt­enda­sam­tökin og FÍB vekja máls á því að dæmi séu um að sveit­ar­fé­lög hafi fram­selt heim­ild sína til inn­heimtu stöðu­gjalda til einka­að­ila. Samkvæmt umferð­ar­lögum má þó aðeins inn­heimta slík gjöld til að standa straum af rekstri og þjón­ustu á bíla­stæði. 

Segja sam­tökin að til­efni sé til að skoða hvort and­virði gjald­anna sé ráð­stafað sam­kvæmt laga­bók­stafnum. 

Stjórnvöld eigi að grípa inn í

Samtökin biðja einnig stjórn­völd um að grípa til aðgerða í mála­flokknum. Til dæmis með því að taka af skarið um að inn­heimta þjón­ustu­gjalda fyrir bíla­stæði lúti inn­heimtu­lögum, þar á meðal um hámarks­fjár­hæð inn­heimtu­kostn­aðar um van­greiðslu­gjöld. 

Þá vilja þau að stjórn­völd geri þá kröfu að helstu greiðslu­öpp fyrir bíla­stæði gildi á öllum bíla­stæðum. „Algeng ástæða van­greiðslu er þegar aðeins er hægt að borga fyrir bíla­stæði í gegnum eitt greiðslu­app og not­andi er ekki með greiðslu­kort tengt við það app. Víða er aðeins hægt að nota eitt þess­ara appa. Fáum myndi detta í hug að leyfa aðeins eitt ákveðið greiðslu­kort í almennum raf­rænum við­skiptum.“

Samtökin vilja að til að gjald­taka telj­ist heimil á bíla­stæðum í einka­eigu þurfi henni að fylgja deiliskipu­lags­breyt­ing. Þá vilja þau að skil­yrði van­greiðslu­kröfu verði að koma fyrir miða þess efnis fyrir á áber­andi hátt á fram­rúðu við­kom­andi bíls. 

Neyt­enda­sam­tökin og FÍB vilja einnig að stjórn­völd hafi frum­kvæði að því að sett verði upp sam­eig­in­leg vef­síða bíla­stæða­fyr­ir­tækja og bíla­stæða­sjóða sveit­ar­fé­laga með ítar­legum upp­lýs­ingum um gjald­skyld bíla­stæði. „Á vef­síð­unni verði með ein­földum hætti hægt að mót­mæla greiðslu­kröfu frá hvaða bíla­stæða­fyr­ir­tæki eða bíla­stæða­sjóði sem er. Enn­fremur verði þar upp­lýs­ingar um kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa.

Mikil aukning á stuttum tíma

Heim­ildin hefur fjallað ítar­lega um þá miklu aukn­ingu sem hefur orðið á gjald­töku á bíla­stæðum á ferða­manna­stöðum um allt land. En nokkuð tak­markað reglu­verk virð­ist vera í kringum starf­semi þeirra. 

Eitt stærsta fyr­ir­tækið, Parka, hefur verið harð­lega gagn­rýnt af FÍB. Þá helst vegna þess að álagn­ing á van­rækslu­gjald vegna ógreiddra bíla­stæða­gjalda eru að minnsta kosti 250 pró­sent hærri en upp­haf­lega gjaldið. Algeng­asta verðið fyrir að leggja bíl við nátt­úruperlur lands­ins er um þús­und krónur, en van­rækslu­gjaldið getur verið allt að þrefalt það, eða um 3.500 krónur. Hæstu dæmin sem fjallað hefur verið um eru van­rækslu­gjöld upp á 4.500 krónur.

Neyt­enda­stofa greip til þess fyrr á þessu ári að sekta fyr­ir­tæki sem sinna gjald­töku á bíla­stæðum fyrir ólög­lega við­skipta­hætti og upp­lýs­inga­gjöf. Hæstu sekt­ina fékk Parka, eða milljón krónur, en önnur sektuð fyr­ir­tæki voru Isavia, EasyPark og Green Parking. 

Í til­felli Parka ályktaði eft­ir­lits­stofn­unin að fyr­ir­tækið hefði brotið gegn reglu­gerð um við­skipta­hætti „sem telj­ast undir öllum kring­um­stæðum órétt­mætir með því að upp­lýsa neyt­endur rang­lega um að þjón­usta þess sé end­ur­gjalds­laus.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    I lögum er það skilgreint að aðeins sveitarfélög geti lagt gjald á vangreidd stöðugjöld og það það þrátt fyrir að í lögum er að seðlabankinn segir til um hæstu lögleifðu dráttarvexti... ástæðan er sú að verið er að fyrirbyggja okurvexti og aukavexti undir nafngiftinni vanskilagjöld eða sektir. . Þessar sektir því þetta eru sektir eru stórfurðulegar því ekkert mál er að hafa hæstu greiðslu 5000 í stað fyrsta tímann á 230 td og gefa afslátt ef greitt er strax á 5000 kallinum. Auðvitað er þetta fjármálamisferli undir þykjustunafni... ekki til neitt sem heitir vangreiðslugjöld... og gott ef ekki sveitarfélögunum er bannað að nota greiðsluþjónstur nema þær uppfylli sérstök skilyrði. 86 grein nánar til tekið. Síendurtekin lögbrot og þjófnaður vegna ófullnægjandi tölvukerfa hefur ekki verið lagfært hvað þá ofteknar greiðslur skilað og bílastæðasjóður er þar ekki undanskilinn. Meðan mekanísku mælarnir voru við gjaldstæðin var þetta vandamál ekki til staðar en með tölvuvæðingunni hefur græðgjin heltekið mannskapinn. 2 milljónir túrista koma hingað á hverju ári og leigja bílaleigubíla, þeir vita ekkert hvað Psvæðin ná yfir enda engvar merkingar og fjöldi þeirra hefur greitt í bílastæðamælana... þegar þeir eru ekki bilaðir... júst í case... þegar þeir jafnvel bregða sér í næstu búð.... en innheimt fé er eyrnarmerkt stöðumælavörðum og viðhaldi bílastæða fyrst og fremst ...ekki einhverj sjóð þar sem sveitarfélögin leita sér aðfanga við gæluverkefni. Svo stæðamerking ætti að vera forgangsverkefni... því fyrir tölvuvæðinguna voru öll stæði sveitarfélagnna merkt.... með stöðumæli. Og fyrir þá sem ekki vita þá núlstillist mælingin ef þú framlengir stæðið... þ.e.a.s. þú borgar frá 8 til 3 en ákveður klukkan 12 að framlengja til 6... og hluti fyrri greiðslunnar hverfur... í vasann á bílastæðasjóð. Og þetta hefur viðgengist í nokkur ár og þeir vita af þessu... viðbragðið þegar ég benti þeim á þetta fyrir 2 árum... var.....hroki og hótanir. Erfitt að segja hversu miklu bílastæðasjóður og sveitarfélög hafa stolið af íslendinum og túristum en það hleypur á milljónum ef ekki tugmilljónum ... á ári. En líklega eftir að ég hafði sambandi við innviðaráðuneytið þá hafa menn farið í lagfæringar á tölvukerfin... 10 árum of seint.

    Allavega er ljóst að enginn hefur fengið endurgreitt haldlagðar ofgreiðslur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár