Forðast ólgu svo það sé áfram gaman í Samfylkingunni

Sam­fylk­ing­ar­fólki hefur tek­ist að halda aftur af ólgu og upp­gjöri innan eigin raða því flokks­fé­lagar vilja öðru fremur að flokk­ur­inn við­haldi góðu gengi. Fyrr­ver­andi ráð­herra líkir tökum Kristrúnar Frosta­dóttur á stjórn flokks­ins við stöðu Davíðs Odds­sonar á síð­ustu öld. Flokks­menn eru þó mis­sáttir við stöðu Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra.

Forðast ólgu svo það sé áfram gaman í Samfylkingunni
Dagur B. Egg­erts­son sagð­ist hafa gert ráð fyrir að verða þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar en það emb­ætti féll öðrum í skaut. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Ég get ekki séð nema það sé hörku­stemn­ing fyrir þessu,“ segir Sigfús Ómar Hösk­ulds­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík, um lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar sem hefst í dag. Þetta er fyrsti lands­fundur eftir að Kristrún Frosta­dóttir – sem er ein í fram­boði til for­manns á fund­inum – leiddi jafn­að­ar­menn aftur inn í rík­is­stjórn. 

Það virð­ist ekki stefna í mikil átök um emb­ætti á fund­inum. Þó er ekki hægt að full­yrða um það, en fram­boðs­frest­ur­inn fyrir önnur emb­ætti en for­mann­inn rennur út síð­degis í dag, föstu­dag. Undir yfir­borð­inu hafa þó kraumað átök og hafa þau að ein­hverju leyti hverfst um stöðu Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, sem við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar innan úr flokknum segja að sé haldið á mott­unni. 

Það vilji þó eng­inn skemma stemn­ing­una og ásýnd sam­heldni með neins konar upp­gjöri. Ekki heldur Dagur, sem þó er ein­angr­aður innan þing­flokks­ins. 

Heim­ildin heyrði í fólki víðs vegar í flokknum til að taka …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár