Engin merki um fjölgun sjálfsvíga

Embætti land­læknis hefur birt nýjar bráða­birgð­ar­tölur um fyrri hluta árs 2024 þar sem fram kemur að eng­inn undir 20 ára aldri hafi fallið fyrir eigin hendi á tíma­bil­inu.

Engin merki um fjölgun sjálfsvíga
Embætti land­læknis Mynd: Bára Huld Beck

Embætti land­læknis segir fjölda sjálfs­víga á Íslandi vera svip­aðan og á fyrri árum. Embættið birti í dag bráða­birgð­ar­tölur um fyrstu sex mán­uði árs­ins 2024 og athygli vekur að á þessu tíma­bili féll eng­inn undir 20 ára aldri fyrir eigin hendi.

„Fjöldi sjálfs­víga fyrstu sex mán­uði árs­ins 2024 var 22 eða 5,7 á hverja 100.000 íbúa,“ segir í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins. „Þessar tölur eru svip­aðar fyrri árum en með­al­fjöldi sjálfs­víga fyrstu 6 mán­uði áranna 2019-2023 var 19 eða 5,3 á hverja 100.000 íbúa. Á þessu fimm ára tíma­bili, 2019-2023, var fjöldi sjálfs­víga fyrstu 6 mán­uði hvers árs á bil­inu 15–25 eða 4,3–6,6 á hverja 100.000 íbúa. Á fyrri hluta árs 2024 féll eng­inn undir 20 ára fyrir eigin hendi.“

Embættið tekur sér­stak­lega fram að vegna fámennis þjóð­ar­innar þá geta litlar breyt­ingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dán­ar­tíðni milli ára. „Talsvert miklar sveiflur þurfa að verða til þess að hægt sé að stað­hæfa að um mark­tæka breyt­ingu sé að ræða,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Því er mik­il­vægt að túlka ekki 6 mán­aða bráða­birgða­tölur sem vís­bend­ingu um aukn­ingu eða sam­drátt á tíðni sjálfs­víga. Embætti land­læknis vinnur, ásamt fjölda sam­starfs­að­ila, að inn­leið­ingu nýrrar aðgerða­á­ætl­unar til að fækka sjálfs­vígum á Íslandi 2025 - 2030 en þar er um að ræða fjöl­þættar aðgerðir.“

Fólki með sjálfs­vígs­hugs­anir er bent á: Píeta sam­tökin, s. 552-2218, Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið 1717.is, Upp­lýs­inga­mið­stöð heilsu­gæsl­unnar, s. 1700, og net­spjallið heilsu­vera.is. Í neyð hringið í 112.

Varðandi stuðn­ing eftir missi í sjálfs­vígi er bent á Upp­lýs­inga­mið­stöð heilsu­gæsl­unnar, s. 1700, og net­spjallið heilsu­vera.is, Sorg­ar­mið­stöð, s. 551-4141, og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is, síma Píeta sam­tak­anna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár