Fjárfestingafélag Jóns Péturs hagnaðist um 48 milljónir

Jöká, fjár­fest­inga­fé­lag þing­manns­ins Jóns Péturs Zimsen og fjöl­skyldu, hagn­að­ist um 48 millj­ónir króna á síð­asta ári. Félagið á hluta­bréf í fjölda fyr­ir­tækja, meðal ann­ars í sjáv­ar­út­vegi og skyr útrás.

Fjárfestingafélag Jóns Péturs hagnaðist um 48 milljónir
Kennari og fjár­festir Jón Pétur Zimsen er mennt­aður kenn­ari en hann hefur lengi verið virkur fjár­festir ásamt fjöl­skyldu sinni. Mynd: Golli

Fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Jóns Péturs Zimsen, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks, bræðra hans og föður hagn­að­ist um 48 millj­ónir króna á síð­asta ári. Hagn­að­ur­inn er að mestu til­kom­inn vegna hluta­bréfa­fjár­fest­inga en félagið fjár­festir í bæði hluta­bréfum og skulda­bréfum. 

Jón Pétur er kvittar upp á árs­reikn­ing­inn sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt til­kynn­ingu til Skatts­ins var hann gerður að fram­kvæmda­stjóra þann 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn, níu dögum eftir að úrslit Alþing­is­kosn­inga láu ljós fyrir og ljóst var að hann hefði náð kjöri á Alþingi. 

Samkvæmt Skatt­inum á 41 pró­senta hlut í félag­inu og er stærsti hlut­haf­inn. Bræður hans Jóhann og Óli eiga 27,6 og 25 pró­sent í félag­inu en faðir þeirra, Nils, á 6,3 pró­sent. Stjórn félags­ins, sem sam­anstendur af Jóni Pétri og Nils, lagði til að greiða eig­end­unum 30 millj­ónir króna í arð á þessu ári. Þar af munu 12,3 millj­ónir rata til Jóns Péturs. 

Eignarhlutur í Brimi og skuldabréf í ÚR

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Þessi fyrrum kennari var með alvarleg afskipti af kjaramálum kennara ásamt því að með virk afskipti af því að því hverjir skipuðu stjórn samtaka kennara með slæmum afleiðingum fyrir hagsmuni kennara
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár