Dómarnir opinbera brotalamir í kerfinu

Talskona Stíga­móta segir dóma Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í málum tveggja kvenna gegn íslenska rík­inu opin­bera brotala­mir í íslenska kerf­inu þegar þolendur kyn­bund­ins ofbeldis eru ann­ars vegar. Lögmaður kvenn­anna segir það verk­efni dóms­mála­ráð­herra að rýna í dómana og læra af þeim.

Dómarnir opinbera brotalamir í kerfinu
Drífa Snædal segir brota­þola upp­lifa það oft að kerfið grípi þá ekki. Mynd: Golli

„Þetta er stór­sigur og varða á leið­inni að því að brota­þolar geti fengið rétt­læti í sínum málum. Þarna við­ur­kennir Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn að í einu máli að þá hafi lög­reglan ekki sinnt skyldum sínum og í raun­inni komið í veg fyrir að brota­þoli fái það rétt­læti sem hún á skilið,“ segir Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, við Heim­ild­ina. 

Fyrr í dag birt­ust úrskurðir MDE í málum tveggja kvenna sem kærðu íslenska ríkið fyrir rang­láta máls­með­ferð í kærum þeirra á brotum í nánu sam­bandi. Dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að í máli ann­arrar þeirra, Maríu Árna­dóttur, hefði verið brotið á mann­rétt­indum hennar þegar málið fyrntist í höndum lög­reglu.

Sjö önnur mál þar sem konur töldu íslenska ríkið hafa brotið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­með­ferða eru enn á borði MDE. Stígamót sáu um að safna öllum níu kær­unum saman sem síðan voru sendar til dóm­stóls­ins. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár