Grætur gleðitárum eftir „stórsigur fyrir mig og alla brotaþola“

„Það var brotið á rétti mínum til rétt­látrar máls­með­ferðar,“ segir María Sjöfn Árna­dóttir, sem lagði íslenska ríkið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í dag. Hún kærði lík­ams­árásir og hót­anir í nánu sam­bandi, en málið fyrnd­ist í höndum lög­reglu.

„Ég grenja bara og grenja,“ segir María Sjöfn Árna­dóttir sem vann mál gegn íslenska rík­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu og grætur gleði­tárum eftir ára­langa bar­áttu fyrir rétt­læti.

Hún er nú stödd erlendis og hafði ekki lesið dóm­inn sem var kveð­inn upp nú í morgun klukkan átta. „Ég fékk bara skila­boð frá lög­fræð­ingnum sem sagði: Þú vannst málið, ég sendi meira síðar. Svo sendi hann mér dóm­inn en ég hef ekki getað opnað hann. Ég bara titra. Þetta er stór­sigur fyrir mig og alla brota­þola.“ 

Málið fyrndist í höndum lögreglu

María leit­aði til lög­reglu árið 2017 vegna lík­ams­árásar og hót­ana í nánu sam­bandi. Hún er ein níu kvenna sem kærðu íslenska ríkið til Mann­réttind­ar­dóm­stóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti sínum til rétt­látrar máls­með­ferðar. Konurnar áttu sam­merkt að vera brota­þolar kyn­bundis ofbeldis og hafa kært nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi eða kyn­ferð­is­lega áreitni til lög­reglu. Öll málin höfðu verið felld niður …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GIG
    Gunnar Ingi Gunnarsson skrifaði
    Afar mikilvægur sigur réttlætis - bæði þinn og reyndar okkar allra! Ferli málsins endar loks vel, en hefur valdið þolanda meiðandi álagstjóni - til skemmri eða lengri tíma. /Gunnar Ingi.
    2
  • Thordis Thordardottir skrifaði
    Takk, takk, takk María Sjöfn Árna­dótt­ir fyrir hugrekkið. vonandi lærir lögreglan af þessum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu. Vel gert. verði þér allt að sólu.
    2
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Congratulations Maria!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár