Draugar, lifandi og dánir

„Köttur á heitu blikk­þaki eftir Tennessee Williams er klassík af betri gerð­inni og birt­ist nú á Litla sviði Borg­ar­leik­húss­ins í glæ­nýrri þýð­ingu Jóns St. Krist­jáns­sonar undir leik­stjórn Þorleifs Arnar Arn­ars­sonar,“ skrifar leik­hús­gagn­rýn­and­inn Sigríður Jóns­dóttir sem rýnir í verkið og segir það bestu leik­sýn­ingu árs­ins til þessa.

Draugar, lifandi og dánir
Katla Margrét Þor­geirs­dóttir og Hilmir Snær Guðnason Leik­hóp­ur­inn fram­kvæmir leik­hús­galdur sem er sam­tímis sjúk­lega fynd­inn og sjúk­lega sorg­legur, að sögn leik­hús­gagn­rýn­anda Heim­ild­ar­innar.
Leikhús

Köttur á heitu blikk­þaki

Höfundur Tennessee Williams
Leikstjórn Þorleifur Örn Arnarsson
Leikarar Leikarar: Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Halldór Gylfason, Hákon Jóhannesson, Heiðdís C. Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Sigurður Ingvarsson Leikmynd og búningar: Erna Mist Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason Þýðing: Jón St. Kristjánsson
Borgarleikhúsið
Gefðu umsögn

Ungur maður liggur í rúmi á ætt­ar­óð­al­inu, stað­sett á plantekru föður síns. Fyrrum eig­endur land­ar­eign­ar­innar, „pip­ar­sveinar“ sem deildu sama her­bergi, eru löngu látnir en ungi mað­ur­inn virð­ist stað­ráð­inn í að fylgja þeim yfir móð­una miklu með því að drekka sig í hel.

For­tíð­ar­draugar dvelja á ætt­ar­óð­al­inu ásamt fjöl­skyld­unni sem er sam­an­komin til að halda upp á stóraf­mæli fjöl­skyldu­föð­ur­ins, for­tíð­ar­draugar sem bera með sér eft­ir­sjá, ókláruð sam­töl og lygar.  Fyrsti þátt­ur­inn er nán­ast full­kom­inn hvað varðar inni­hald og form þar sem Brick og eig­in­konan hans Maggie þræta, aðal­lega er það Maggie sem talar. Í öðrum þætti skiptir höf­und­ur­inn um takt þegar feðgarnir, Brick og Stóri pabbi, takast á en heldur sig við sömu stefin. Í þriðja þætti mæt­ast allar per­sónur í loka­upp­gjöri. Hér er not­ast við breyttan þriðja þátt, end­ur­skrif­aðan að beiðni Elia Kazan, sem leik­stýrði upp­haf­legu upp­setn­ing­unni á Broadway, þar sem Stóri pabbi snýr aftur eftir að hafa yfir­gefið sam­tal …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár