Sanna segir framlög sín gerð tortryggileg að ósekju

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir segir í tölvu­pósti til flokks­manna í Sós­í­alista­flokknum að mán­að­ar­leg fram­lög hennar til Vor­stjörn­unnar hafi verið gerð tor­tryggi­leg að ósekju. „Vor­stjarnan var ekki stofnuð utan um fjár­fram­lög mín til hennar,“ skrif­aði hún á Rauða þráð­inn í vik­unni.

Sanna segir framlög sín gerð tortryggileg að ósekju
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir Borg­ar­full­trú­inn seg­ist greiða mán­að­ar­fram­lag sitt til Vor­stjörn­unnar, ekki til Sós­í­alista­flokks Íslands Mynd: Bára Huld Beck

Heitar umræður um starf Sós­í­alista­flokks­ins hafa gert vart við sig á Rauða þræð­inum – umræðu­vett­vangi Sós­í­alista­flokks Íslands – á ný. Kveikjan er tölvu­póstur Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa flokks­ins, sem sendur var á flokks­fé­laga í vik­unni þar sem þeir voru meðal ann­ars hvattir til að mæta á aðal­fund síðar í mán­uð­inum. 

„Und­an­farna mán­uði hafa ýmsar rang­færslur verið settar fram um flokks­starfið. Fjármál flokks­ins og mán­að­ar­leg fram­lög mín til Vor­stjörnu – styrkt­ar­sjóðs, hafa verið gerð tor­tryggi­leg að ósekju. Þrátt fyrir að ásak­anir stand­ist ekki skoðun, þá hafa þær grafið undan starf­inu, sett vinnu stjórna í upp­nám og haft nei­kvæð áhrif á orð­spor flokks­ins,” skrif­aði Sanna Magda­lena til flokks­manna.

Í póst­inum sagði Sanna einnig að hópur fólks vildi ein­blína á aðhalds­að­gerðir inn á við og auka eft­ir­lit með störfum félaga, sem hún segir ekki leið­ina að árangri. Þess í stað vill hún halda áfram vinnu út á við og beina kraft­inum gegn órétt­læti.

Segir gagnrýnina ekki snúa að Sönnu

Umtals­verð inn­an­búð­ar­á­tök hafa verið í Sós­í­alista­flokknum und­an­farnar vikur, líkt og Heim­ildin hefur fjallað um. En þar hafa skipu­lag og stjórn flokks­ins einkum sætt gagn­rýni.

Því hefur verið haldið fram að hreyf­ing­una skorti lýð­ræði og í henni við­gang­ist fjár­hags­legt ábyrgð­ar­leysi, meðal ann­ars vegna mik­illa styrkja flokks­ins til Sam­stöðv­ar­innar og Vor­stjörn­unnar. Þá hefur Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins, setið undir ásök­unum um ofríki og and­legt ofbeldi.

Óskar Steinn Gestsson svar­aði pósti Sönnu á Rauða þræð­inum og sagði að gagn­rýnin sem fram hefði komið hefði hvorki snú­ist um hana né hennar fram­lag. „Deilan í flokknum snýst ekki um þig heldur hvernig hann [Sós­í­alista­flokk­ur­inn] er skipu­lagður, hvernig það eru ekki til neinir papp­írar um mik­il­væg atriði í fjár­málum flokks­ins og hvernig fólk sem ræður ekki við skapið í sér hefur hrakið ófáa í burtu.” 

Þá sagði hann að gagn­rýnendur væru ekki að biðja um aukið eft­ir­lit með störfum félaga, um stofnun svæð­is­fé­laga á lands­byggð­inni. Gagn­rýnin beind­ist enn fremur frekar að stjórn­un­ar­menn­ingu og stjórn­sýslu í flokknum frekar en Vor­stjörn­unni.

Segja Sönnu nýta sér aðstöðu sína

Aðrir stigu fram og gagn­rýndu Sönnu fyrir að nýta sér aðstöðu sína til að senda póst í nafni flokks­ins til að miðla per­sónu­legum skoð­unum sínum.

„Full­kom­lega óeðli­legt og óvið­eig­andi af þessum póli­tíska leið­toga okkar að mis­nota aðstöðu sína til að senda póst í nafni flokks­ins með ein­hliða per­sónu­legum skoð­unum sínum á innri deilum í flokknum, til að dreifa áróðri og rang­indum, í aðdrag­anda aðal­fundar,“ skrifar Jón Ferd­ín­and Esther­ar­son.

„Að mis­nota með þessum hætti hvatn­ingu til fólks að mæta á aðal­fund held ég að varla megi finna hlið­stæðu, ekki einu sinni í myrk­ustu afkimum Val­hallar,“ skrifar Birna Gunn­laugs­dóttir og segir þennan fjöl­póst Sós­í­alista­flokks­ins til félaga vera með ólík­indum. En hann væri fullur af óheið­ar­leika, lygum og rang­færslum.  

Framlög gerð tortryggileg

Sjálf bendir Sanna á að fram­lög hennar hafi verið gerð tor­tryggi­leg, meðal ann­ars í fjöl­miðlum, og vísar þar til ummæla Sigrúnar Unn­steins­dóttur, stjórn­ar­manns í Vor­stjörn­unni, í Heim­ild­inni.

„Ég skil heldur ekki til­gang­inn með því að stofna þetta félag. Eina skýr­ingin sem ég hef fengið frá Gunnari Smára er að ein­stak­lingur megi ekki styrkja stjórn­mála­flokk um meira en 550 þús­und krónur á ári,“ sagði Sigrún við Heim­ild­ina í vor. En Sanna styrkir Vor­stjörn­una um 1,2 millj­ónir á ári.

„Vor­stjarnan var ekki stofnuð utan um fjár­fram­lög mín til hennar, ég gef hluta af launum mínum því ég vil styrkja Vor­stjörn­una og því mér finnst launin mín fárán­lega há. Ég vil að það sé til öfl­ugur styrkt­ar­sjóður sem styrkir hags­muna­bar­áttu hinna verr settu, þannig að þau geti byggt upp og rekið hags­muna­bar­áttu sína.

Mér finnst ekki upp­byggi­legt að sjá umfjöllun í fjöl­miðlum um að heill styrkt­ar­sjóður eigi að hafa verið stofn­aður til að ég gæti farið á svig við reglur. Að eina mark­miðið með stofnun Vor­stjörn­unnar hljóti að vera að finna leið fyrir mig til að fara á svig við reglur sem gilda í þessu landi. Ég greiði mán­að­ar­fram­lag mitt til Vor­stjörn­unnar, ekki til Sós­í­alista­flokks Íslands,“ skrifar Sanna.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • AÓ
    Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Dæmigerðar árásir á konu í stjórnmálum, sem karlar myndu ekki verða fyrir. Þeir þola bara ekki hvað Sanna er flottur stjórnmálamaður. Ég nota enn orðið maður, þó aðeinhverjir spekingar dæmi það óhæft. Vigdís forseti sagði "ég er maður, því konur eru menn". Maður má semsagt að mínu nota orðið og segja, "maður segir bara sína skoðun".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár