Lífið í kassa

Rótlaus mínimal­ismi er ríkj­andi bygg­ing­ar­stefna.

Lífið í kassa

Bygg­ing­ar­list okkar tíma snýst að miklu leyti um að byggja fleiri og fleiri kassa, sem staflað er upp í mínimal­ískum stíl, stundum með litaflákum hér og þar, en oftar hvítir, gráir eða svartir. 

Frægasti kass­inn er grænn, settur upp við kassa­laga fjöl­býl­is­hús við Álfa­bakka. Liturinn er end­ur­gerð af grænum laufum, stilkum og stráum nátt­úr­unnar, en engar rætur eru á afrit­inu.

Pixlar

Kassar sjást sjaldan í nátt­úr­unni. En þeir eru skil­virkir og hag­kvæmir. Þeir hámarka nýt­ingu svæðis og eru ein­faldir í sam­setn­ingu. Í stýrðu umhverfi tekur aðgerða­stjórnun, stærð­ar­hag­kvæmni og skil­virkni yfir. IKEA sigr­aði heim­inn með því að gera nán­ast alla fram­leiðsl­una sína þannig úr garði að henni mætti stafla og setja í flata kassa.

Hámarks­skil­virkni er að hafa stafl­ana sem hæsta. Þess vegna eru jafn­vel yfir sex hæða blokkir reistar utan um þröngar götur, með skugga­varpi sem ýkist upp við norð­læga legu okkar. Ein ástæðan er að við viljum lækka fast­eigna­verð. En hús­næð­is­kostn­aður hækkar enn um 7% síð­asta árið, þótt nýju eign­irnar selj­ist illa.

Þegar köss­unum fjölgar í ein­faldri og eins­leitri útgáfu getur umhverfið okkar verið pixlað. Raun­veru­leik­inn verður í lít­illi upp­lausn, með fáum smá­at­riðum. Á meðan eykst upp­lausnin á kassa­laga skjáum.

Rann­sóknir sýna að fólki líður best í umhverfi sem er ekki of ein­falt, stórt og eins­leitt, en hefur samt ákveð­inn ramma og umlyk­ingu. Það er til þekk­ing um hvernig þetta er best fyrir okkur. Ein­fald­ast og örugg­ast er hins að byggja hvítu, svörtu og gráu kass­ana. Sem minnir á suðið sem blikk­aði óreiðu­kennt í sjón­varp­inu þegar engin stöð náð­ist. Stundum eru litir not­aðir til að aðgreina sams konar sam­liggj­andi blokkir, þannig að minnir á gömlu stilli­mynd­ina í sjón­varp­inu, þegar stöðin náð­ist en ekk­ert var á dag­skrá.

Yfirtaka mínimal­isma                                      

Und­ir­liggj­andi er kvarði milli strúkt­úrs og óreiðu. Stýr­ingar og nátt­úru. Það kostar meira að byggja hús á mann­legum skala, í marg­slungn­ara formi en kassa og með smá­at­riðum sem auðga upp­lifun, með örlítið minni stöflun.

Leik­ritið Inn­kaupa­pok­inn, sem hefur verið sýnt á litla svið­inu í Borg­ar­leik­hús­inu síð­ustu vikur, fjallar í aðra rönd­ina um átök og and­stæður strúkt­úrs og óreið­unnar, og þess sem við verðum og þess sem við viljum.

Inn­kaupa­pok­innFriðgeir Ein­ars­son í hlut­verki inn­kaupa­pokans, sem er tákn raun­veru­leik­ans í töfra­leik­rit­inu eftir Elísa­betu Jök­uls­dóttur og leik­hóp­inn Krið­pleir.

Verkið byggir á skáld­sögu Elísa­betar Jök­uls­dóttur, Mundu töfrana, sem erfitt hafði reynst að forma í sviðs­lista­verk. Þar segir frá barni sem fest­ist í Töfra­garð­inum, og svo frá þrúg­andi þunga inn­kaupa­pokans, sem gerir stöðugar kröfur. Hann er full­trúi raun­veru­leik­ans, en barnið lifir í töfr­unum.

Sjálf bjó Elísabet í litlu ein­býl­is­húsi við Fram­nes­veg í Vesturbæ Reykja­víkur, þegar ákveðið var að stofna þétt­ing­ar­reit við hlið þess, sem nú heitir Granda­torg og er skugg­sæll, steyptur inn­garður umkringdur boga­húsi og stórum, kolsvörtum kössum.

Einn kostur mínimal­ism­ans í skipu­lagi og lífs­stíl er að hann auð­veldar okkur að rífa okkur upp og koma fyrir ann­ars staðar. Rætur hafa ekki gildi þegar eina mark­miðið er skil­virk upp­bygg­ing, eða strúktúr.

Hámörkun stærð­ar­hag­kvæmni, hlut­falls­legra yfir­burða í fram­leiðslu og skil­virkni, færir okkur fjær rótum okkar sem líf­vera. Við viljum varla vera sam­gróin gras­rót­inni, búa aftur undir torfi, en íbúðir og götur í reglu­bundnum skugga eru ekki íveru­staðir fyrir líf­verur eins og okkur.

Firring og nostal­gía

Þegar fólk tengir ekki við dag­legt umhverfi sitt getur það verið hluti af því sem félags­fræðin kallar firr­ingu. Hún á sér margar hliðar. Í Banda­ríkj­unum leiddi önnur firr­ing, sam­hliða vímu­efna­neyslu og lækk­andi lífaldri, til stökk­breyt­ingar MAGA-hreyf­ing­ar­innar og trump­isma, sem spratt upp úr ann­ars konar rót­leysi og nostal­gíu.

Margir Íslend­ingar fyllt­ust róm­an­tískum sökn­uði yfir sjón­varps­þátta­röð­inni Ver­búð­inni 2021, sem fjöll­uðu um hið óreiðu­kennda og ófull­komna líf níunda ára­tug­ar­ins á lands­byggð­inni.

Nú þegar er komin upp arki­tekta­upp­reisn á Norð­ur­lönd­unum, sem hefur teygt sig til Íslands, gegn rót­leysi og and­leysi nútíma­arki­tekt­úrs og skipu­lags.

Eftir því sem hæð­unum fjölgar og skugg­arnir lengj­ast fer okkur að lengja eftir fyrri tíð og tengslum.

Þétting byggðar, sem er um leið for­senda blóm­legs götu­lífs og almenn­ings­sam­gangna, er ekki það eina sem getur rofið tengsl okkar við umhverfið, heldur líka and­legt ber­angur skil­virks mínimal­isma: Eins­leitnin, ein­fald­leik­inn, og skortur á nátt­úru­legum svæðum fyrir almenn­ing. Þar sem er alger regla og engin óreiða lifa engir töfrar. 

Mundu töfranaRit­höf­und­ur­inn Elísabet Jök­uls­dóttir átti hús við Fram­nes­veg. Nýbyggðir svartir kassar eru nú í umhverf­inu.
Granda­torgHús rit­höf­und­ar­ins Elísa­betar Jök­uls­dóttur er fremst með rauðu þaki. Hún flutti þaðan 2020 til Hvera­gerðis.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár