Jólagjafir sem efla íslenska tungu

Viltu efla mál­til­finn­ingu barns­ins þíns, eða jafn­vel þína eigin? Hvað með að setja góða bók, miða á menn­ing­ar­við­burð eða gott spil í jóla­pakk­ann? Hér eru nokkrar hug­myndir að gjöfum og góðum sam­veru­stundum yfir hátíð­arnar sem efla íslenska tungu og menn­ing­ar­læsi.

Jólagjafir sem efla íslenska tungu

Nokkuð bar á því í kosn­inga­bar­átt­unni í lok nóv­em­ber að staða íslensk­unnar stæði höllum fæti. Sum vilja meina að íslenskan sé undir vegna ágangs ann­arra tungu­mála hér á landi og að „woke-væð­ing“ sé síð­asti naglinn í kistu okkar ást­kæra og ylhýra. Önnur eru þeirrar skoð­unar að vöntun sé á vönd­uðu íslensku menn­ing­ar­efni og að efla þurfi áhuga land­ans á því efni sem til er nú þegar, þá sér­stak­lega áhuga yngri kyn­slóð­anna. Við ætlum ekki að kryfja það til mergjar hér hvort eða hvers vegna íslenskan er á und­an­haldi heldur ætlum við að koma með til­lögur að ýmsu sem hægt er að setja í jóla­pakk­ann sem eflir íslenska tungu, vekur sam­ræður og býður upp á nota­legar stundir yfir hátíð­arnar.

Blindur er bóklaus maður

Það þarf vart að nefna það að lestur er senni­lega allra besta leiðin til þess að efla tungu­mála­lip­urð. Það er hægt …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steingrimur Bergmann Gunnarsson skrifaði
    Hér vil ég vekja athygli á Jólagjöf sem eflir íslenska tungu; nýútkomin bók Rósu Ólafar Ólafíudóttur, Bláeyg sem er saga skrifuð fyrir börn ca. 10 til 12 / 13 ára. sjá m.a.: https://www.bokatidindi.is/baekur/flokkur/skaldverk
    Rósa er hjúkrunarfræðingur og menntuð í uppeldis og menntunarfræðum. Áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Í hvítum kjól og sjálfsævisöguna Kæra nafna, þar sem hún rekur baráttu við fátækt, misrétti, þöggun og skömm.

    Sagan sem er bæði spennandi og viðburðarík er skrifuð á fallegu máli og góðum orðaforða með skýringum neðanmáls á þeim orðum eða setningum sem gætu vafist fyrir lesandanum. Þannig auðgar lestur sögunnar orðaforða lesandans. Þóra Þorgilsdóttir 12 ára og Pétur Atli Margrétarson 10 ára lásu handritið áður en það fór í prentun. Eftir lesturinn skrifuðu þau okkur eftirfarandi umsagnir: „Mér fannst hún rosa góð því að hún hélt mér spenntri." „…þá var þetta örugglega ein af bestu sögum sem ég hef lesið og ég myndi mæla með henni." Þóra Þorgilsdóttir, 12 ára. „Mjög góð. Spennandi söguþráður. Ævintýraleg og skemmtileg saga. Ávanabindandi að lesa söguna." Pétur Atli Margrétarson, 10 ára. Annar lesandi sem keypti bókina sendi höfundinum eftirfarandi póst: „Las hana í einni beit. Mjög góð!”
    Bókin var kynnt á Bókahátíðinni í Hörpu (16 og 17. nóv. s.l.) þar sem henni var afar vel tekið. Lesendur eru hrifnir af því hve sagan er vel skrifuð og hvað orða-skýringarnar hjálpa lesendum að bæta við orðaforða sinn. En undanfarin ár hefur mikið verið rætt um læsi íslenskra barna og hvernig megi efla lestur og lesskilning þeirra. Þess vegna er sagan skrifuð, eins og segir hér að ofan, á fallegu máli af góðum orðaforða en neðanmáls eru orðaskýringar sem hjálpa lesandanum ef og þegar hann rekst á ókunn orð eða orðatiltæki. Þetta fannst þeim Þóru og Pétri afar gott að hafa með. Þá hafa þeir sem fullorðnir eru einnig haft gaman af að lesa söguna því góðar barna- og unglingabækur eru líka skrifaðar fyrir fullorðna!
    Kamelía bókaforlag gefur bókina út. Barna- og ungmennasjóðurinn AUÐUR styrkti útgáfuna.
    Steingrímur B. Gunnarsson.
    sbg@simnet.is
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár