Breskur álitsgjafi handtekinn í Bandaríkjunum eftir gagnrýni á þjóðarmorð

Lög­reglu­sveitin ICE hand­tók álits­gjafann Sami Hamdi, sem hefur gagn­rýnt þjóð­ar­morð Ísraels í Palest­ínu. Trump-stjórnin gengur lengra í að vísa fólki úr landi fyrir tján­ingu gegn vald­beit­ingu.

Breskur álitsgjafi handtekinn í Bandaríkjunum eftir gagnrýni á þjóðarmorð
Sami Hamdi Rík­is­stjórn Donalds Trump telur hann ógna þjóðar­ör­yggi með tján­ingu sinni. Mynd: CAIR

Banda­ríska inn­flytj­enda­lög­reglan, ICE, hefur hand­tekið  breska álits­gjafann Sami Hamdi, ógilt vega­bréfs­á­ritun hans og ætlar að vísa honum úr landi í stað þess að leyfa honum að ljúka fyr­ir­hug­aðri fyr­ir­lestr­a­röð í Banda­ríkj­unum, að sögn emb­ætt­is­manns í Heima­varn­ar­ráðu­neyt­inu.

Tricia McLaughlin, upp­lýs­inga­full­trúi Heima­varna­ráðu­neyt­is­ins, sagði á sam­fé­lags­miðl­inum X að ICE hefði Hamdi í haldi. „Með Trump sem for­seta verður þeim sem styðja hryðju­verk og grafa undan þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna ekki leyft að vinna hér eða heim­sækja þetta land,” skrif­aði hún.

Hamdi flutti ræðu á hátíð­ar­kvöldi Samtaka um sam­band Banda­ríkj­anna og íslams (Council on American-Islamic Relations, CAIR) í Sacramento í Kali­forníu á laug­ar­dag og átti að tala á öðrum við­burði sam­tak­anna í Flórída í gær. Samtökin, sem eru stærstu hags­muna- og rétt­inda­sam­tök múslima í Banda­ríkj­unum, sögðu í yfir­lýs­ingu að hann hefði verið hand­tek­inn á alþjóða­flug­vell­inum í San Francisco vegna gagn­rýni hans á þjóð­ar­morð Ísraels í Palest­ínu.

Íhalds­samir áhrifa­menn höfðu hvatt stjórn Trumps til að vísa Hamdi úr landi. Hamdi hefur komið fram sem grein­andi og álits­gjafi á breskum sjón­varps­stöðvum og gagn­rýnt harð­lega þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum af hálfu Ísraels. CAIR krafð­ist lausnar hans á sunnu­dag og sak­aði stjórn Trumps um að hafa hand­tekið hann vegna gagn­rýni hans á rík­is­stjórn Ísraels.

Frétta­stofa Reuters náði ekki tali af Hamdi. Edward Ahmed Mitchell, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri CAIR, sagði að Hamdi hefði áður hafnað því að styðja íslamska víga­menn og að lög­fræð­ingar sam­tak­anna hefðu ekki náð í hann síð­degis á sunnu­dag.

„Að ræna áber­andi breskum múslim­skum blaða­manni og stjórn­mála­á­lits­gjafa í fyr­ir­lestra­ferð um Banda­ríkin vegna þess að hann þorði að gagn­rýna þjóð­ar­morð rík­is­stjórnar Ísraels er aug­ljós árás á tján­ing­ar­frelsi,” sagði CAIR í yfir­lýs­ingu.

Íhalds­konan Laura Loomer lýsti því á sunnu­dag yfir að hún ætti heið­ur­inn af hand­töku Hamdi. Loomer, sem er náin Trump Banda­ríkja­for­seta, þakk­aði utan­rík­is­ráð­herr­anum Marco Rubio fyrir hand­tök­una og sagð­ist hafa til­kynnt honum um ógn af „íslamskri inn­rás“.

Trump-stjórnin hefur víkkað út skil­grein­ingar á hryðju­verka­mönnum og heitið að leita bæði uppi and­fas­ista, merkta Antifa, og meint stuðn­ings­fólk þeirra. Auk þess hafa meintir fíkni­efna­smygl­arar verið skil­greindir sem óvina­her­menn og lýstir rétt­dræpir af Banda­ríkja­for­seta, sem hefur staðið að aflífun á um 40 þeirra með loft­árásum á Karí­ba­hafi og Kyrra­hafi síð­ustu vikur.

Síðan í jan­úar hefur stjórn Trumps hrundið af stað umfangs­miklum aðgerðum gegn inn­flytj­endum, þar á meðal auk­inni skimun á sam­fé­lags­miðlum, ógild­ingu vega­bréfs­á­rit­ana hjá fólki sem hún segir hafa stutt morðið á íhalds­sama aktí­vist­anum Charlie Kirk, og brott­vís­unum nem­enda á vega­bréfs­á­rit­unum og græn­korts­hafa sem hafa lýst stuðn­ingi við Palest­ínu­menn og gagn­rýnt fram­göngu Ísraels í stríð­inu á Gaza.

Herför Ísraels á Gaza, sem hófst í kjöl­far árásar palest­ínska víga­hreyf­ing­ar­innar Hamas á suð­ur­hluta Ísraels 7. októ­ber 2023, hefur kostað tug­þús­undir Palest­ínu­manna lífið og lagt stór svæði í rúst. Ísrael segir að her­förin bein­ist gegn Hamas og að reynt sé að forð­ast mann­fall óbreyttra borg­ara, en rann­sókn­ar­nefnd SÞ taldi í síð­asta mán­uði að Ísrael hefði framið þjóð­ar­morð á Gaza. Ísrael hafnar þeirri ásökun.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög áleitin spurning er hvort fasismi sé að festa rætur í BNA sem lengi hafa verið fyrirmyndaríki við að viðurkenna mannréttindi og lýðræði.
    Með Donald Trump virðist vera komin önnur sjónarmið en áður tíðkuðust.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár