„Ég upplifði alla málsmeðferðina eins og ég væri fangi refsivörslukerfisins“

María Árna­dótt­ir er ein níu kvenna sem kær­a ís­lenska rík­ið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu fyr­ir brot á rétti til rétt­látr­ar máls­með­ferð­ar í málum er varða kyn­bundið ofbeldi. Í máli hennar lá fyr­ir játn­ing en vegna seina­gangs lög­reglu var hluti þess fyrndur og restin felld nið­ur án rök­stuðn­ings. Við yf­ir­ferð lög­manns á nið­ur­felld­um mál­um komu í ljós marg­vís­leg­ar brota­lam­ir við rann­sókn og máls­með­ferð.

„Ég upplifði alla málsmeðferðina eins og ég væri fangi refsivörslukerfisins“

María Árna­dóttir er ein níu kvenna sem hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir að hafa brotið á rétti sínum til rétt­látrar máls­með­ferðar þegar hún kærði lík­ams­árásir og hótun í nánu sam­bandi. 

Ástæðan er sú að þegar hún kærði nið­ur­fell­ingu lög­reglu, sem hafði hvorki veitt rök­stuðn­ing né afhent umbeðin gögn, til rík­is­sak­sókn­ara kom í ljós að málið hafði aldrei verið rann­sakað. Vitni voru ekki kölluð til fyrr en eftir að lög­reglan hafði sagt rann­sókn máls­ins lokið, sak­born­ingi var ekki kynnt sak­ar­efni fyrr en átta mán­uðum eftir að kæra var lögð fram, áverka­vott­orð var aldrei sótt né heldur önnur mik­ils­verð gögn. Máls­með­ferð dróst engu að síður svo á lang­inn að lík­ams­árás­ar­brotin fyrnd­ust í höndum lög­reglu þrátt fyrir að játn­ing ger­anda lægi fyrir og afsök­un­ar­beiðni af hans hálfu. Rík­is­sak­sókn­ari gerði marg­vís­legar athuga­semdir við fram­göngu lög­reglu og að mað­ur­inn var að lokum sak­felldur fyrir hót­un­ar­brot, sem var eina brotið sem ekki var fyrnt. 

Allt varð þetta til þess að auka enn frekar á streitu og van­líðan Maríu, sem hefur glímt við marg­vís­legar og alvar­legar afleið­ingar. Hún greindi frá reynslu sinni á blaða­manna­fundi sem hald­inn var á vegum 13 kvenna­sam­taka fyrr í dag, þar sem farið var yfir hvernig ríkið brýtur ítrekað á rétti kvenna til rétt­látrar máls­með­ferðar í málum er varða kyn­bundið ofbeldi. 

Fékk ekkert svar 

Eftir að María hafði lagt fram kæru tók við margra mán­aða bið þar sem hún fékk nán­ast engar upp­lýs­ingar um gang máls­ins. Hún segir að það hafi verið veru­lega streitu­vald­andi, en brota­þoli hefur engan laga­legan rétt á gögnum máls við rann­sókn líkt og sak­born­ingur. Brota­þoli getur þar af leið­andi ekki fylgst með því hvort búið sé að sækja gögn, kynna sak­born­ingi sak­ar­efni, ræða við vitni og þess háttar. „Ég sendi ítrekað tölvu­pósta til rann­sak­enda um hvort svo væri og að ég hefði áhyggjur af fyrn­ingu í máli af því að ég vissi ekki hvort búið væri að kynna sak­born­ingi sak­ar­efni. Mér var sífellt sagt að það væri verið að reyna að ná í hann í síma. Ég bað rann­sak­anda meðal ann­ars um að stað­festa hvenær fyrn­ing­ar­frestur myndi rofna í mál­inu en fékk ekk­ert svar.“

Sumarið 2018, rúm­lega sjö mán­uðum eftir kæru, fékk hún vit­neskju um að rann­sókn væri lokið. Hún vissi hins vegar að það gæti ekki stað­ist þar sem hvorki hafði verið rætt við bein né óbein vitni í mál­inu. „Ég og rétt­ar­gæslu­lög­maður minn mót­mæltum ákaft og var þá loks haft sam­band við vitni í máli, um 9 mán­uðum eftir að kæra var lögð fram. Skýrsla var ekki tekin af sak­born­ingi fyrr en í sept­em­ber 2018, rúm­lega átta mán­uðum eftir kæru, en ég lagði fram kæru í des­em­ber 2017,“ segir María en brotin áttu sér stað árið 2016. „Þá voru lík­ams­árás­ar­brotin í raun fyrnd, án þess að mér væri kunn­ugt um það á þeim tíma.“ Hún seg­ist alltaf hafa vitað að það væri eitt­hvað bogið við rann­sókn­ina en sig hafi skort kæru­heim­ild til að bregð­ast við því. „Þessari van­líðan fylgdi gríð­ar­leg van­mátt­ar­til­finn­ing.“

Gekk á reiði

Í lok apríl 2019, um einu og hálfu ári eftir kæru, fékk hún bréf frá sak­sókn­ar­full­trúa hjá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þess efnis að málið þætti ekki lík­legt til sak­fellis og var það fellt niður í heild sinni. „Ég gekk á reiði fyrstu vik­una eftir nið­ur­fell­ingu og fór yfir laga­lega sönn­un­ar­stöðu sem ég vissi að væri sterk,“ segir hún og vísar til þess að játn­ing og afsök­un­ar­beiðni hafi legið fyrir, tveir sam­skipta­seðlar frá lækni um áverka og ljós­myndir af áverkum sem spegl­uðu lýs­ingu áverka á sam­skipta­seðlum. Sömu­leiðis hafi legið fyrir stað­fest­ing frá Bjarka­hlíð um að hún hefði sótt þar sam­tals­með­ferð frá árinu 2017. Öll þessi gögn lagði hún sjálf fyrir við kæruna árið 2017. 

Nið­ur­fell­ingin hafði gríð­ar­leg áhrif á Maríu. „Rúmlega viku eftir nið­ur­fell­ingu máls þá gafst lík­am­inn upp vegna langvar­andi streitu og ég fékk alvar­legt tauga­á­fall eftir þriggja daga vöku, grát og van­líðan.“ Næstu þrjá mán­uði var hún frá vinnu og var sett á svefn- og kvíða­lyf. Í kjöl­far tauga­á­falls­ins missti hún minnið að hluta, jað­ar­sjón­ina og var ekki í ástandi til að keyra bif­reið í nokkra mán­uði því lík­ams­kerfið var ofhlaðið álagi. „Ég var keyrð til Bjarka­hlíðar í tauga­á­fall­inu þar sem þrír starfs­menn tóku á móti mér og sáu vel í hvaða ástandi ég var. Ráðlagði teym­is­stjóri Bjarka­hlíðar mér að fara í sér­tæka EMDR-áfallastreiturösk­un­ar­með­ferð.“

Hún ákvað að kæra nið­ur­fell­ingu máls til rík­is­sak­sóknar og óska eftir máls­gögnum ásamt rök­stuðn­ingi fyrir nið­ur­fell­ing­unni. „Mér var synjað um gögnin, sem fer gegn stjórn­sýslu­lögum, fyr­ir­mælum sak­sókn­ara og túlkun Umboðs­manns Alþingis um rétt­ar­á­hrif nið­ur­fell­ingar sem felur í sér að afhenda beri gögn við nið­ur­fell­ingu sé þess óskað. Ég fékk heldur engan rök­stuðn­ing fyrir nið­ur­fell­ing­unni.“ 

Athugasemdir ríkissaksóknara

Rík­is­sak­sókn­ari var ósam­mála ákæru­sviði um nið­ur­fell­ingu máls­ins og taldi næg sönn­un­ar­gögn í máli til að ákæra í öllum kæru­liðum, sagði María á blaða­manna­fund­inum, en sökum fyrn­ingar var ekki lengur hægt að ákæra vegna lík­ams­árás­ar­brot­anna. Lagði rík­is­sak­sókn­ari því fyrir lög­reglu að gefa út ákæru vegna hót­unar, sem var eini ákæru­lið­ur­inn sem hafði ekki fyrnst við rann­sókn máls­ins. „Jafn­framt árétt­aði rík­is­sak­sókn­ari gild­andi reglur um afhend­ingu gagna sem voru brotnar gegn mér. Rík­is­sak­sókn­ara fannst aðfinnslu­vert að rök­stuðn­ingur nið­ur­fell­ingu hafði ekki verið veittur þar sem lög­reglu­stjóra er skylt sam­kvæmt lögum að veita hann. Ég fékk aldrei þennan rök­stuðn­ing. Auk þess taldi rík­is­sak­sókn­ari ástæða til að gera grein fyrir rann­sókn lög­reglu í máli. Í ljós kom að málið hafði aldrei verið rann­sakað. Áverka­vott­orð voru ekki sótt, né önnur nauð­syn­leg gögn, stað­fest­ingar eða vott­orð. Það var enn eitt áfallið. Það var svaka­lega van­virð­andi og nið­ur­lægj­andi að sjá svart á hvítu að málið hafði ekki verið rann­sakað, sem er sér­stak­lega erfitt þegar um er að ræða svona per­sónu­legt brot, sem ofbeldi í nánu sam­bandi er.“

Missti rétt til réttargæslulögmanns

Lög­reglu­stjóri gaf út ákæru í hót­un­ar­broti en þegar málið var dóm­tekið kom í ljós að hún hafði misst rétt til rétt­ar­gæslu­lög­manns vegna klofn­ing máls­ins. Heimild til rétt­ar­gæslu­lög­manns fylgdi lík­ams­árás­ar­brotum sem fyrnt­ust í höndum lög­reglu, en ekki hót­un­arbrót­inu. „Það var enn eitt áfallið. Á sama tíma missti ég heim­ild mína til að biðja um að láta víkja ger­anda úr dóm­sal við skýrslu­töku mína fyrir dómi. Sat ég því með sak­sókn­ara á vinstri hönd, sem braut á rétti mínum til gagna og rök­stuðn­ings fyrir nið­ur­fell­ingu, og sak­born­ing mér á hægri hönd. Það var þrautin þyngri að kom­ast í gegnum mál­flutn­ing í þessum aðstæðum.“ 

Sak­born­ingur var sak­felldur fyrir hót­un­ar­brot í hér­aði og áfrýj­aði dómnum til Lands­réttar í ágúst 2020. Enn er ekki komin dag­setn­ing frá Lands­retti um mál­flutn­ings­dag. María sér því ekki enn fyrir end­ann á mál­inu, sem hefur kostað hana gríð­ar­lega mikið: „Ég sat uppi með mörg hund­ruð þús­und króna reikn­ing fyrir lög­fræði­þjón­ustu sem ég þurfti að greiða úr eigin vasa, þar sem ég naut ekki lengur aðstoðar rétt­ar­gæslu­lög­manns. Því til við­bótar hef ég greitt á þriðja hund­ruð þús­und fyrir sér­tæka EMDR-áfallastreit­un­ar­rösk­un­ar­með­ferð vegna afleið­inga brota ger­anda og ákæru­valds, og tugi þús­unda í lyfja­kostnað.“ 

Refsað með áfalli ofan í áfall

Fyrir utan van­mátt­ar­til­finn­ing­una sem fylgdi því að hafa ekki stjórn á aðstæðum. „Ég upp­lifði alla máls­með­ferð­ina eins og ég væri fangi refsi­vörslu­kerf­is­ins sem brást mér algjör­lega og refs­aði mér stöðugt með áfalli ofan í áfall.“

Hún greind­ist með alvar­lega áfallastreituröskun sem hún segir að hafi verið sér lífs­hættu­leg, bæði vegna mik­ils álags á hjarta og æða­kerfi vegna langvar­andi streitu, ásamt mik­illi and­legri van­líðan „sem ítrekað, eftir tauga­á­fall, ýtti þeim hugs­unum að mér að gef­ast upp fyrir þessum aðstæðum og líf­inu,“ segir hún.

Það var ekki allt: „Ég greind­ist með álags­há­þrýst­ing vegna streitu sem mæld­ist fyrst 2017, ég kippt­ist til við minnstu hreyf­ingu og hljóð og var allan sól­ar­hring­inn við­búin árás, sem eru sjálf­virk varn­ar­á­hrif eftir að hafa orðið fyrir alvar­legu ofbeldi. Þetta er skelfi­legur staður að vera á en þetta hefur verið líf mitt í mörg ár. Vegna mik­ils álags og streitu þurfti ég að gera hlé á meist­ara­námi mínu í lög­fræði. Vegna álags á hjarta og æða­kerfið þurfti ég að fara í ófrjó­sem­is­að­gerð til að minnka hættu á blóð­tappa­myndun. Afleið­ing­arnar eru miklu víð­tæk­ari en ég næ að tíunda hér.“

Segja íslenska ríkið brjóta kerfisbundið á konum

Sam­an­dregið olli máls­með­ferðin henni gríð­ar­legu and­legu, lík­am­legu og fjár­hags­legu tjóni og mál­inu er ekki enn lokið fyrir dóm­stólum hér á landi árið 2021. Streitu­á­standið hefur því varað í fjögur ár. „Með því að vekja athygli á máls­með­ferð­inni í mínu máli er ég að leggja mitt af mörkum til að koma í veg fyrir að aðrir brota­þolar þurfi að ganga þessi þungu skref sem ég gekk.“ 

Hún er ekki ein. Hún bendir á að hinar kær­urnar beri vitni um að fleiri mál hafi hlotið hroða­lega máls­með­ferð. Allar kon­urnar níu kærðu kyn­bundið ofbeldi, ýmist nauðg­anir, heim­il­is­of­beldi eða kyn­ferð­is­lega áreitni, þegar þær voru á aldr­inum 17-24 ára. Málin voru öll felld niður af ákæru­vald­inu.

Þegar aug­lýst var eftir konum til að kæra íslenska ríkið bár­ust á annan tug mála, en Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn gerir kröfu um að kærendur hafi tæmt úrræði inn­an­lands áður en leitað er til dóms­ins. Í flestum kær­unum er vísað í eft­ir­far­andi ákvæði Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu; um rétt­inn til lífs, rétt­láta máls­með­ferð, frið­helgi einka­lífs, áhrifa­ríkt og raun­hæft úrræði, bann gegn mis­munun og bann við pynd­ingum og van­virð­andi með­ferð. 

Í frétta­til­kynn­ingu um málið kemur fram að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi afmarkað hlut­verk og vísi lang­flestum málum frá. Vænt­ingar um að fá efn­is­lega nið­ur­stöðu kærendum í hag séu því stilltar í hóf. Hins vegar sýni málin „hvernig íslenska ríkið brýtur kerf­is­bundið gegn rétti kvenna sem kæra kyn­bundið ofbeldi og bregst þannig skyldum sínum til að tryggja rétt kvenna á Íslandi til rétt­látrar máls­með­ferðar sam­kvæmt Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu,“  líkt og fram kemur í frétta­til­kynn­ingu um málið, sem send var út undir yfir­skrift­inni: „13% rétt­læti er ekki nóg“. 

Vísað er í tölur sem sýna að lang­flestar til­kynn­ingar kvenna um ofbeldi til lög­reglu fara aldrei fyrir dóm, eða aðeins 17% til­kynntra nauðg­un­ar­mála. Restin er ýmist felld niður af sak­sókn­ara eða lög­regla hættir rann­sókn. Aðeins 13% end­uðu með sak­fell­ingu.

„Ætlunin með að senda kær­urnar til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins er að vekja athygli á kerf­is­bundnum vanda og láta íslenska ríkið svara fyrir það á alþjóða­vett­vangi hvers vegna staða kvenna sem brota­þolar í ofbeld­is­brotum á Íslandi er svo veik sem raun ber vitni,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Af blaða­manna­fund­inumSteinunn og María biðl­uðu til stjórn­valda að ráð­ast í úrbætur á stöðu brota­þola kyn­bund­ins ofbeldis. Sigrún Ingi­björg lög­maður benti á marg­vís­legar brotala­mir í rann­sókn og máls­með­ferð nið­ur­felldra mála.

Brotalamir í rannsókn og meðferð málanna

Flestar kær­urnar voru lagðar fram hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sigrún Ingi­björg Gísla­dóttir, lög­maður á Rétti, sendi kær­urnar til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og segir að við yfir­ferð á mál­unum hafi komið í ljós ýmsar brotala­mir í rann­sókn og með­ferð mál­anna innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins. Þessar brotala­mir varða helst rann­sókn lög­reglu, mat á sönn­un­ar­gögnum og túlkun á vilja lög­gjafans.

Þar má nefna alvar­lega ann­marka á rann­sókn lög­reglu, þar sem mál fyrntist í höndum lög­reglu á meðan það var til rann­sóknar vegna þess hve lengi dróst að boða sak­born­ing í skýrslu­töku. Almennt hafi málin tekið allt of langan tíma í rann­sókn lög­reglu. Sak­born­ingar höfðu marga mán­uði til að und­ir­búa sig fyrir skýrslu­töku og sam­ræma frá­sagnir vegna seina­gangs lög­reglu við rann­sókn mála. Vitni sem höfðu lyk­il­þýð­ingu í málum voru ekki boðuð í skýrslu­töku og litið var fram­hjá skýrslum vitna sem studdu við frá­sögn brota­þola.

Sönnunargögn höfðu lítið gildi

Lítið sem ekk­ert sönn­un­ar­gildi var lagt í þau sönn­un­ar­gögn sem til staðar eru í mál­unum. Oftast ger­ast er ofbeldi beitt á bak­við luktar dyr og þau sönn­un­ar­gögn sem voru þolendum til­tæk, einkum vott­orð sál­fræð­inga, voru ekki tekin alvar­lega. Bent var á að það sam­ræm­ist ekki laga­breyt­ingu á Alþingi þar sem áhersla er lögð bæði á lík­am­legar og and­legar afleið­ingar. Lík­am­legir áverkar virð­ast heldur ekki telj­ast full­nægj­andi. Dæmi voru um að það hefði þótt ósannað að brota­þol­inn hefði veitt mót­spyrnu þrátt fyrir lík­am­lega áverka. Í öðrum til­vikum var litið fram hjá sönn­un­ar­gögnum á vett­vangi, svo sem myndum eða mynd­bands­upp­tökum tekin á síma sem og ummerkjum eins og brotnum gluggum. Játn­ingar sak­born­inga voru ekki teknar til greina. Neitun sak­born­ings virð­ist vega þyngra en fram­burður brota­þola sem studdur er með vitnum og sönn­un­ar­gögnum og er það mikil hindrun gegn rétt­látri máls­með­ferð fyrir brota­þola.

Ofbeldi sannað en málið fellt niður

Er það mat lög­manns­ins að gengið sé gegn vilja lög­gjafans við túlkun lag­anna. Í mörgum málum hafi verið ein­blínt á hvort að sak­born­ingur hafi mátt gera sér grein fyrir því að brota­þoli hafi ekki veitt sam­þykki, til dæmis sökum ölv­unar­á­stands, fremur en á það hvort hann hafi fengið sam­þykki, eins og lögin kveða á um. Þrátt fyrir að í nýrri nauðg­un­ar­lög­gjöf komi fram að það telj­ist brot ef blekk­ingum er beitt til að ná fram sam­þykki hafi sak­sókn­ari litið svo á að ekki væri unnt að ganga lengra í túlkun en eldri lög og fyrri fram­kvæmd gerði ráð fyrir. Í einu máli þótti sannað að um ofbeldi hefði verið að ræða en þar sem ofbeldið þótti ekki nægi­lega alvar­legt var það talið fyrnt og fellt niður. 

Komast sjaldnast inn í dómsal 

Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta, tók einnig til máls á fund­inum. „Í dag ætlum við að ræða um rétt­ar­kerfið, kerfið sem við höfum búið til sem er ætlað að færa okkur rétt­læti sé brotið á okkur með ein­hverjum hætti. Hug­myndin er auð­vitað að vernda borg­ar­ana gegn glæpum og að dæma þá sem brjóta af sér til refs­ingar. En staðan er sú að rétt­ar­kerfið gerir lítið sem ekk­ert til þess að vernda konur gegn kyn­bundnu ofbeldi og það sem verra er, er að það er upp­lifun margra kvenna af rétt­ar­kerf­inu að þær séu ein­fald­lega beittar enn frekara ofbeldi af kerf­inu, reyni þær að leita þangað eftir úrlausn sinna mála. Þetta er full­kom­lega óásætt­an­legt og við eigum ekki að leyfa þessu að við­gang­ast,“ segir Steinunn. 

Hún vísar í töl­urnar. „Þegar við skoðum tölur um hvernig ofbeld­is­brotum gegn konum reiðir af í kerf­inu þá sést svart á hvítu að þau eru lang­flest felld niður og kom­ast sjaldn­ast inn í dóm­sal. Dómarinn, sem er sá sem á að skera úr um sekt eða sak­leysi sak­born­ings, fær aðeins um brota­brot þeirra mála sem konur til­kynna til lög­reglu.“ Lög­reglan fái líka bara að heyra um brota­brot þeirra mála sem þjón­ustu­að­ilar fyrir brota­þola heyra af, því margar konur leiti aldrei réttar síns. 

Kerfi hannað af körlum

„Það getur alveg verið skilj­an­legt að konur kæri ekki málin sín og það geta legið margar per­sónu­legar eða sam­fé­lags­legar ástæður þar að baki. Ein þeirra á ekki og má ekki vera sú að þeim sé sýnd svo mikil van­virð­ing við rann­sókn lög­reglu og með­ferð sak­sókn­ara á málum þeirra að þær treysti sér ekki til að kæra. En því miður er þetta það sem margar konur upp­lifa. Þetta er partur af því kerf­is­bundna mis­rétti sem konur verða fyrir í rétt­ar­kerf­inu.“

Ástæðan sé ekki sú að rétt­ar­kerfið sé upp­fullt af vondu fólki heldur sé kerfið hannað af körlum, fyrir karla og um karla. „Þannig að upp­lifun og reynsla kvenna passar illa þarna inn og þó að það sé búin að plástra eitt og annað þá dugir það skammt. Mál kvenna eru kerf­is­bundið felld niður og þær fá ekki áheyrn dóm­stóla.“ 

Krefjast úrbóta

Að lokum segir María að með­ferðin í máli hennar sýnir hversu mik­il­vægt sé að bæta rétt­ar­stöðu brota­þola. Það þurfi að setja upp upp­lýs­inga­kerfi fyrir brota­þola sem sýnir stöðu máls hverju sinni, veita brota­þola aðgengi að gögnum máls á rann­sókn­ar­stigi, kæru­heim­ild á rann­sókn­ar­stigi telji brota­þoli að verið sé að fyr­ir­gera rétti á rétt­látri máls­með­ferð og tryggja að brota­þoli njóti áfram aðstoðar rétt­ar­gæslu­lög­manns þó svo að málið klofni. Eins þurfi að lög­festa skaða­bóta­á­byrgð þegar slæ­leg vinnu­brögð lög­reglu og ákæru­valds valda því að ekki er hægt að ákæra í máli og veita brota­þolendum í ein­hverjum til­vikum gjaf­sókn til að sækja einka­mál gegn ger­endum sínum.

Undir þessi sjón­ar­mið tekur kvenna­hreyf­ingin, þessi þrettán sam­tök sem stóðu fyrir blaða­manna­fund­inum í dag, sem krefj­ast þess að ríkið axli ábyrgð og ráð­ist í eft­ir­far­andi úrbætur:

  • Að brota­þolar sem kæra kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi í nánum sam­böndum verði veitt aðild að saka­mál­inu, ekki síst í því skyni að styrkja rétt­ar­stöðu þeirra gagn­vart rík­inu.
  • Að auknu fjár­magni sé veitt í rann­sókn og sak­sókn mála sem varða kyn­ferð­is­brot og ofbeldi í nánum sam­böndum í þeim til­gangi að auka gæði máls­með­ferð­ar­innar og stytta máls­með­ferð­ar­tíma.
  • Að dóm­urum, sak­sóknurum og lög­reglu sé veitt fræðsla um vilja lög­gjafans varð­andi þau ákvæði sem snúa að kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi í nánum sam­böndum, og þá sér­stak­lega um nauðg­un­ar­á­kvæðið sem byggir nú á sam­þykki.
  • Að brota­þolar í kyn­ferð­is­brota­málum og málum er varða ofbeldi í nánum sam­böndum hafi rétt á gjaf­sókn og rík­is­sjóður ábyrgist dæmdar bætur í einka­málum gegn tjón­völdum með sam­bæri­legum hætti og kveðið er á um í lögum um greiðslu rík­is­sjóðs á bótum til þolenda afbrota. Þetta myndi veita brota­þolum auk­inn mögu­leika á laga­legri við­ur­kenn­ingu á því órétt­læti sem þær voru beittar, sé saka­mála­rann­sókn á broti gegn þeim hætt eða mál fellt niður.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár