Rifjar upp stuðning Sigmundar Davíðs við ESB umsókn

Formaður Mið­flokks­ins segir ekki hægt að „kíkja í pakk­ann“ hjá ESB en skrif­aði sjálfur í bréfi til kjós­enda vorið 2009 að for­dæmi væru „fyrir slíku í samn­ingum ann­arra þjóða við Evr­ópu­sam­bandið“.

Rifjar upp stuðning Sigmundar Davíðs við ESB umsókn

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, rifjar upp stuðn­ing Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, við að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu árið 2009.

Sig­mundur Davíð hefur gagn­rýnt þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið hefj­ist að nýju. „Þeir sem gagn­rýndu und­ir­lægju­hátt stjórn­valda gagn­vart ESB voru sak­aðir um heim­ótt­ar­skap og að treysta ekki þjóð­inni,“ skrif­aði Sig­mundur Davíð á Facebook í júlí um sjón­varps­við­tal við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra. „Ég fékk „flashback“ til 2009. Fyrsta hreina vinstri­st­jórnin virt­ist mætt aftur. Þetta frá fólk­inu sem treystir þjóð­inni ekki fyrir horn og allra síst fyrir sann­leik­anum.“

Gagn­rýndi hann stjórn­mála­menn sem vilja „kíkja í pakk­ann“ og kanna hvað sé í boði með aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu áður en samn­ing­ur­inn verði lagður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Nákvæm­lega þetta var reynt þegar sótt var um á sínum tíma. Þá reyndu hins vegar full­trúar ESB í for­undran að útskýra fyrir íslenskum stjórn­mála­mönnum að það væri ekk­ert til sem héti samn­inga­við­ræður við ESB um hvað væri í boði. Ríki sæki um aðild með það að mark­miði að fá inn­göngu. Svo taki við við­ræður þar sem umsókn­ar­ríkið leit­ast við að útskýra fyrir ESB hvernig það ætli að upp­fylla kröfur ESB,“ skrif­aði Sig­mundur Davíð.

„Rík­is­stjórnin veit að Íslend­ingar muni aldrei fall­ast á að ganga í ESB nema það tak­ist að plata þá til þess með blekk­ingum, eitt skref í einu,“ bætti hann við að lokum.

Birtir bréf til kjósenda frá 2009

Benedikt, sem yfir­gaf Sjálf­stæð­is­flokk­inn og stofn­aði Viðreisn á sínum tíma vegna skoð­anna sinn á ESB aðild, birti á Facebook-síðu sinni í gær upp­rifjun á orðum Sig­mundar Davíðs fyrir kosn­ingar vorið 2009 þegar hann var nýorð­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Birtust þau í bréfi til kjós­enda undir yfir­skrift­inni „Evrópa fyrir okkur öll“ og hljóð­uðu svo:

„Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem hefur markað sér skýra stefnu fyrir aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið og skil­greint samn­ings­markið þeirra við­ræðna. Framsókn hefur sett það sem skil­yrði fyrir aðild að full­veldi og óskorað for­ræði yfir auð­lindum þjóð­ar­innar verði grund­vall­ar­krafa í þeim við­ræðum, auk skil­yrða sem lúta m.a. að hags­munum land­bún­aðar og sjáv­ar­út­vegs. Fordæmi eru fyrir slíku í samn­ingum ann­arra þjóða við Evr­ópu­sam­bandið og því alger­lega rangt að halda því fram að þessar kröfur hamli því að af aðild­ar­samn­ingi geti orðið.“

Benedikt bendir á að bréfið hafi verið sent til kjós­enda vorið 2009. „Og hver skyldi hafa skrifað undir það?“

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, vísar til þess í athuga­semd að á þessum tíma, skömmu eftir banka­hrun, hafi stuðn­ingur almenn­ings við Evr­ópu­sam­bands­að­ild verið meiri. „Þegar það var hægt að toga atkvæði til Fram­sóknar um þetta mál, þá var það notað,“ skrifar Björn Leví.

Kjósa
51
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BOO
    Barbara Osk Olafsdottir skrifaði
    Það er annðhvort fyndið eða fáránlegt að lesa fullyrðingar formanns miðflokksins um lygar þingmanna ríkisstjórnarflokkanna þegar komi að kosningum um aðild að Evrópusambandinu. Félagi Íslands í EES, Norska ríkið hefur í tvígang sótt um aðild að ESB, 1972 og 1992. Í bæði skiptin var aðildarsamningum lokið og síðan haldin þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem þjóðin hafnaði aðildinni. Án vandkvæða. Ég hef því miklar efasemdir um sannleiksgildi orða formannsins um að fulltrúar ESB hafi haldið einhverju öðru fram.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár