Framtíð Sýrlands eftir valdaránið

Ný rík­is­stjórn Sýrlands, undir for­ystu Hay‘at Tahrir al-Sham (HTS), súnní íslamískra sam­taka, hefur sam­þykkt að allir vopn­aðir upp­reisn­ar­hópar í land­inu verði leystir upp. Nýtt fólk, hlið­hollt HTS, hefur verið skipað í æðstu hern­að­ar­stöður lands­ins, þar á meðal í varn­ar­mála­ráðu­neytið og leyni­þjón­ust­una eftir fall Assad-stjórn­ar­innar.

Framtíð Sýrlands eftir valdaránið

Forseti Sýrlands eftir valdaránið, Ahmed al-Sharaa, einnig þekktur sem Abu Muhammad al-Julani, átti fundi með erlendum sendi­nefndum sem komu til Damaskus. Hann til­kynnti þá ákvörðun að lýð­ræð­is­legar for­seta­kosn­ingar yrðu haldnar eftir fjögur ár og ítrek­aði að Sýrland myndi ekki ógna öðrum löndum.

Skömmu eftir valda­rán Hay‘at Tahrir al-Sham yfir stjórn Assad brut­ust út hörð átök á milli örygg­is­sveita nýja stjórn­ar­hers HTS og Alawíta vegna ásak­ana um að íslamskur öfga­hópur, hlið­hollur HTS, hefði kveikt í helgi­dómi Alawíta. Alawítar eru sami trú­arminni­hluta­hópur og Assad-fjöl­skyldan til­heyrir, sem var steypt af stóli á dög­unum. Stjórn­völd í Damaskus héldu því fram að Íran hefði kynt undir óeirð­unum með það að mark­miði að skapa glund­roða í Sýrlandi.

Leið­tog­innAhmend al-Sharaa er leið­togi sýr­lenska ísla­mista­hóps­ins Hayat Tahrir al-Sham sem stýrði árás sem felldi stjórn­ina. Hann ávarpar hér mann­fjölda í mosku í Damaskus þann 8. des­em­ber 2024.
…
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár