Íslensk kona lagði ríkið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu

María Árna­dóttir, sem kærði íslenska ríkið fyrir brot á rétti til rétt­látrar máls­með­ferðar í máli sem varð­aði brot í nánu sam­bandi, vann mál sitt fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í dómi sem féll nú í morgun.

Íslensk kona lagði ríkið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu

Dómur féll í morgun hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu (MDE) í málum tveggja kvenna gegn íslenska rík­inu, annarri þeirra í vil. Komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði gerst brot­legt við átt­undu grein Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, um frið­helgi einka­lífs og fjöl­skyldu, við rann­sókn lög­reglu á kæru íslensku kon­unnar á brotum í nánu sam­bandi.

Er íslenska rík­inu gert að greiða henni 7.500 evrur, eða rúm­lega milljón króna í bætur. 

Níu konur kærðu ríkið

Mál­sókn­irnar tvær eru meðal níu kæra sem bár­ust MDE frá íslenskum konum sem töldu ríkið hafa brotið á rétti þeirra til rétt­látrar máls­með­ferðar í málum er varða kyn­bundið ofbeldi. Allar höfðu kon­urnar kært kyn­ferð­is­of­beldi, heim­il­is­of­beldi eða kyn­bundna áreitni til lög­reglu en mál þeirra voru felld niður eftir rann­sókn lög­reglu og sú ákvörðun stað­fest af rík­is­sak­sókn­ara. 

Konurnar voru þegar kær­urnar voru lagðar fram á aldr­inum 17 til 44 ára. Meðal þess sem talið var upp að hefði farið á mis í máls­með­ferð kvenn­anna sam­kvæmt kær­unum til MDE voru of langur rann­sókn­ar­tími, margir mán­uðir sem sak­born­ingar höfðu til að und­ir­búa sig fyrir skýrslu­töku og sam­ræma frá­sagnir, það að litið væri fram­hjá skýrslum vitna og það að þau væru jafn­vel ekki boðuð.

Refsivörslukerfið brugðist algjörlega

María Árna­dóttir, konan sem vann málið fyrir MDE, tjáði sig opin­ber­lega um mála­vöxtu þegar til­kynnt var um kæruna upp­haf­lega.

María kærði nið­ur­fell­ingu lög­reglu á kæru hennar á lík­ams­árás og hótun í nánu sam­bandi til rík­is­sak­sókn­ara. Þá kom í ljós að málið, sem kom inn á borð lög­reglu 2017, hefði aldrei verið rann­sakað – vitni ekki kölluð til fyrr en eftir að lög­reglan hafði sagt rann­sókn máls­ins lokið, sak­born­ingi ekki kynnt sak­ar­efni fyrr en átta mán­uðum eftir að kæra var lögð fram auk þess sem ávarka­vott­orð og önnur mik­ils­verð gögn voru aldrei sótt. 

Máls­með­ferðin dróst þá svo á lang­inn að lík­ams­árás­ar­brotin fyrnd­ust í höndum lög­reglu, þrátt fyrir játn­ingu ger­anda. Rík­is­sak­sókn­ari gerði ýmsar athuga­semdir við verk­lag lög­reglu og var ger­andi Maríu að lokum sak­felldur fyrir hót­un­ar­brot – eina brotið sem var ekki fyrnt.

„Það var svaka­lega van­virð­andi og nið­ur­lægj­andi að sjá svart á hvítu að málið hafði ekki verið rann­sakað, sem er sér­stak­lega erfitt þegar um er að ræða svona per­sónu­legt brot, sem ofbeldi í nánu sam­bandi er. [...] Ég upp­lifði alla máls­með­ferð­ina eins og ég væri fangi refsi­vörslu­kerf­is­ins sem brást mér algjör­lega og refs­aði mér stöðugt með áfalli ofan í áfall,“ sagði María á blaða­manna­fundi sem haldin var vegna kærunnar á vegum 13 kvenna­sam­taka árið 2021.

Í flestum kær­unum er vísað í eft­ir­far­andi ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu; um rétt­inn til lífs, rétt­láta máls­með­ferð, frið­helgi einka­lífs, áhrifa­ríkt og raun­hæft úrræði, bann gegn mis­munun og bann við pynd­ingum og van­virð­andi með­ferð. 

Í frétta­til­kynn­ingu á sínum tíma sagði að málin sýndu hvernig „íslenska ríkið brýtur kerf­is­bundið gegn rétti kvenna sem kæra kyn­bundið ofbeldi og bregst þannig skyldum sínum til að tryggja rétt kvenna á Íslandi til rétt­látrar máls­með­ferðar sam­kvæmt Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.“

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Finnbogi Tórshamar skrifaði
    Það er eins og það sé í verkferlum hjá lögreglunni að vísa þessum málum frá, á svipaðan hátt og þegar ákveðnir sjúklingar er vísað frá á bráðamóttöku Geðsviðs og í Fossvogi vegna anna. Eins og almenna viðhorfið inná vinnustaðnum sé að trúa ekki skjólstæðingnum eða að önnur mál séu mikilvægari, í biðröðinni og í málabunkanum er fólk sem getur ekki biðið og krafa yfirmanna um að láta allt ganga hratt og kötta á allt óþarfa vesens. Þessi mál eru nefninlega soldil vesen fyrir staffið, ekki mikill árangur. Mér finnst eins og bæði fjársvelti og almennt virðingarleysi og fordómar gagnvart ákveðnum hópum hafi búið til þennan kúltúr. Ég veit ekki hvursu oft ég hef heyrt fólk hafi dáið eftir að vera vísað frá neyðarmótöku Geðdeildar eða Bráðamóttöku Fossvogs, eða heyrt þolendur segja frá ömurlegri reynslu, kært og málin látin falla niður vegna lítilla sannana.
    Gott það kom upp á yfirborðið hér það sem svo mörg okkar grunuðu, að það var ekki einu sinni rannsakað. Er eins og hún hafi fengið sömu mismunun og önnur mál í sama flokki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár