Stríðandi fylkingar sósíalista boða eins fund á sama tíma

Bæði Sós­í­alista­flokkur Íslands og Vor­stjarnan hafa boðað til opinna funda um hús­næð­is­mál, á nákvæm­lega sama tíma. Ágrein­ingur er um hvort félagið hafi boðað sinn fund á undan.

Stríðandi fylkingar sósíalista boða eins fund á sama tíma
Stríð­andi fylk­ingar Frá því að hall­ar­bylt­ing var gerð í Sós­í­alista­flokknum hefur mik­ill upp­gangur verið í starfi Vor­stjörn­unar, sem áður var eins­konar und­ir­fé­lag flokks­ins. Á vett­vangi beggja félaga hefur nú verið boð­aður fundur um hús­næð­is­mál. Mynd: Golli

Á fimmtu­dags­kvöldið klukkan 20 mun fara fram fræðslu- og umræðu­fundur um hús­næð­is­mál á vegum Sós­í­alista­flokks­ins, í nýju hús­næði hans við Hverf­is­götu. Fund­ur­inn er hald­inn í boði kosn­inga­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins.

Þetta er þó ekki sami fundur og boð­aður hefur verið á sama tíma og um sama mál í Bolholti 6, fyrr­ver­andi hús­næði Sós­í­alista­flokks­ins. En þar býður Vor­stjarnan til opins fundar um hús­næð­iskrís­una. 

Telur Vorstjörnuna herma eftir SÍ

Jökull Sólberg Auð­uns­son vakti máls á þessum vend­ingum sem hann kallar „klikk­aðar“ á Facebook-síðu sinni í gær.

„Þegar ný fram­kvæmda­stjórn ákvað að halda við­burð um hús­næð­is­mál sem verður nú á fimmtu­dags­kvöld þá ákvað Vor­stjarnan, leidd af Sönnu Magda­lenu (sem hefur hafnað sínum eigin flokk en notar enn hús­næðið fjár­magnað af pen­ingum sem voru gefnir af flokknum), **að halda við­burð um nákvæm­lega sama við­fangs­efni á nákvæm­lega sama tíma** – einmitt í þessu hús­næði sem þau gætu aldrei verið í nema hafa fært fé úr flokknum og í þessi sam­tök, og sparkað fram­kvæmda­stjórn svo úr þessu hús­næði,“ skrifar Jökull Sólberg.

Bolað úr Bolholti

Mikil og opin­ber átök hafa verið á milli nýrrar og fyrr­ver­andi stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins en hall­ar­bylt­ing var gerð á aðal­fundi flokks­ins í vor. Fyrr­ver­andi stjórn flokks­ins hlaut hins vegar kjör í stjórn Vor­stjörn­unnar en styrkt­ar­fé­lagið hefur verið fjár­magnað með rík­is­styrkjum Sós­í­alista­flokks­ins.  

Eftir að fyrr­ver­andi stjórn Sós­í­alista­flokks­ins tók við stjórn­ar­taumunum í Vor­stjörn­unni var skjót­lega skipt um lykla og flokknum úthýst úr hús­næði sínu í Bolholti. Vor­stjarnan er skráð fyrir leigu­samn­ingnum þar.  

Gunnar Smári segir Vorstjörnuna á undan

Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, skrif­aði athuga­semd við færslu Jökuls og vildi meina að fund­irnir hefðu verið boð­aðir í öfugri röð við það sem Jökull hélt fram.

„Ég er í báðum félögum, fékk boð á fund í Vor­stjörn­unni föstu­dag­inn 19. sept­em­ber kl. 17:28 en boð á fund í Sós­í­alista­flokknum laug­ar­dag­inn 20. sepem­ber kl. 10:33.“

Aðrir bentu þó á að við­burður Sós­í­alista­flokks­ins hefði verið aug­lýstur fyrst 11. sept­em­ber – en þá var Facebook-við­burð­ur­inn búinn til. Við­burður Vor­stjörn­unnar var búinn til á Facebook þann 19. sept­em­ber.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðröður Jónsson skrifaði
    Hvers vegna er verið að fleita áfram lýgi? Það er mjög auðvelt að sannreyna, maður skoðar tímastimpla á Facebook? Það getur ekki verið að hlutverk fjölmiðla sé að auka á upplýsingaóreiðu. Það ætti mikið frekar að ýta undir þá staðreynd að fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar SÍ hikar ekki við að fara með ósannindi ef hann heldur að það þjóni sínum hagsmunum.
    Hvað rugl er þetta?
    0
  • Andri Sigurðsson skrifaði
    Gunnar Smári á erfitt með heiðarleikann, blaðamaður með hans reynslu ætti að geta staðreynt hvernær Facebook færslur voru birtar, það stendur bókstarflega á þeim. Þvílíkur sokkur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár