Vilja vísa veiðigjaldafrumvarpi frá

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks, Mið­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í atvinnu­vega­nefnd hafa lagt fram frá­vís­un­ar­til­lögur um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar sem á að hækka veiði­gjöld.

Vilja vísa veiðigjaldafrumvarpi frá

Önnur umræða um veiði­gjalda­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar hófst á Alþingi í dag.

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks, Jón Gunn­ars­son og Njáll Trausti Frið­berts­son, vilja að mál­inu verði vísað aftur til rík­is­stjórnar. Vísa þeir til þeirrar nið­ur­stöðu Skatts­ins að frum­varpið muni afla rík­is­sjóði meiri tekna en fyrri áætl­anir gerðu ráð fyrir.

„Mat atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins á áhrifum frum­varps­ins mið­aði við að veiði­gjaldið myndi hækka um 7–8 millj­arða kr. en ekki 12,6 millj­arða kr. líkt og útreikn­ingar Skatts­ins sýnir,“ segir í áliti þeirra tveggja í fyrsta minni­hluta atvinnu­vega­nefndar. „Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu, dags. 16. júní sl., kemur fram að útreikn­ingar Skatts­ins séu réttir en ekki þeir sem lágu til grund­vallar við gerð frum­varps­ins. Liggur því fyrir að þær for­sendur sem lágu að baki frum­varp­inu eru brostnar.“

„For­sendur sem lágu að baki frum­varp­inu eru brostnar“

Atvinnu­vega­ráðu­neyti, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti, Skatt­ur­inn og Fiski­stofa sendu á mánu­dag frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu til að útskýra þetta mis­ræmi í útreikn­ingum. Inn í til­tekna útreikn­inga hafi vantað ákveðnar for­sendur frá Fiski­stofu, sem leitt hafi til skekkju í nið­ur­stöðu.

„Atvinnu­vega­ráðu­neytið og starfs­fólk þess hefur upp á síðkastið sætt alvar­legum ásök­unum í tengslum við þetta mál, m.a. um að hafa reynt að afvega­leiða lög­gjafann og að hafa óeðli­leg afskipti af starf­semi stofn­anna rík­is­ins,“ sagði í til­kynn­ing­unni. „Slíkar ásak­anir eru litnar mjög alvar­legum augum og vísa ráðu­neytin þeim alfarið á bug.“

Málið unnið of hratt

Bergþór Ólason úr Mið­flokki og áheyrn­ar­full­trúi nefnd­ar­innar, Þórarinn Ingi Pét­urs­son úr Fram­sókn­ar­flokki, vilja að veiði­gjalda­frum­varp­inu verði vísað frá og næsta mál á dag­skrá tekið fyrir.

„Annar minni hluti atvinnu­vega­nefndar telur nauð­syn­legt að und­ir­búa betur og greina nánar áhrif fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á fyr­ir­komu­lagi veiði­gjalda,“ segir í nefnd­ar­á­liti þeirra tveggja. „Að mati 2. minni hluta er ljóst að núver­andi frum­varp þarfn­ast mun ítar­legri grein­ingar á mögu­legum áhrifum þess á atvinnu­líf, sam­keppn­is­hæfni sjáv­ar­út­vegs og þjóð­ar­búið í heild sinni. Einkum þarf að tryggja að þær breyt­ingar, sem frum­varpið felur í sér, séu í fullu sam­ræmi við stjórn­ar­skrána, sér­stak­lega jafn­ræð­is­reglu 65. gr. og með­al­hófs­reglu stjórn­skip­un­ar­réttar sem felst í 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi eign­ar­réttar.“

Telja þeir málið hafa verið unnið of hratt. „Annar minni hluti telur enn fremur full­kom­lega ótækt að boð­aðar breyt­ingar á nýju fyr­ir­komu­lagi veiði­gjalda taki gildi 1. nóv­em­ber 2025,“ segir í álit­inu. „Slíkur hraði á máls­með­ferð sé í engu sam­ræmi við alþjóð­legar kröfur um fyr­ir­sjá­an­leika og gagn­sæi skatt­kerf­is­breyt­inga og þar með tekju­öfl­unar ríkja. Þá gangi slík máls­með­ferð gegn ákvæðum laga um opin­ber fjár­mál.“

Athuga­semd: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar stóð að veiði­gjöld mundu hækka um 12,6 millj­arða á ári ef frum­varpið yrði sam­þykkt. Þessu er haldið fram í minni­hluta­á­liti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Skatt­inum sem þing­menn­irnir vísa í hefðu veiði­gjöld árið 2024 orðið rúm­lega 7,5 millj­örðum hærri ef breyt­ing­arnar hefðu verið gengnar í gegn.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SK
    Steinar KJARTANSSON skrifaði
    Það sést mjög vel á þessu máli hverjir eru í vasanum á stórútgerðinni. Þessir menn eru ekki að vinna fyrir þjóðina.
    5
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Einfaldara að vísa bara þessum bullukollum frá
    4
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ætli stórútgerðin fari ekki bara beint á hausinn út af veiðigjaldahækkuninni !
    Vona að Hanna Katrín standi við sitt.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár