Alfreð Erling vildi ekki tjá sig um daginn sem hjónin létust

Alfreð Erling Þórð­ar­son, sem ákærður er fyrir að hafa svipt eldri hjón lífi í Nes­kaup­stað í ágúst­mán­uði, vildi ekki tjá sig um sak­ar­efnið við upp­haf aðal­með­ferðar máls­ins í morgun. „Ég sé bara ekki ástæðu til þess,“ sagði hann í dóm­sal.

Alfreð Erling vildi ekki tjá sig um daginn sem hjónin létust
Alfreð Erling þegar hann yfir­gaf Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í morgun. Mynd: Golli

Aðal­með­ferð hófst í morgun í máli gegn Alfreð Erling Þórð­ar­syni sem er ákærður fyrir að hafa orðið eldri hjónum að bana í Nes­kaup­stað þann 21. ágúst síð­ast­lið­inn. Í úrskurði Lands­réttar um gæslu­varð­hald yfir Alfreð Erling var vitnað í mat geð­læknis sem segir hann hafa stjórn­ast af alvar­legu geð­rofi og séu veik­indi hans lang­vinn. Til að hafa stjórn á þeim þurfi hann vistun á við­eig­andi stofnum.

Aðal­með­ferðin er rekin fyrir Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands en þing­haldið fer fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. 

Alfreð er ákærður fyrir mann­dráp svipt hjónin Björgvin Ólaf Sveins­son og Rósu Bene­dikts­dóttur lífi, þar sem þau voru stödd á heim­ili sínu. Samkvæmt ákæru veitt­ist Alfreð að þeim báðum inn­an­dyra með hamri og sló þau bæði oft með hamr­inum, einkum í höfuð, allt með þeim afleið­ingum að þau hlutu bæði umfangs­mikla og alvar­lega áverka á höfði, þar á meðal ítrekuð brot á höf­uð­kúpum og áverka á heila og smærri áverka á öðrum hlutum lík­ama en þau lét­ust bæði af völdum áverka á höfði.

Fjögur börn hjón­anna krefj­ast sam­tals um 45 millj­óna í miska­bætur.

Hann er einnig ákærður fyrir vopna­laga­brot, með því að hafa sunnu­dag­inn 12. maí 2024 utandyra við Kaupvang á Egils­stöðum haft í vörslum sínum á almanna­færi hníf með 15 sm blað­lengd.

Var í næstum engum samskiptum við hjónin

Alfreð Erling kom í dóm­sal í fylgd lög­reglu­manna íklæddur jogg­ing­buxum og vín­rauðri hettu­peysu. Hann hélt á hálf­drukk­inni kók­flösku og tal­aði í lágum hljóðum þegar á hann var yrt.

Hann var meðal ann­ars spurður út í sam­band sitt við hin látnu en hann svar­aði því að þau hefðu átt sauðfé á sveitabæ for­eldra hans. Þá væri hann kunn­ingi barna þeirra. Annars hefði hann ekki verið í sam­skiptum við þau.

Alfreð afþakk­aði að tjá sig um sína per­sónu­legu hagi eða sögu sína um and­leg veik­indi. Þá vís­aði hann í það sem kæmi fram í lög­reglu­skýrslu þegar hann var inntur eftir því hvað hefði átt sér stað á umræddum degi í ágúst 2024. „Ég sé bara ekki ástæðu til þess,“ sagði hann þegar hann var spurður hvers vegna hann vildi ekki tjá sig umfram það sem hefði komið fram í skýrslu­töku.

Hlé var gert á þing­haldi eftir að ljóst var að Alfreð Erling myndi ekki svara frek­ari spurn­ingum, á meðan beðið var eftir vitnum sem vænt­an­leg væru fyrir dóm­inn.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Hörmulegt mál. Og ef maðurinn var með langvinnan geðsjúkdóm er þá ekki spurning af hverju enginn í þessu litlu samfélaginu tók eftir því að honum versnaði...að hann fór í geðróf?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár