Bandaríkjaforseti byggir upp skuggalega og ofbeldisfulla alríkislögreglu

Ný lög­reglu­sveit, ICE, sem beint er gegn inn­flytj­endum, nýtur nafn­leysis og eft­ir­lits­leysis. Óttast er að henni geti verið beitt gegn óbreyttum borg­urum í Banda­ríkj­unum.

Bandaríkjaforseti byggir upp skuggalega og ofbeldisfulla alríkislögreglu
ICE í New York Alrík­is­full­trúar vakta ganga inn­flytj­enda­dóm­stóls­ins í Jacob K. Javitz-alrík­is­bygg­ing­unni þann 22. októ­ber 2025 í New York-borg. Full­trúar inn­flytj­enda- og tolla­eft­ir­lits­ins (ICE) og ann­arra alrík­is­stofn­ana halda áfram að hand­taka fólk í inn­flytj­enda­dóm­stólum þegar það mætir til rétt­ar­halda, þrátt fyrir lokun rík­is­stofn­ana sem staðið hefur yfir í tutt­ugu og tvo daga. Alrík­is­full­trúar fram­kvæmdu á þriðju­dag sam­eig­in­lega aðgerð ICE í Kína­hverf­inu sem emb­ætt­is­menn segja að hafi beinst að „glæp­sam­legri starf­semi sem teng­ist sölu á fölsuðum vörum“. Mynd: AFP

Rík­is­stjórn Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta hefur síð­ustu miss­eri rifið niður eft­ir­lit og mann­rétt­inda­vernd innan Heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins (DHS) og eflt Inn­flytj­enda- og tolla­eft­ir­litið (ICE) með auknu fjár­magni og víð­tækum heim­ildum. Þetta kemur fram í ítar­legri rann­sókn óhagn­að­ar­drifna banda­rísku frétta­stof­unnar ProPublica.

Samkvæmt heim­ildum og gögnum sem ProPublica byggir á er hvatt til nafn­leysis og grímunotk­unar innan ICE. Lög­fræði­legar til­raunir til að stöðva hand­tökur og aðferðir ICE hafi að mestu mis­tek­ist.

Í umfjöllun ProPublica segja íbúar í Santa Ana í Kali­forníu frá því hvernig grímu­klæddir menn í ómerktum bílum hefðu ráð­ist á fólk og ekið burt. „Honum er að blæða,“ sagði einn hringj­andi í neyð­ar­línu. Annar spurði: „Hvaða lög­regla keyrir um án núm­eraplatna?“ og þriðji spurði: „Eigum við bara að hlaupa í burtu?“

Borg­ar­stjór­inn Valerie Amezcua segir borg­ar­yf­ir­völd hafa litla mögu­leika til að setja hömlur á alrík­is­full­trúa, þar sem sú skrif­stofa innan Heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins sem tók við kvört­unum hafi verið lögð niður. Það sem eftir …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár