Svona græddu allir bankarnir milljarða
Pen­inga­straumur Íslensku bank­arnir gerðu það gott á nýliðnu ári og munu millj­arða­tugir streyma frá þeim og til eig­enda vegna árang­urs­ins. Mest fer til rík­is­ins og líf­eyr­is­sjóð­anna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Svona græddu allir bankarnir milljarða

Íslensku við­skipta­bank­arnir fjórir, Lands­banki, Íslands­banki, Arion banki og Kvika, græddu sama­lagt 96 millj­arða króna. Allir hafa þeir skilað upp­gjöri og vilja stjórnir þeirra greiða eig­endum sínum meira en 50 millj­arða króna í arð. Íslenska ríkið og líf­eyr­is­sjóðir eru langstærstu eig­endur íslenska banka­kerf­is­ins og mega því vænta stærsta hluta arðs­ins.

Íslensku bank­arnir fjórir, sem veita almenn­ingi banka­þjón­ustu í ein­hverri mynd, græddu sam­tals 96 millj­arða króna á síð­asta ári. Það er 8,5 millj­örðum meira en þeir græddu árið áður. Bank­arnir hafa einu sinni áður frá hruni grætt jafn­mikið.

Mestur hagn­aður var af rekstri Lands­bank­ans, sem einn og sér skil­aði 37,5 millj­arða króna hagn­aði. Það er mesti hagn­aður bank­ans frá hruni. Bankinn er að nær öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins og stendur til að greiða helm­ing hagn­að­ar­ins í rík­is­sjóð í formi arðs. Íslands­banki, sem er líka að stórum hluta í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 24,2 millj­arða króna. Stjórn bank­ans vill greiða hlut­höfum 12,1 millj­arð í arð, í sam­ræmi við stefnu bank­ans um að greiða út helm­ing hagn­aðar í lok árs. Íslenska ríkið enn á rúm­lega 40 pró­senta hlut í bank­anum.

Arion banki skil­aði 26 millj­arða króna hagn­aði, sem er besta nið­ur­staða bank­ans síðan 2021. Það munar þó ekki …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Það var talað um að bankarnir hefðu hagnast um 100 milljarða hver á síðasta ári ..þetta eru vitlausar tölur !! hvað eru þessir Bankar búnir að byggja og kaupa eða fjárfesta á síðasta ári ! Hér er ekki minnst á 28 milljarða hagnað Landbankans sem afskifast í ónýtt Tryggingarfélag. TM sem fellur vegna þess að núna fækkar tilboðum Banka til að bjóða TM arðbær innlánsviðskipti um EINN s.s Landsbankans. hvernig væri að fjalla um stærstu fjárfestingar allra Bankana á síðast ári !
    0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Þetta er eins og „hagnaður“ í Húsfélagi. Hagnaðurinn er bara tilkominn vegna þess að almenningur (eigendurnir) ofborga allan kostnað og vexti!
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Bankarnir þrír sem voru reistir á grunni hinna föllnu banka hafa ekki hagnast samanlagt um tæplega 990 milljarða króna frá hruni heldur meira. Samkvæmt birtum ársreikningum þeirra um 1.007,5 milljarðar króna. Hlutfallslega munar ekki miklu þar á en rétt skal það þó vera.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Það þarf auðvitað að fjármagna bruðlið oraðsiuna og gjafagerningana til erlendu eigenda Íslands.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár