Skrifað undir samning og kennaraverkföllum aflýst

Við­ræðu­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands hefur skrifað undir samn­ing við ríki og sveit­ar­fé­lög og hefur öllum verk­föllum KÍ verið aflýst. Samn­ing­ur­inn verður kynntur félags­fólki á næstu dögum.

Skrifað undir samning og kennaraverkföllum aflýst

Við­ræðu­nefnd Kenn­ara­sam­bands Íslands skrif­aði á tólfta tím­anum í gær undir sam­eig­in­legan kjara­samn­ing aðild­ar­fé­laga KÍ við ríki og sveit­ar­fé­lög. Verk­föllum sam­bands­ins er þar með aflýst.

Samn­ing­ur­inn gildir til fjög­urra ára og felur í sér um 24% launa­hækkun á tíma­bil­inu. Í samn­ingnum er einnig for­sendu­á­kvæði sem kenn­arar höfðu lagt áherslu á en nokkrar deilur höfðu staðið um.

Kjara­samn­ingur verður kynntur félags­fólki á næstu dögum og hann bor­inn undir atkvæði félags­fólks. Nánara fyr­ir­komu­lag verður kynnt innan skamms. Nið­ur­staða atkvæða­greiðslu þarf að liggja fyrir 4. mars næst­kom­andi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá KÍ.

Vegna þessa hefur öllum fyr­ir­hug­uðum og yfir­stand­andi verk­föllum Kenn­ara­sam­bands­ins verið aflýst. Félags­menn KÍ sem starfa í Borg­ar­holts­skóla, Mennta­skól­anum á Akureyri, Verk­mennta­skól­anum á Akureyri, Verk­mennta­skóla Aust­ur­lands, Fjöl­brauta­skóla Snæ­fell­inga, Tón­list­ar­skóla Akur­eyrar hafa verið í verk­falli frá 21. febr­úar. Félags­menn KÍ í Leik­skóla Snæ­fells­bæjar hafa verið í verk­falli frá 1. febr­úar.

Einnig höfðu verið boðuð ótíma­bundin verk­föll í leik­skólum í sveit­ar­fé­lög­unum Kópavogi, frá 3. mars, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­stað, frá 17. mars og Fjarða­byggð frá 24. mars og tíma­bundin verk­föll í grunn­skólum í sveit­ar­fé­lög­unum Akra­nes­kaup­stað, Hvera­gerð­isbæ og Ölfusi, 3. mars, sem einnig er aflýst

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár