Mótmæla byggingu á grænum reit við Krummahóla

Íbúar í Krumma­hólum segj­ast fyrst hafa heyrt af þétt­ing­ar­á­formum nokkrum dögum áður en til­kynnt var um þau í frétt. Stærsti hluti sam­ráðs fór fram í miðjum Covid-far­aldr­inum.

Mótmæla byggingu á grænum reit við Krummahóla
Íbúar í Krumma­hólum Mynd: Víkingur

Sex íbúðir munu rísa á gras­bala á horni Krumma­hóla og Vest­ur­hóla í Efra-Breið­holti en íbúar við Krumma­hóla segj­ast fyrst hafa heyrt af áformunum nú í júní.

Umhverfis- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur­borgar segir hins vegar að reglu­legt sam­ráð um upp­bygg­ingu í Breið­holti hafi farið fram síðan 2015 en stærsti hlut­inn átti sér stað sum­arið 2020 þegar Covid-19 heims­far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Engar athuga­semdir hafi borist varð­andi Krumma­hóla í öllu ferl­inu.

Þann 18. júní síð­ast­lið­inn fengu íbúar Krumma­hóla 1 til 29 bréf frá umhverfis- og skipu­lags­sviði um að arki­tektar myndu ganga í hús 23. júní til að kynna til­lög­urnar. Nágrann­arnir tóku á móti arki­tekt­unum á reitnum sjálfum og ræddu við þau sem einn hópur.

Tveimur dögum eftir heim­sókn arki­tekt­anna voru áformin kynnt kjörnum full­trúum í umhverfis- og skipu­lags­ráði og degi síðar birti Reykja­vík­ur­borg frétt um víð­tæka upp­bygg­ingu í Breið­holti sem var sögð unnin „í sam­ráði við íbúa og hag­að­ila í Breið­holti“.

Þar kom fram að sam­kvæmt hverf­is­skipu­lags­upp­drætti hafi staðið til að byggja 12 íbúðir á þessum reit en að nú yrðu þær sex fjöl­skyldu­vænar íbúðir í formi rað- og par­húsa á tveimur hæðum og bygg­ing­ar­magn minnkað úr 1.472 m² í 810 m².​

Fyr­ir­huguð upp­bygg­ingÁ efri mynd­inni sést útsýnið frá græna reitnum við enda Krumma­hóla yfir til Vest­ur­hóla. Á þeirri neðri sjást fyr­ir­huguð hús á reitnum.

Kom íbúum í opna skjöldu 

Helga Björns­dóttir hefur búið í húsi við Krumma­hóla í tutt­ugu ár. Hún seg­ist hafa komið af fjöllum með þessi áform borg­ar­innar og ekki heldur kann­ast við að áður hafi til staðið að byggja tólf íbúðir á reitnum.

„Það var ekki búið að segja okkur neitt og þetta mikla sam­ráð við fólk er eitt­hvað málum blandið,“ segir hún. „Við vissum ekki að það ættu að koma neinar íbúðir hérna. Þetta er bara hóll og þegar við fluttum hingað var trjá­gróður uppi á hólnum. Það var mikið af krökkum hérna og þau léku sér þarna.“

„Inn­við­irnir í hverf­inu þola ekki mikið meira“

Síðan þá hafi reitnum að hluta til verið breytt í bíla­stæði. „Fyrir nokkrum árum settu þau upp raf­magns­hleðslu­stöð sem er mikið notuð. Fólk getur lagt bíl­unum sínum þarna og þó að það sé fal­leg hugsun og þörf að fækka bíl­unum þá þarf eitt­hvað að koma á móti. Það eru engir merki­legir hjóla­stígar hérna inni í hverf­inu og það er ekk­ert gert í því að koma sam­göng­unum í almenni­legt form. Það er eins og það sé byrjað á öfugum enda. Inn­við­irnir í hverf­inu þola ekki mikið meira.“

Helga segir bréfið um heim­sókn arki­tekt­anna hafa komið íbúum í opna skjöldu og að nágrann­arnir hafi talað sig saman. „Það var hiti í fólki,“ segir hún. „Okkur var sagt að fylgj­ast með á sam­ráðs­gátt­inni og senda inn ábend­ingar. Þetta er allt saman eldra fólk sem er ekki á sam­fé­lags­miðlum. Meiri­hluti íbú­anna hérna er af erlendu bergi brot­inn og fylgist lík­lega ekki vel með sam­ráðs­gátt Reykja­vík­ur­borgar.“

Hún segir að íbúum líði eins og þeim sé stillt upp við vegg. „Þau segja að til­lög­urnar hafi verið sýndar í Mjódd og fundað um þær í Gerðu­bergi en það var á Covid-tím­anum,“ segir Helga.

Skoðar að flytja burt

María Ásgeirs­dóttir hefur búið í göt­unni frá 1990. „Ég hef alið upp börnin mín hérna og barna­börnin leika sér í garð­inum hjá mér. Ég er ekki að fara að vera með börnin hérna með bygg­inga­krana í garð­inum. Þetta er mikil ógn,“ segir hún.

„Ég bý akkúrat við hlið­ina á þessu,“ segir María um bygg­ing­ar­svæðið. „Þetta er alveg upp við mig og á eftir að hafa mikil áhrif því ég get ekki notið þess að vera úti í garði. Það á að vera bíla­stæði alveg við grind­verkið hjá mér. Fyrir mér eru þetta eigna­spjöll og ég er mjög ósátt.“

Íbúar við Krumma­hólaHelga og María segja að íbú­arnir séu mikið til eldra fólk, öryrkjar og inn­flytj­endur sem eigi erf­ið­ara með að takast á við borg­ar­yf­ir­völd.

María segir að bréfið frá umhverfis- og skipu­lags­sviðið hafi komið henni að óvörum. „Okkur var tjáð að þetta hefði verið kynnt áður. En þetta var aldrei kynnt fyrir okkur og eng­inn vissi um þetta,“ segir hún um heim­sókn arki­tekt­anna.

„Þetta er fjöl­menn­asta hverfið í Reykja­vík og þau ætla að auka enn við“

„Ég spurði ítrekað hvað við gætum gert. Okkur var sagt að þetta færi í gátt­ina hjá Reykja­vík­ur­borg og þar gætum við skrifað kvört­un­ar­bréf. En meiri­hlut­inn af fólk­inu sem býr hérna í göt­unni er ekki að fara að skrifa bréf. Þetta eru eldri borg­arar, öryrkjar og útlend­ingar. Mér finnst vera að ráð­ast á garð­inn þar sem hann er lægstur fyrir sex íbúðir.“

María seg­ist vona að hlustað verði á íbú­ana. „Þetta er fjöl­menn­asta hverfið í Reykja­vík og þau ætla að auka enn við,“ segir hún. „Ég er ekki viss um að ég geti hugsað mér að búa hérna og er farin að skoða fast­eigna­aug­lýs­ingar. Þetta kemur það mikið við mig. Svona rask tekur tíma og fram­kvæmd­irnar eru við glugg­ann hjá mér.“

Tveir fasar samráðs frá 2015

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá umhverfis- og skipu­lags­sviði hófst fyrsti fasi sam­ráðs hverf­is­skipu­lags í Breið­holti í sept­em­ber 2015 og stóð fram til vors­ins 2017. Þá hafi verið haldnir íbúa­fundir og Gallup myndað fimm rýni­hópa.

„Allir þessir við­burðir voru aug­lýstir í útvarpi, á heima­síðum, Facebook og fjöl­miðlum“

Annar fasi sam­ráðs­ins hafi staðið frá 15. júlí til 31. ágúst árið 2020. „Mark­miðið ann­ars fasa sam­ráðs­ins var að gefa íbúum tæki­færi til þess að bregð­ast við og betrumbæta vinnu­til­lög­urnar sem byggðu á ábend­ingum og athuga­semdum íbúa sem fram komu í fyrsta fasa sam­ráðs­ins,“ segir í svari umhverfis- og skipu­lags­sviðs. „Til­lög­urnar voru kynntar á kynn­ing­ar­síðu, með sýn­ingu á til­lög­unum í Gerðu­bergi og í göngu­göt­unni í Mjódd. Einnig var farið í hverf­is­göngur um þau svæði sem snertu vinnu­til­lög­urnar. Kynn­ing­ar­fundir voru haldnir í streymi vegna Covid-19. Allir þessir við­burðir voru aug­lýstir í útvarpi, á heima­síðum, Facebook og fjöl­miðlum. Einnig var kynn­ing­ar­bæk­lingi dreift í hús.“

Engar athugasemdir frá Krummahólum

Hverf­is­skipu­lag fyrir Efra-Breið­holt tók form­lega gildi 4.maí 2022 að því fram kemur í svari borg­ar­yf­ir­valda. Síðan hafi verið ákveðið að kynna íbúum Krumma­hóla áformin með heim­sóknum arki­tekt­anna nú í júní. „Við vildum kynna þessar til­lögur sér­stak­lega fyrir íbúum sem búa næst þessum reitum til að fá tæki­færi til að útskýra hug­mynd­irnar vel og til að heyra þeirra skoð­anir og benda þeim á í hvaða ferli þau geta beint sínum athuga­semdum,“ segir í svar­inu.

Krumma­hólarUmhverfis- og skipu­lags­svið segja engar athuga­semdir varð­andi Krumma­hóla í ferl­inu.

Í svar­inu kemur einnig fram að engar athuga­semdir hafi komið varð­andi Krumma­hóla í öllu ferl­inu. „Í sam­ráðs­ferli hverf­is­skipu­lags við íbúa Efra-Breið­holts og þá þar með talið íbúa Krumma­hóla, var reynt að ná til sem flestra í öllu hverf­inu,“ segir í svar­inu. „Íbúum Krumma­hóla gafst tæki­færi til að rýna, skoða og koma með athuga­semdir við fyr­ir­hug­uðum skipu­lags­breyt­ingum er snerta þeirra nærum­hverfi eins og öllum öðrum íbúum í hverf­inu.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MM
    Markus Moller skrifaði
    Þessi grein væri mikið betri ef henni fylgdi kort af svæðinu
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár