Tesla býður vexti sem eru lægri en á húsnæðislánum

„Vaxta­á­tak“ Tesla á Íslandi skákar bestu vöxtum hús­næð­is­lána um 3 pró­sentu­stig.

Tesla býður vexti sem eru lægri en á húsnæðislánum
Elon Musk Opnar hér Tesla-verk­smiðju í Þýska­landi. Mynd: EPA

Banda­ríski bíla­fram­leið­and­inn Tesla hefur hleypt af stokk­unum svo­nefndu „vaxta­átaki“, þar sem kaup­endum nýrra bif­reiða bjóð­ast frá 5,99% óverð­tryggðir vextir. Til sam­an­burðar fá Íslend­ingar ekki lægri en 8% vexti þegar þeir kaupa hús­næði.

„Við kynnum nú okkar fyrsta vaxta­á­tak á Íslandi þar sem við­skipta­vinum okkar gefst kostur á að fá fjár­mögnun með bíla­láni með 5,99% breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum á öllum nýjum Model 3 öku­tækjum,“ segir Tesla í til­kynn­ingu til fjöl­miðla. 

Vext­irnir eru hærri fyrir aðrar teg­undir Tesla. Þannig fæst Model Y, sem er stærri en Model 3, með 6,99% óverð­tryggðum vöxtum. 

„Sem dæmi er Model Y Long Range fjór­hjóla­drif­inn nú fáan­legur með bíla­láni á 6,99% breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum frá 100.965 kr. á mán­uði,“ segir í til­kynn­ingu frá Tesla.

Um er að ræða breyti­lega vexti en ekki kemur fram undir hvaða kring­um­stæðum vextir hækka eða lækka.

Lánin eru til 84 mán­aða og krefj­ast 20% útborg­unar …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þetta hlýtur að sanna að svimandi háir vextir á lánum séu alls ekkert náttúrlögmál.

    Nú er auðveldlega og áhættulaust hægt að fá rúmlega 7% ársávöxtun á sparifé. Það þýðir að sá sem tekur svona bílalán á um 6% vöxtum í staðinn fyrir að staðgreiða bílinn og geymir sömu upphæð á sparireikningi hagnast sem nemur um 1% vaxtamuninum.

    Ódýrasta Tesla Model 3 kostar ca. 6 milljónir og hægt að fá 80% lán eða 4,8 milljónir til 7 ára en yfir það tímabil nemur þessi vaxtamunur a.m.k. rúmlega 346.000 kr. Ef við lítum á þetta sem ígildi afsláttar þá nemur hann um 5,8% af kaupverði ökutækisins.
    2
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Þetta er til marks um mikið panikástand í herbúðum Tesla. Í Júlí hefur salan haldið áfram að dragast saman í Evrópu á öllum mörkuðum ef undan eru skilin löndin Noregur og Spánn. T.a.m. hefur sala í Hollandi minnkað um 62%. Svipað er upp á teningnum í Belgíu, Portúgal, Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi, þýskalandi og Ítaliu.

    Ég myndi aldrei kaupa Teslu og það hefur ekkert með bílana sjálfa að gera. Það er einfaldlega prinsippatriði hjá mér.
    5
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Enginn ætti að kaupa jafn lélega fjárfestingu og bíl fyrir lánsfé, sama hverjir vextirnir eru.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár