Stjórn Íslandsbanka afþakkar pent samruna við Arion

Ekki verður af sam­runa Arion banka og Íslands­banka eftir að stjórn þess síð­ar­nefnda afþakk­aði boð um að hefja sam­runa­við­ræður. Stjórnin bank­ans seg­ist hafa skoðað málið vel og kom­ist af þess­ari nið­ur­stöðu.

Stjórn Íslandsbanka afþakkar pent samruna við Arion
Fram veg­inn Jón Guðni Ómarsson er banka­stjóri Íslands­banka, sem verður rek­inn áfram í óbreyttri mynd, þrátt fyrir hug­myndir stjórn­enda Arion banka um sam­ein­ingu. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Íslands­banki og Arion banki munu ekki sam­ein­ast á næst­unni. Stjórn Arion banki hafði farið þess á leit við stjórn Íslands­banka að teknar yrðu upp sam­runa­við­ræður á milli bank­anna tveggja. Íslenska ríkið er stærsti ein­staki eig­andi Íslands­banka en líf­eyr­is­sjóðir og einka­fjár­festar eru eig­endur Arion banka. 

Í til­kynn­ingu sem bank­inn birti nú undir kvöld segir að stjórnin hafi fjallað vand­lega um málið og eftir þá ítar­legu yfir­ferð og grein­ingu hafi nið­ur­staðan verið að hefja ekki sam­runa­við­ræður. Boð Arion banka um við­ræður með það að marki að taka yfir Íslands­banka barst sama dag og til­kynnt var um fyr­ir­komu­lag sölu á eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í bank­anum. 

„Stjórn bank­ans þakkar Arion fyrir sýndan áhuga á sam­runa við Íslands­banka,“ segir í til­kynn­ingu stjórnar Íslands­banka. 

Þegar greint var frá hug­myndum Arion banka stigu fjöl­margir fram og lýstu yfir efa­semdum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár