Umfjöllun um fimm prósenta mörkin hafi verið meðal þess sem skaðaði VG

Formaður Vinstri grænna boðar í ára­mó­ta­kveðju sinni að hreyf­ingin muni veita nýrri rík­is­stjórn aðhald utan Alþingis og styrkja tengsl sín við lands­menn á kom­andi ári. Hún reifar ýmsar ástæður fyrir löku gengi Vinstri grænna í kosn­ing­unum og meðal ann­ars áherslu á fimm pró­senta mörkin í umfjöllun um skoð­ana­kann­anir. Flokk­ur­inn hafi ítrekað verið reikn­aður út af þingi.

Umfjöllun um fimm prósenta mörkin hafi verið meðal þess sem skaðaði VG
VG Svandís Svav­ars­dóttir for­maður Vinstri grænna segir kosn­inga­úr­slitin hafa verið sár von­brigði. Mynd: Golli

Svandís Svav­ars­dóttir for­maður Vinstri grænna boðar að hreyf­ingin muni veita nýrri rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins aðhald í lyk­il­mála­flokkum; umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­málum, frið­ar­málum og í málum sem snerta jöfnuð, þrátt fyrir að flokk­ur­inn eigi enga kjörna kjörna full­trúa á Alþingi lengur. Þetta er á meðal þess sem Svandís rit­aði í ára­móta­grein sem birt var á vef­svæði VG á gaml­árs­dag.

Þar gerir Svandís upp árið í stjórn­málum og fjallar um dap­urt gengi VG í þing­kosn­ing­unum 1. des­em­ber. Hún segir að henni hafi verið ljóst þegar hún tók við for­manns­emb­ætt­inu á lands­fundi flokks­ins í októ­ber að staða flokks­ins væri alvar­leg, en að lands­fund­ur­inn hafi þó verið sterkur, gras­rótin styrkst og gamlir félagar komið aftur að starf­inu.

Þegar boðað var til kosn­inga hafi hins vegar legið fyrir að Vinstri græn hefðu skamman tíma til að stilla saman strengi og byggja upp skýran val­kost fyrir kjós­endur. 

„Fylgið hafði verið lágt allt frá vor­dögum og undir 5% frá í mars og náði aldrei að rétta úr kútnum. Ástæð­urnar eru margar og ólíkar. Rík­is­stjórnin var orðin afar óvin­sæl og allir flokk­arnir þrír í þröngri stöðu. Mikið var fjallað um 5% mörkin í fjöl­miðlum og ítrekað vorum við reiknuð út af þingi auk þess sem röddum sem fjöll­uðu um taktíska kosn­ingu og hættu á að sóa atkvæði sínu óx ásmegin,“ skrifar Svandís. 

For­mað­ur­inn slær þannig svip­aðan tón og heyrð­ist frá ein­stak­lingum innan Vinstri grænna í kosn­inga­bar­átt­unni, að áhersla fjöl­miðla og álits­gjafa þeirra á fimm pró­sent mörkin, eða það hlut­fall atkvæða sem þarf að ná á lands­vísu til að fá úthlutað jöfn­un­ar­þing­mönnum, gæti orðið til þess að kjós­endur fæld­ust frá flokknum, jafn­vel þrátt fyrir að ein­hver von væri um að flokk­ur­inn gæti náð inn kjör­dæma­kjörnum þing­mönnum í sínum sterk­ustu kjör­dæmum.

VG líti í eigin barm en minnist ekkert á starfsstjórnina

Svandís segir flokk­inn hins vegar einnig þurfa að líta í eigin barm. „Var sam­starfið okkur of dýr­keypt? Tiltekin mál höfðu haft áhrif; salan á Íslands­banka, breyt­ingar á útlend­inga­lögum og undir það síð­asta ein­fald­lega sam­starfið sem slíkt. Mál­efna­legur ágrein­ingur varð tíð­ari, óyndið hlóðst upp og hafði í raun verið vax­andi allan tím­ann og sífellt sýni­legra öllum. Ytri áskor­anir höfðu líka áhrif; heims­far­aldur, eld­hrær­ingar, for­seta­fram­boð, veik­indi,“ skrifar Svandís í ára­mó­ta­kveðju sinni.

Í þess­ari upp­taln­ingu á mögu­legum ástæðum fyrir löku gengi Vinstri grænna nefnir Svandís hins vegar ekki það sem margir álits­gjafar hafa talað um sem veiga­mikla ástæðu fyrir hruni flokks­ins út af þingi, þá ákvörðun að taka ekki sæti í starfs­stjórn fram að kosn­ingum og hefja þannig kosn­inga­bar­átt­una á því að virð­ast á harða­hlaupum undan ábyrgð á stjórn lands­ins. 

Segir hreyfinguna með skýra framtíðarsýn

Nokkuð hefur verið fjallað um það hvaða fram­tíð bíði Vinstri grænna, í ljósi þess að flokk­ur­inn fékk ekki einu sinni nægi­legt atkvæða­magn í kosn­ing­unum til að fá smá­vegis fram­lög úr rík­is­sjóði inn í starfið á kjör­tíma­bil­inu. Gamlir áhrifa­menn í flokknum hafa sumir talað með þeim hætti að vinstri væng­ur­inn í stjórn­málum þurfi að end­ur­skipu­leggja sig.

Í grein Svan­dísar segir hins vegar að áfangar sem VG hafi náð í sögu sinni, og til­tekur þar auk ann­ars end­ur­reisn­ar­starfið eftir efna­hags­hrunið 2008 og þung­un­ar­rofslögin frá 2019, sýni að VG sé nauð­syn­legur hluti af íslenskri stjórn­mála­sögu og „hvers vegna okkar hlut­verk verður enn mik­il­væg­ara á kom­andi árum“

Svandís segir einnig að kosn­inga­úr­slitin hafi verið „sár von­brigði og áminnig um að VGE þarf að end­ur­nýja tengsl sín við fólkið í land­inu“. 

„Við heyrðum skýra kröfu um meiri nálægð við fólk, sterk­ari gras­rót og skýr­ari fram­tíð­ar­sýn. Þetta er verk­efni sem við tökum alvar­lega. Við munum efla tengsl við sveit­ar­stjórn­ar­fólkið okkar, skerpa á skila­boð­unum og tryggja að stefna VG end­ur­spegli þörf almenn­ings fyrir breyt­ingar. VG hefur aldrei haft það að meg­in­mark­miði að afla sér vin­sælda heldur að taka ábyrgð og hafa áhrif – og sú hreyf­ing mun halda áfram að breyta sam­fé­lag­inu til betri vegar með kjarki, sam­stöðu og fram­sýni,“ skrifar Svandís Svav­ars­dóttir.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MK
    Matthías Kristiansen skrifaði
    Enn ein sönnun þess að flokkar vinstra megin geta ekki annað en tapað á samstarfi við XD
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Myndun einnar auðræðisríkistjórnar með Sjálfstæðisflokknum dugði mér til að gefast upp á VG. Svo bættist við önnur. Þá gáfust fleiri upp. Svo stakk skiptstjórinn af til að þjóna eigin metnaði, en það var samt Svandís sem stimplaði VG endanlega út með því að yfirgefa sökkvandi skipið líka þannig að Bjarni hafði frítt spil í hvalamálinu.
    3
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Vg pissaði í skóinn sinn með því að yfirgefa sökkvandi dall á ögurstundu og standa ekki vaktina í starfsstjórninni. Það er gjörsamlega óskiljanlegur aumingjaskapur sem margir umhverfis- og dýraverndunarsinnar, sem hugsanlega hefðu kosið hreyfinguna, gátu alls ekki fyrirgefið. Svandís neitar að horfast í augu við þann raunveruleika svo eftir er tekið.

    Hvað kom fyrir þessa stjórnmálakonu sem er svo verulega hokin af reynslu í pólitík og þeim refskákum sem henni fylgja? Það er eins og hún hafi bara gefist upp og pakkað saman. Furðulegt!

    Vg á þetta brotthvarf að alþingi skuldlaust. Sjálfsvinnan hefst á því að viðurkenna þessi, og önnur, afdrifaríku afglöp.
    8
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Þegar búið var að svíkja baklandið þá var ekkert eftir og allir farnir.
    Hún bara virðist ekki skilja það.
    6
    • Orri Olafur Magnusson skrifaði
      Reynir Traustason ritstjóri hittir naglann á höfuðið þegar hann segir að VG hafi gert sjálfa sig "óþarfa" sem pólitíska hreyfingu ; VG elti Katrínu Jakobsdóttur í blindni í augljósar ógöngur og Katrín elti xD hvert á land sem sá flokkur fór . Nú, þegar ekkert er lengur upp úr þingsetu , ráðherrastólum og þingbitlingum að hafa , mun þessi söfnuður rótlausra tækifærissinna flosna upp og leita á ný mið . Spurningin er aftur á móti sú, hvort neinn kæri sig um að sjá þetta lið framar - ég er smeykur um ekki
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár