Gagnrýndu kynningu á skipulagi yfir sumartímann

Full­trúar meiri­hlut­ans í borg­inni segja að breyt­ingar hafi verið gerðar á skipu­lagi við Krumma­hóla eftir mikið sam­ráð sem íbúar göt­unnar kann­ast ekki við. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks gagn­rýndu kynn­ing­una.

Gagnrýndu kynningu á skipulagi yfir sumartímann
Íbúar í Krumma­hólum Íbúar við göt­una gagn­rýna áform borg­ar­innar um bygg­ingu sex íbúða á gras­bala við Vest­ur­hóla. Mynd: Víkingur

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­ráði gagn­rýndu að skipu­lag við Krumma­hóla færi í kynn­ingu yfir hásumar þegar íbúar ættu erf­ið­ara með að kynna sér til­lög­urnar.

Eins og Heim­ildin greindi frá um helg­ina eru íbúar við Krumma­hóla ósáttir með þétt­ing­ar­á­form Reykja­vík­ur­borgar í göt­unni. Sex íbúðir munu rísa á gras­bala á horni Krumma­hóla og Vest­ur­hóla í Efra-Breið­holti eftir sam­ráðs­ferli frá 2015 en íbú­arnar segj­ast fyrst hafa heyrt af áformunum nú í júní.

Stærsti hluti sam­ráðs­ins mun hafa átt sér stað sum­arið 2020 þegar Covid-19 heims­far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Engar athuga­semdir bár­ust varð­andi Krumma­hóla í öllu ferl­inu en að sögn íbúa eru þeir mikið til aldr­aðir, öryrkjar og af erlendu bergi brotnir.

Fimmtu­dag­inn 10. júlí síð­ast­lið­inn fjall­aði borg­ar­ráð um til­lög­urnar. Þá var minna en mán­uður lið­inn frá því að við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar úr hópi íbúa við Krumma­hóla heyrðu fyrst um áformin að eigin sögn en þeim barst bréf dag­sett 18. júní frá umhverfis- og skipu­lags­sviði um fyr­ir­hug­aðar heim­sóknir arki­tekta til að kynna þau fyrir íbúum og taka við spurn­ingum.

Raunar hafði umhverfis- og skipu­lags­ráð afgreitt málið 25. júní eða aðeins tveimur dögum eftir að arkiterk­arnir gengu á fund við íbúa.

Í kynn­ingu borg­ar­innar kom fram að bygg­ing­ar­magn á reitnum hefði verið minnkað úr 12 íbúðum í sex frá fyrri upp­drætti en við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar könn­uð­ust ekki við að áður hafi til staðið að byggja 12 íbúðir á reitnum.

Gagnrýndu kynningu um hásumar

Á fundi borg­ar­ráðs var sam­þykkt aug­lýs­ing á til­lögu á breyttu deiliskipu­lagi við Krumma­hóla. Borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ingar, Pírata, Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins, sem mynda meiri­hlut­ann í borg­inni ásamt Vinstri grænum, fögn­uðu hug­mynd­inni.

„[...] voru breyt­ingar gerðar eftir sam­töl við íbúa“

„Upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á lóð­inni við Krumma­hóla voru skil­greindar í hverf­is­skipu­lagi Breið­holts sem unnið var í miklu sam­ráði við íbúa,“ segir í bókun meiri­hlut­ans. „Nýjar til­lögur að upp­bygg­ingu á reitnum hafa nú verið felldar betur að nærum­hverf­inu með vönd­uðum arki­tektúr. M.a. hefur verið létt veru­lega á bygg­ing­ar­magni lóð­ar­innar, grænt yfir­bragð hennar skýrt og gæði íbúða útfærð nánar. Í til­lög­unni eru sex fjöl­skyldu­í­búðir með 3-5 her­bergjum í rað­húsum og par­húsi og voru breyt­ingar gerðar eftir sam­töl við íbúa og grein­ingu á hvers­konar íbúðir vantar í hverf­inu.“

Ekki kemur fram hvaða sam­töl við íbúa um ræðir eða hvenær þau eiga að hafa átt sér stað.

Fyr­ir­hug­aðar íbúðirSex íbúðir rísa á reitnum þar sem nú er bíla­stæði og gras­bali.

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks, Hildur Björns­dóttir og Kjartan Magn­ús­son, gagn­rýndu hins vegar áformin og sátu hjá við afgreiðslu. „Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sitja hjá undir þessum lið en gagn­rýna að skipu­lagið fari í kynn­ingu yfir hásum­arið enda íbúar og hag­að­ilar í betri færum að kynna sér fyr­ir­liggj­andi skipu­lags­til­lögur utan sum­ar­leyf­is­tíma,“ segir í bókun þeirra. „Gera full­trú­arnir alla hefð­bundna fyr­ir­vara um end­an­lega afgreiðslu máls­ins að aug­lýs­ingu lok­inni.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Primel Einarsson skrifaði
    Samkvæmt myndum sem sýndar eru með fréttinni virðist aðal byggingareiturinn vera bílastæði. Væntanleg hús mjög látlaus og falla vel inn í umhverfið.
    0
  • PG
    Páll Gunnlaugsson skrifaði
    Gott væri, í tengslum við svona umfjöllun, að birta skipulagsuppdráttinn. Við sem lesum fréttina höfum engar forsendur til að meta hvort um sé að ræða "ofurþéttingu" eða byggingar á afgangssvæði sem enginn notar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár