Sósíalistaflokkurinn leigir af MÍR

Sós­í­alista­flokk­ur­inn er kom­inn í nýtt hús­næði sem hann deilir með Menn­ing­ar­tengslum Íslands og Rúss­lands. „Engin póli­tík þar á milli,“ segir for­maður MÍR. Flokknum var úthýst úr Bolholti eftir deilur í sumar.

Sósíalistaflokkurinn leigir af MÍR
Nýtt hús­næði Sós­í­alista­flokks­ins MÍR hefur lengi verið til húsa við Hverf­is­götu 105. Mynd: Golli

Félagið MÍR, Menn­ing­ar­tengsl Íslands og Rúss­lands, leigir Sós­í­alista­flokknum hús­næði til eins árs.

Sæþór Benjamín Randals­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, stað­festir að flokk­ur­inn sé fluttur að Hverf­is­götu 105.

Opið hús á vegum flokks­ins hefur verið aug­lýst á Menn­ing­arnótt með fjöld­breyttri dag­skrá frá 12 til 22.

Eftir að ráð­andi öfl í flokknum biðu lægri hlut á átaka­fundi 30. júní um styrkt­ar­fé­lagið Vor­stjörn­una, sem á leigu­samn­ing­inn að Bolholti 6, var skipt um lás og flokknum vísað úr hús­næð­inu. Þar eru nú Vor­stjarnan og Sam­stöðin, tveir aðilar sem þegið hafa megnið af opin­berum styrkjum til flokks­ins und­an­farin ár og er stýrt af fólki tengdum Gunnari Smára Egils­syni, ábyrgð­ar­manni Sam­stöðv­ar­innar og fyrrum for­manni fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins.

Ekkert pólitískt samkrull

Sigurður Hergeir Ein­ars­son, for­maður MÍR, segir flokk­inn munu leigja hús­næðið til árs til að byrja með en hafi for­gang að því að leigja eftir það.

Pláss verður fyrir báða, flokk­inn og menn­ing­ar­sam­tökin, í sama hús­næði. „Við förum bara yfir í bóka­safnið og hús­næði sem við leigðum út áður,“ segir Sigurður.

„Ef menn ætla að bendla póli­tísku sam­krulli þá fara þeir villu vegar“

Hann segir engin tengsl vera á milli starf­semi flokks­ins og MÍR. „Þetta kom bara upp í hend­urnar á okkur og pass­aði eins vel og böllur í feita vinnu­konu,“ segir Sigurður. „Allt til­vilj­unum háð og engin póli­tík þar á milli svo það sé alveg skýrt. Ef menn ætla að brigsla póli­tísku sam­krulli þá fara þeir villu vegar.“

MÍR var stofnað árið 1950, þá kennt við Ráð­stjórn­ar­ríkin, einnig þekkt sem Sov­ét­ríkin, en ekki Rússland eitt. Nafnið var valið vegna hug­renn­inga­tengsla við rúss­neska orðið мир sem merkir „friður“. Fyrsti for­seti þess var Nóbels­skáldið Halldór Kiljan Laxness.

Reyndar hafa deilur einnig staðið um félagið MÍR und­an­farin ár en til stóð að leggja niður félagið, breyta því í styrkt­ar­sjóð til þýð­ingar á rúss­neskum bók­menntum og selja hús­næðið áður. Samkvæmt frétt Vísis um deil­urnar hefur komið til lík­am­legra átaka á fundum MÍR.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Elín Kona Eddudóttir skrifaði
    Hversu vel passar böllur í feita vinnukonu?
    -1
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      Gamlir eyfirðingar sögðu að eitthvað *rennur eins og böllur inn í feita vinnukonu* þegar vel til tókst með verkin.
      -2
  • Viðar Eggertsson skrifaði
    MÍR stendur fyrir Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna (ekki Rússlands eins og stendur í fréttinni) Þessi „börn"! ;)
    -1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      https://www.mmedia.is/felmir/sagamir.htm
      Félagið var stofnað í marsmánuði 1950 og hlaut nafnið Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnaríkjanna, skammstafað MÍR, en orðið mír í rússnesku þýðir í senn friður og heimur. Þegar Sovétríkin (Ráðstjórnarríkin) liðuðust í sundur í árslok 1991 var óhjákvæmilegt að breyta nafni félagsins og takmarka starfsvið þess. Á aðalfundi í mars 1992 var nafninu breytt í Félagið MÍR og nú má lesa úr þeim þremur stöfum heitið Menningartengsl Íslands og Rússlands.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár