Forstjóri klórar sér í höfðinu vegna hagræðingartillögu

For­stjóri Nýsköp­un­ar­sjóðs Kríu gerir sér ekki grein fyrir því hvernig ríkið ætlar að ná 9,7 millj­arða hag­ræð­ingu með því að leggja niður sjóð­inn. Þá telur hún það ekki vita á gott að setja eignir sjóðs­ins á bruna­út­sölu.

Forstjóri klórar sér í höfðinu vegna hagræðingartillögu
Hag­ræð­ingar kynntar Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um hag­ræð­ing­ar­til­lög­urnar ásamt starfs­hópi fyrr í vik­unni. Mynd: Golli

„Við klórum okkur í hausnum yfir þessu,“ segir for­stjóri Nýsköp­un­ar­sjóðs­ins Kríu (NSK), Hrönn Greips­dóttir, sem starfs­hópur for­sæt­is­ráð­herra um hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri leggur til að verði lagður niður. Starfs­hóp­ur­inn kynnti sex­tíu hag­ræð­ing­ar­til­lögur á fundi hóps­ins í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á þriðju­dag og var mark­miðið að hag­ræða um 71 millj­arð á fimm árum. Alls fór hóp­ur­inn í gegnum tíu þús­und til­lögur á óvenju skömmum tíma, eða á rúmum mán­uði. 

48 milljarða sparnaður

Þrjár til­lögur eru mest afger­andi af þeim sem hafa verið kostn­að­ar­metnar og sam­an­lagður sparn­aður þeirra er rétt undir 70 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð­inni. Það er sparn­aður í opin­berum inn­kaupum um 2 pró­sent, sem á að spara skatt­greið­endum 30 millj­arða á fimm árum. Átta millj­arðar eiga að spar­ast með fagráði um for­gangs­röðun í heil­brigð­is­kerf­inu. Og næst­stærsta sparn­að­ar­til­lagan er að leggja niður Nýsköp­un­ar­sjóð­inn Kríu sem á að spara um tíu millj­arða á umræddu tíma­bili.

„Það gagn­ast aug­ljós­lega engum að setja …
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár