Sendu skip til Grænlands

Hinn 10. apríl 1940, dag­inn eftir að Þjóð­verjar her­námu Danmörku, sendi banda­ríska strand­gæslan skip til Græn­lands. Um borð voru James K. Penfield, nýút­nefndur ræð­is­maður, og full­trúi Rauða kross­ins. Síðar það sama ár hreyfði varaut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna hug­mynd­inni um banda­rískar her­stöðvar í land­inu. Áhugi Banda­ríkja­manna á Græn­landi er sem sé ekki nýr af nál­inni.

Þegar Þjóð­verjar her­námu Danmörku í apríl 1940 var Henrik Kauff­mann (1888–1963) sendi­full­trúi Dan­merkur í Banda­ríkj­unum. Hann var lög­fræð­ingur að mennt og hafði verið sendi­ráðs­rit­ari í New York, Beijing, Berlín, Róm og Ósló áður en hann var skip­aður sendi­full­trúi í Washington.

Í kjöl­far her­náms Þjóð­verja til­kynnti Henrik Kauff­mann að fram­vegis myndi hann ekki hlýða skip­unum frá dönsku rík­is­stjórn­inni sem vann með þýska her­námslið­inu. 

Hinn 9. apríl 1941 und­ir­rit­uðu Henrik Kauff­mann og full­trúar banda­rískra stjórn­valda varn­ar­sam­komu­lag, „For­svar­saftale for Grønland“, sem Danir kalla iðu­lega Kauff­mann­samn­ing­inn. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að Banda­ríkin fengju leyfi til að leggja her­flug­velli og byggja hafnir á Græn­landi, ásamt her­stöðvum. Þennan samn­ing gerði Henrik Kauff­mann, með sam­þykki kon­ungs, en án sam­þykkis dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Hann var settur af og ákærður fyrir land­ráð. Honum var skipað að snúa heim til Dan­merkur en hann hlýddi ekki þeirri fyr­ir­skipun og var áfram í Washington, með sam­þykki banda­rískra stjórn­valda.

Danska stjórnin til­kynnti Banda­ríkja­stjórn að Kauff­mann starf­aði ekki í hennar umboði og hefði til þess engar heim­ildir. Í svari banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ans 14. apríl 1941 sagði að Banda­ríkin við­ur­kenndu Kauff­mann sem full­trúa Dan­merkur.

Sagn­fræð­ingar hafa síðar bent á að Banda­ríkja­stjórn hafi séð sér hag í að taka þessa afstöðu, Kauff­mann gæti nýst henni vel.

Þremur dögum eftir að Kauff­mann hafði und­ir­ritað varn­ar­sam­komu­lagið 1941 hafði hann sam­band við umboðs­menn (lands­fogede) dönsku stjórn­ar­innar á Græn­landi (þeir voru tveir) og sagði þeim að hann liti á sig sem full­trúa Græn­lands varð­andi sam­skipti við erlendar þjóðir. Umboðs­menn­irnir voru ekki sáttir við þetta en fengu lítt að gert. Kauff­mann kom á lagg­irnar sér­stakri Græn­lands­nefnd en verk­efni hennar var að tryggja flutn­ing á nauð­synjum til Græn­lands og sömu­leiðis útflutn­ing frá land­inu.

Millibilsstjórnin

Við upp­gjöf Þjóð­verja í síð­ari heims­styrj­öld­inni var skipuð milli­bils­stjórn (befri­el­ses­reger­ing) í Danmörku. Stjórnin var skipuð full­trúum stjórn­mála­flokk­anna og and­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar, for­sæt­is­ráð­herra var Vilhelm Buhl. Í stjórn­inni sátu 18 ráð­herrar, 4 þeirra án ráðu­neytis, einn þeirra var Henrik Kauff­mann. Stjórnin sat frá 5. maí 1945 til 11. nóv­em­ber sama ár.

Meðal verk­efna stjórn­ar­innar var að koma í veg fyrir að gripið yrði til handa­hófs­kenndra refs­inga gegn þeim Dönum sem unnið höfðu með Þjóð­verjum, átt við þá við­skipti eða stutt her­námsliðið. Það má geta þess að sama dag og stjórnin tók til starfa var Guð­mundur Kamban rit­höf­undur skot­inn til bana í Kaup­manna­höfn.

Henrik Kauff­mann var full­trúi dönsku rík­is­stjórn­ar­innar á San Francisco-ráð­stefn­unni svo­nefndu í júní 1945, þar voru lögð drög að stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hann var jafn­framt skip­aður sendi­full­trúi Dan­merkur og sendi­herra Dan­merkur frá 1947 og gegndi þeirri stöðu þangað til hann fór á eft­ir­laun árið 1958.

Krýólít-náman

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils kom James K. Penfield (1908–2004), nýskip­aður ræð­is­maður Banda­ríkj­anna, til Græn­lands í maí 1940. Til­gang­ur­inn með skipan hans og kom­unni til Græn­lands var að tryggja áhrif Banda­ríkj­anna á Græn­landi og koma í veg fyrir að Bretar og Kanada­menn næðu þar ítökum. En til­gangur með skipan ræð­is­manns­ins var ekki síður að tryggja aðgang Banda­ríkja­manna að krýíólít-námu í Ivittuut á Suð­vestur-Græn­landi.

Krýólít (málm­steinn) er mik­il­vægt hrá­efni í gerð áls og náman í Ivittuut þess vegna mik­il­væg. Mikið magn krýólíts var á styrj­ald­ar­ár­unum flutt til Banda­ríkj­anna þar sem það var notað við fram­leiðslu her­flug­véla. Ræð­is­mað­ur­inn Penfield skipu­lagði strax eftir kom­una til Græn­lands áætlun um varnir námunnar í Ivittuut, með her­valdi. Penfield hélt síðan til Nuuk til að koma þar á fót ræð­is­manns­skrif­stofu.

Kanada­menn höfðu líka mik­inn áhuga á krýíó­lít­inu og opn­uðu ræð­is­manns­skrif­stofu í Nuuk árið 1940. Banda­ríkja­menn hófu bygg­ingu her­stöðvar í Ivittuut árið 1941, hún fékk nafnið Kangil­innguit og hlut­verk hennar var að vernda krýólít-námuna. Danir tóku síðar við stöð­inni en krýólít-námunni var lokað 1987.

Voru fljótir til

Þegar eftir und­ir­skrift varn­ar­sam­komu­lags­ins í apríl 1941 hófu Banda­ríkja­menn und­ir­bún­ing við að koma upp her­stöðvum á Græn­landi. Þremur mán­uðum síðar, 6. júlí, komu all­mörg flutn­inga­skip hers­ins með alls kyns búnað til Narsarsuaq á Suður-Græn­landi og strax um haustið var þar kom­inn flug­völlur með til­heyr­andi bygg­ingum, þar á meðal sjúkra­húsi. Banda­ríkja­menn nefndu flug­völl­inn Bluie West One (BW1), en Bluie West heitið not­uðu þeir um flug-, her- og flota­stöðvar á vest­ur­strönd Græn­lands. Núm­era­röðin var hlaup­andi og næsta stöð fékk heitið BW2 og svo fram­vegis. Stöðvar á aust­ur­strönd­inni nefnd­ust Bluie East og voru núm­er­aðar á sama hátt.

Flug­völl­ur­inn í Narsarsuaq var tek­inn í notkun í árs­byrjun 1942 og varð mik­il­vægur við­komu­staður banda­rískra her­flug­véla á leið þeirra til Evrópu. Stórum elds­neyti­stönkum var komið fyrir við flug­völl­inn og Narsarsuaq er enn í dag við­komu­staður smærri flug­véla, á leið yfir hafið. Það er til marks um umsvifin í kringum flug­völl­inn og her­stöð­ina, ekki síst sjúkra­húsið, að banda­rískir starfs­menn voru um 4 þús­und tals­ins þegar mest var. Á árunum 1941–1943 komu Banda­ríkja­menn upp 9 her­stöðvum (sumar þeirra veð­ur­at­hug­un­ar­stöðvar) á vest­ur­strönd Græn­lands. Á aust­ur­strönd­inni urðu Bluie East stöðv­arnar sam­tals 5.

Kauptilboð og varnarsamningur

Á árunum eftir síð­ari heims­styrj­öld urðu miklar umræður um hlut­verk Banda­ríkj­anna á Græn­landi meðal danskra þing- og emb­ætt­is­manna. Varn­ar­samn­ing­ur­inn frá 1941 hafði gefið Banda­ríkja­mönnum leyfi til að setja upp her­stöðvar á Græn­landi án þess að bera það undir og leita sam­þykkis Dana. Þetta þótti mörgum veita Banda­ríkja­mönnum allt of frjálsar hendur í land­inu.

Árið 1946 gerðu Banda­ríkja­menn Dönum til­boð um að kaupa Grænland. Því til­boði var umsvifa­laust hafnað. Í fram­haldi var hafin vinna við nýjan varn­ar­samn­ing, ætl­unin með honum var að auka áhrif Dana varð­andi varnir Græn­lands. Danir voru meðal stofn­enda Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO, árið 1949 og tveimur árum síðar, 27. apríl, var nýr varn­ar­samn­ingur milli Dan­merkur og Banda­ríkj­anna und­ir­rit­aður. Danska þingið, Rigs­dagen eins og það hét þá, sam­þykkti samn­ing­inn 8. júní 1951. Í samn­ingnum var kveðið á um nán­ari sam­vinnu Dana og Banda­ríkja­manna í varnar- og örygg­is­málum.

Thule-herstöðin

Tveimur dögum áður en „nýi“ varn­ar­sam­ing­ur­inn tók gildi lögðu rúm­lega 100 full­hlaðin flutn­inga­skip af stað frá Banda­ríkj­unum. Ferðinni var heitið til Thule á norð­vest­ur­strönd Græn­lands. Thule var gam­all versl­un­ar­staður og þar bjuggu um 120 manns sem lifðu fyrst og fremst af veiðum. Í síð­ari heims­styrj­öld­inni kom banda­ríski her­inn þarna upp veð­ur­at­hug­un­ar­stöð. Þarna höfðu banda­rísk stjórn­völd, í sam­vinnu við Dani, ákveðið að setja niður her­stöð sem fékk síðar heitið Thule Air Base.

Ekki var opin­ber­lega greint frá þess­ari fram­kvæmd, sem kölluð var Operation Blue Jay, fyrr en haustið 1952. Fram­kvæmdum var að mestu lokið 1953, þá höfðu verið reist hús sem gátu hýst 12 þús­und manns, stórir elds­neyt­is­geymar og flug­völlur. Íbúarnir sem búið höfðu á svæð­inu voru neyddir til að flytja á annað svæði um það bil 130 kíló­metrum norðar. Þeir fengu aðeins 4 daga til að und­ir­búa flutn­ing­inn.

Þessar aðfarir, eins og danskir fjöl­miðlar hafa kom­ist að orði, hafa á síð­ari árum verið harð­lega gagn­rýndar. Mála­ferli vegna þess­ara flutn­inga stóðu árum saman, með hléum. Árið 1999 dæmdi Eystri-Lands­réttur í Danmörku Thule­bú­unum og afkom­endum þeirra bætur, sem voru aðeins brot af því sem farið var fram á. Hæsti­réttur Dan­merkur stað­festi dóm­inn árið 2003.

Kjarnorkuvopn

Árið 1956 ákváðu Banda­ríkja­menn að koma fyrir eld­flaugum (Nike -Hercules) til loft­varna í Thule-her­stöð­inni. Í nóv­em­ber árið 1957 spurði sendi­herra Banda­ríkj­anna danska for­sætis- og utan­rík­is­ráð­herr­ann H. C. Hansen hvort danska rík­is­stjórnin óski eftir að verða til­kynnt ef komið verði fyrir kjarn­orku­vopnum í Thule. For­sæt­is­ráð­herr­ann svar­aði, í bréfi sem ekki var gert opin­bert fyrr en árið 1995, að Danir óski ekki eftir að verða spurðir. Þetta svar jafn­gilti leyfi til að koma fyrir kjarn­orku­vopnum í her­stöð­inni.

Síðar hefur komið fram að á árunum 1959–1965 voru að minnsta kosti 48 kjarn­orku­hleðslur geymdar í Thule-stöð­inni. Í lok maí árið 1968 var kveðið á um, í sér­stakri við­bót við varn­ar­samn­ing­inn frá 1951, að ekki mættu vera kjarn­orku­vopn á dönsku land­svæði. Í jan­úar sama ár hafði banda­rísk her­flug­vél af gerð­inni B-52 brot­lent við Thule-her­stöð­ina með þeim afleið­ingum að plút­ón­íum úr fjórum vetn­is­sprengjum dreifð­ist um stórt svæði.

Thule Air Base varð Pituffik Space Base

Upp­haf­lega var Thule Air Base elds­neyt­is­birgða­stöð fyrir banda­ríska her­inn, og þar voru um tíma 10 þús­und her­menn. Árið 1960 var starf­semi Thule-her­stöðv­ar­innar breytt og hún hefur síðan fyrst og fremst verið rat­sjár­stöð. Nokkrir stórir rat­sjár­skermar voru þá settir upp á svæð­inu, sá stærsti álíka stór og fót­bolta­völlur sem lagður hefði verið á hlið­ina eins og einn danskur fjöl­mið­ill orð­aði það.

Nafni her­stöðv­ar­innar var breytt árið 2023 og hún heitir nú Pituffik Space Base og teng­ist svo­nefndum geim­her Banda­ríkj­anna. Pituffik er græn­lenska heitið á svæð­inu þar sem her­stöðin var reist.

Í Pituffik Space Base-stöð­inni eru nú um það bil 150 banda­rískir her­menn en auk þess eru þar danskir og græn­lenskir starfs­menn.

Pituffik er í dag eina her­stöð Banda­ríkja­manna á Græn­landi.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár