Trump hittir Pútín aftur í Búdapest

Bandaríkja­forseti bakkar með að afhenda Úkraínu Tomahawk-stýri­flaugar og boðar fund með Vladimir Pútín í boði Viktors Orban, forsætis­ráðherra Ungverja­lands.

Donald Trump í dag
Donald Trump í dag For­set­inn virð­ist draga í land með að afhenda Úkraínu tomahawk-stýriflaugar. Mynd: AFP

Forseti Banda­ríkjanna, Donald Trump, sagði í dag að hann ætti von á að fundur með Vladímír Pútín, forseta Rússlands, færi fram í ungversku höfuð­borginni Búdapest innan tveggja vikna, í boði Viktors Orban forsætis­ráðherra.

„Ég mun líklega hitta hann á næstu tveimur vikum,“ sagði Trump við blaðamenn á forseta­skrif­stofunni í Hvíta húsinu og bætti við að utan­ríkis­ráðherrann Marco Rubio myndi fyrst eiga viðræður við rússneska embættis­menn.

Trump dró sömuleiðis í land með hugmyndir um að veita Úkraínu Tomahawk-stýri­flaugar, sem hefðu gert úkraínska hernum kleift að sækja lengra inn í Rússland til að rjúfa birgða­keðjur og raska vígbúnaðar­framleiðslu. Hann sagði Banda­ríkin ekki geta „klárað eigin birgðir“. 

Þetta segir Trump daginn áður en hann hittir Volodomyr Zelensky, forseta Úkraínu, sem bundið hefur von við að Trump muni hjálpa til við að binda enda á yfir­standandi innrás Rússa í Úkraínu.

Trump upplýsti jafnframt við blaðamenn að hann hefði einnig rætt við Vladimir Pútín, forseta Rússlands, í símtali um mögu­leikann á að láta Úkraínu hafa Tomahawk-eldflaugar og að honum „líkaði ekki við hugmyndina.“

Trump greindi frá þessu eftir meira en tveggja klukku­stunda símtal við Pútín sem hann lýsti sem „mjög árangurs­ríku“. Að sögn Trumps komust þeir að samkomu­lagi um að æðstu ráðgjafar þeirra, þar á meðal utan­ríkis­ráðherrann Marco Rubio, myndu hittast í næstu viku á ótilgreindum stað. Forsetarnir tveir myndu síðan hittast á eftir því „til að sjá hvort við getum fært þetta ‘alræmda’ stríð, milli Rússlands og Úkraínu, til lykta,“ eins og hann orðaði það.

„Ég tel að mikill árangur hafi náðst með símtalinu í dag,“ sagði Trump í færslu á Truth Social.

Júríj Úsjakov, aðstoðar­maður Pútíns, sagði við rússneskar frétta­stofur að fulltrúar ríkjanna myndu hittast „án tafar“ til að undirbúa leiðtoga­fundinn.

Áður en símtalið fór fram í dag hafði Trump lýst vaxandi gremju gagnvart Pútín. Hann hafði boðað í kosninga­baráttunni fyrir forseta­kosningarnar í fyrra að náið samband hans við rússneska leið­togann gæti leitt til skjótrar lausnar á stríðinu. Í ágúst bauð hann Pútín á fund í Alaska en án þess að samkomulag næðist um áætlun til að binda enda á stríðið.

Upp á síðkastið hefur Trump gagnrýnt Pútín fyrir linnulausar árásir á Úkraínu sem hafi grafið undan friðar­umleitum. Hann hefur lagt áherslu á hversu erfitt sé að semja við rússneska leið­togann, jafnvel gefið til kynna að Pútín hafi stundum villt um fyrir honum og nánustu ráðgjöfum hans. „Ég er mjög vonsvikinn vegna þess að við Vladimír áttum mjög gott samband og eigum það líklega enn,“ sagði Trump. „Ég veit ekki af hverju hann heldur þessu stríði áfram.“

Eftir símtalið  í dag kvað við bjartari tón hjá Trump. Hann sagði rússneska leið­togann hafa óskað honum til hamingju með samninga hans í Miðausturlöndum. Hann bætti við að Pútín hefði lýst þakklæti fyrir störf Melaniu Trump, eiginkonu forsetans, sem hefði átt samtöl við Pútín í því skyni að tryggja endurkomu úkraínskra barna sem aðskilin hafa verið fjöl­skyldum sínum vegna stríðsins.

„Hann var mjög þakklátur og sagði að þessu yrði haldið áfram,“ sagði Trump. „Við eyddum líka miklum tíma í að ræða viðskipti milli Rússlands og Banda­ríkjanna þegar stríðinu í Úkraínu lýkur.“

Hvað verður úr í samningum Trumps við Pútín og hvernig aðkomu Úkraínu verður háttað er hins vegar enn óljóst.

Nýjustu fréttir af víglínunni í Úkraínu­stríðinu eru að Rússar beita nú fyrir sig drónum með norður-kóreskum klasa­sprengjum, en vonir Úkraínu­manna um að fá bandarískar Tomahawk-flaugar hafa dvínað.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Þeir eru svo andskoti vitlausir þessir menn báðir tveir, og ekkert að marka hverju þeir lofa.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Putinsleikja Orban hleypur stríðsglæpamanninum Putin inn fyrir Evrópu.
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Voðalega ætlar Trump að láta draga sig á asnaeyrunum. Það þarf bara að smjaðra fyrir Trump, þá er hann einsog smjör
    1
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Margur heldur auð í annars garði enginn er bróðir í annars leik
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Pútín virðist geta leikið á Trump eins og harmónikku.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár