„Jákvæð afkomuviðvörun“ hjá Síldarvinnslunni

Hagnaður stefnir í að vera tveimur og hálfum millj­arði meiri en spáð var. Áður hafði félagið varað við áhrifum hækk­unar veiði­gjalds.

Gunnþór Ingvason
Gunnþór Ingvason For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar boðar meiri hagnað en áður. Mynd: Skjáskot/Síldarvinnslan

Sjáv­ar­út­vegs­fé­lagið Síld­ar­vinnslan, sem skráð er í kaup­höll­ina, hefur gefið frá sér „jákvæða afkomu­við­vörun“ vegna afkomu umfram vænt­ingar.

Í við­vör­un­inni er boðað að hagn­aður verði um 2,4 millj­örðum meiri en áður var spáð, eða á bil­inu 11,9 til 12,8 millj­arðar króna, en ekki 9,6 til 10,4 millj­arðar.

„Við vinnu stjórn­enda á 9 mán­aða upp­gjöri félags­ins hefur komið í ljós að hagn­aður verði nokkuð hærri en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Helstu ástæður má rekja til betri afurða­verða en áætl­anir gerðu ráð fyrir auk þess sem rekst­ur­inn hefur almennt gengið vel á árinu og veiðar verið að hluta umfram áætl­anir,“ segir í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar.

Gunnþór Ingvason, for­stjóri félags­ins, lýsti því í vor að Síld­ar­vinnslan hefði hagn­ast um 70 millj­arða króna frá árinu 2014, á sama tíma og hann var­aði við áhrifum veiði­gjalda.

„Það er háð mikil orra­hríð gegn sjáv­ar­út­vegi nú um stundir. Ein­hverra hluta vegna kjósa ráða­menn að fara fram með van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir sem ekki þola skoðun, í stað rök­stuðn­ings og gagna. Farið er fram með rangar stað­hæf­ingar um afkomu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og fjár­fest­ingar þeirra gerðar tor­tryggi­legar.“

Þá sagði hann að Síld­ar­vinnslan hefði fjár­fest fyrir 80 millj­arða króna. Þar af 32 millj­arða króna í afla­heim­ildum og sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum, fyrir 14,4 millj­arða í fisk­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish á Vest­fjörðum, 19 millj­arða í skipum og 14,6 millj­arða í fast­eignum og tækja­bún­aði.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Það er lítið eftir til að greiða veiðigjöld eftr að hagnaði hefur verið útdeilt ei eigenda. Enda „kjósa ráðamenn að fara fram með vanhugsaðar og illa útfærðar tillögur um skattahækkanir sem ekki þola skoðun, í stað rökstuðnings og gagna.“
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Furðulegt að maðurinn skuli viðurkenna hagnaðinn hjá fyrirtækinu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár