Helgi hagnast um nærri 640 milljónir

Fjár­fest­inga­fé­lag Helga Magn­ús­sonar hagn­að­ist um 637 millj­ónir króna á síð­asta ári. Mestur hagn­aður fólst í gang­virð­is­breyt­ingum hluta­bréfa. Fjöl­miðlar Helga skil­uðu hagn­aði í fyrra eftir ára­langan tap­rekstur.

Helgi hagnast um nærri 640 milljónir

Fjár­fest­inga­fé­lag Helga Magn­ús­sonar, Hof­garðar ehf., skil­aði 637 millj­óna króna hagn­aði á síð­asta ári. Það er umtals­verður umsún­ingur frá árinu áður þegar félagið tap­aði 58 millj­ónum. 

Stærsti hluti hagn­að­ar­ins er gang­virð­is­breyt­ing hluta­bréfa, en rekstur félags­ins felst fyrst og síð­ast í slíkum fjár­fest­ingum. Félag Helga, Hof­garðar, fékk nærri 90 millj­ónir króna í arð af hluta­bréfum í þess eigu en sjálfur ætlar hann ekki að greiða sér arð út úr Hof­görðum, sam­kvæmt reikn­ingnum. 

Eignir Hofgarða nema sam­tals 4,2 millj­örðum króna en 480 millj­ónir af þeim eru óefn­is­legar eignir. Ekki er skýrt hvað felst í þessum óefn­is­legum eignum Helga. Þá er ekki gert grein fyrir í hvaða félögum hefur verið fjár­fest. Það liggur þó fyrir að meðal fjár­fest­inga Hofgarða eru eign­ar­hlutir í Stoðum og Skel, sem hvort um sig er meðal umfangs­mestu fjár­fest­inga­fé­lögum lands­ins.

Hof­garðar eru líka skráð fyrir 100 pró­senta hlut í Fjöl­miðla­torg­inu, útgef­anda DV og fleirri fjöl­miðla. 

Samkvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi Fjöl­miðla­torgs­ins varð …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár