Ráðuneyti keypti danska hönnunarsófa fyrir 5,9 milljónir

Háskóla-, nýsköp­unar- og iðn­að­ar­ráðu­neytið hefur und­an­farna mán­uði keypt hús­gögn úr hönn­un­ar­verslun, sem þar til nýlega hét Norr11, að and­virði rúm­lega tíu millj­óna króna. Um er að ræða sam­settan sófa, kaffi­borð, borð­stofu­borð og fleiri hús­gögn að and­virði 10,2 millj­óna króna. Þar af er 1,3 millj­óna króna sófi inni á skrif­stofu ráð­herra.

Ráðuneyti keypti danska hönnunarsófa fyrir 5,9 milljónir
Dönsk gæði Kristian Sofus Hansen & Tommy Hyldahl hönn­uðu níu og sex metra sóf­ana sem ráðu­neyti Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, starf­andi Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, keypti. Mynd: Golli

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur síðan í sumar keypt dönsk hönn­un­ar­hús­gögn inn á skrif­stofur ráðu­neyt­is­ins fyrir sam­tals 10,2 millj­ónir króna. Hús­gögnin voru keypt í til­efni af því að ráðu­neytið flutti í Reykja­stræti, í hluta þess hús­næðis sem Lands­bank­inn reisti fyrir höf­uð­stöðvar sínar, en fyrir hafði ráðu­neytið haft aðsetur í tíma­bundnu skrif­stofu­hús­næði og átti engin hús­gögn.

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið er nýjasta ráðu­neytið á Íslandi en það tók til starfa í febr­úar árið 2022. Það var stofnað eftir alþing­is­kosn­ing­arnar árið 2021 þegar ráð­herrum var fjölgað um einn. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir var skipuð ráð­herra í ráðu­neyt­inu en áður hafði hún verið dóms­mála­ráð­herra. 

Á skrifstofu ráðherra og í opin rými

Níu og sex metrarTveir sófar af gerð­inni Jagger Dining voru keyptir fyrir ráðu­neytið. Annar er níu metra langur en hinn er ekki nema sex metrar.

Kaupin voru gerð til …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (15)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Mikið svakalega er þetta ljótt ! Það á að senda kvenmanninum reikningin.
    -1
  • Birgit Braun skrifaði
    Kallast það ekki snobbari?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ætli hefði ekki verið unnt að fara hagkvæmari leið?
    Spurning hvort fráfarandi ráðherra borgi þetta ekki sjálf og hafi þessar mubblur með sér?
    1
  • ingibjorg skrifaði
    Bandormurinn.
    0
  • Elís Örn Hinz skrifaði
    ..virðist sem fólk í ráðuneytinu skilji ekki hlutverk sitt. Nýsköpun og iðnaður? Hvar er Íslensk hönnun og húsgsgnasmíði hér. Ef valið hegði verið Íslenzkt fyrir þessa upphæð hefði margt verið réttlætanlegt og gefið tækifæri til “nýsköpunar” í landinu og styrkt Íslenzka hönnuði eða nema í hönnun og Íslenzk-framleiðslu-fyrirtæki. Dæmi um stjórnmálamann í stól ráðherra sem skilur ekki hlutverk sitt né hvað hennar ráðuneyti stendur fyrir Í þess húsakynnum ætti allt að vera Íslenzkt eftir Íslenzka hönnuði sem fyrirmynd annara ráðuneyta sem gæfi “tóninn” um hugarauki hönnuða á Íslandi. Tími til breytinga og “nýsköpunar” sem í augsýn er.
    14
    • LB
      Lárus Blöndal skrifaði
      Hjartanlega sammála þér Elís Örn. Takk fyrir mjög gott og tímabært innlegg. 💥
      0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Takmarkalaust siðleysi👿 Leggjum fráfarandi stjórnarflokka niður, eins og þeir hafa reynt að leggja niður velferðarkerfið sem byggt var upp af stjórnvöldum á seinni hluta síðustu aldar.

    Megi Sjálfstæðisflokkurinn hverfa sem allra fyrst.
    11
  • Helga Jóhannesdóttir skrifaði
    Helvítis bruðl og flottræfils háttur
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þetta stuđlar ađ lægri sköttum, eđa þannig🤪
    3
  • Júlía Hannam skrifaði
    Það hefði verið betra að velja þá íslenska hönnun.
    8
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Svona sófi passar í partístað en ekki á skrifstofu ráðherra. Hún er algjör asni þessi Áslaug Arna, gott að við erum að losna við hana úr ráðuneytinu.
    3
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Svona sófi passar í partístað en ekki á skrifstofu ráðherra. Hún er algjör asni þessi Áslaug Arna, gott að við erum að losna við hana úr ráðuneytinu.
    4
  • Thordis Gudmundsdottir skrifaði
    Þessi grein á ekki heima undir "Viðskipti" heldur "Spilling"
    15
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Mikið er dúkkan nú hugulsöm að gera fínt fyrir arftakann. Verst ef ráðuneytið verður lagt niður.
    5
    • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
      Þá sennilega kaupir hún þetta fyrir sjálfa sig á slikk, af ráðuneytinu sáluga
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár