Næstmesta tap ríkisstjórnar í Íslandssögunni

Sam­an­lagt fylgis­tap þeirra flokka sem mynd­uðu síð­ustu rík­is­stjórn - Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks - var það næst­mesta í Íslands­sög­unni. Íslands­metið á hin svo­kall­aða Hrun­stjórn sem tap­aði 28% á kjör­tíma­bil­inu.

Næstmesta tap ríkisstjórnar í Íslandssögunni
Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, Sigurður Ingi Jóhann­es­son, for­maður Fram­sóknar, og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Sam­an­lagt tap flokka þeirra frá síð­ustu kosn­ingum er það næst­mesta í sög­unni þegar kemur að tapi rík­is­stjórna. Mynd: Davíð Þór

„Það kostar að sitja í rík­i­s­tjórn,“ sagði Bogi Ágústs­son frétta­maður í kosn­inga­sjón­varpi RUV í morg­unsárið þar sem þeir Ólafur Þ. Harð­ars­son stjórn­mála­pró­fessor fóru yfir afdrif rík­is­stjórna á Íslandi þegar kemur að tapi og sigrum eftir kjör­tíma­bilið. Ólafur tók undir með Boga og tal­aði um „fórn­ar­kostnað“ þess að sitja í rík­is­stjórn.

Enn er verið að telja atkvæði en ljóst er að Vinstri græn eru fallin af þingi. Þá hefur Framsókn einnig tapað miklu. Sjálf­stæð­is­flokkur tapar einnig en þó minna en hinir tveir flokk­arnir sem voru með honum í rík­is­stjórn. Miðað við stöð­una þegar þessar línur eru skrif­aðar tapa Vinstri græn öllum sínum 8 þing­mönnum, Framsókn tapar 8 en nær 5 þing­mönnum inn, og Sjálf­stæð­is­flokkur tapar 3 þing­mönnum en nær inn 13.

Eftir þing­kosn­ing­arnar 2021 voru rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sam­tals með 54,3% fylgi; Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með 24,4% fylgi, Framsókn með 17,3% og Vinstri græn með 12,6%. Þeir höfðu þá saman bætt eilítið við sig síðan þeir mynd­uðu saman fyrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eftir kosn­ing­arnar 2017.

Í umræðum Ólafs og Boga kom fram að á kjör­tíma­bil­inu hafi stuðn­ingur við þessa fyrri rík­is­stjórn Katrínar minnkað „en svo kom Covid og þá rýkur stuðn­ings­manna­talan upp,“ sagði Ólafur og benti á að þetta hafi verið eina rík­is­stjórn Íslands frá árinu 2007 sem hélt velli í kosn­ingum, og hún hafi meira að segja verið búin að bæta aðeins við fylgið þegar þessir þrír flokkar ákváðu að halda sam­starf­inu áfram og mynd­uðu seinni rík­is­stjórn Katrínar árið 2021. „Það er svo skýrt á þessu, fórn­ar­kostn­að­ur­inn við að vera í rík­is­stjórn,“ sagði Ólafur.

Sem kunn­ugt er sagði Katrín af sér sem for­sæt­is­ráð­herra fyrr á þessu ári þegar hún ákvað að gefa kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands, og hætti hún þá sömu­leiðis sem for­maður Vinstri grænna. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók þá við for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­inu. Þegar Bjarni síðan rauf þing í októ­ber ákváðu ráð­herrar Vinstri grænna að halda ekki áfram í starfs­stjórn fram að þing­kosn­ing­unum, sem fram fóru í gær.  Í tölum Ólafs og Boga miðað við fylgi þeirra þriggja flokka sem mynd­uðu rík­is­stjórn í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins og hvernig nið­ur­staðan var hjá þeim þegar talið var upp úr kjör­köss­unum nú. 

Undir grein­ingu Ólafs og Boga var varpað upp grafík sem sýndi tap og sigra rík­is­stjórn­ar­flokka á Íslandi frá kosn­ing­unum 1931. Samkvæmt þeim tölum töp­uðu rík­is­stjórn­ar­flokk­arni nú sam­tals 24% frá því þeir voru kjörnir 2021. „Frá­far­andi stjórn er með næst­mesta tap Íslands­sög­unnar,“ sagði Ólafur. Rík­is­stjórnin - eða flokk­arnir sem hana mynd­uðu - sem ýmist hefur verið kölluð Jóhönnu­stjórnin eða Hrun­stjórnin, og tók við stjórn­ar­taumunum eftir banka­hrunið, tap­aði 28% í kosn­ing­unum 2013.

Ólafur benti á að til­hneig­ing rík­is­stjórna til að tapa fylgi frekar en hitt væri þó ekki bundin við Ísland heldur hefði þetta verið til­hneig­ingin, allt frá seinni heims­styrj­öld, í flestum ríkjum vestur Evrópu. Þessi til­hneig­ing hafi síðan ágerst á síð­ari árum „og við sjáum það allt í kring um okkur, í lönd­unum, að það er mjög algengt að rík­is­stjórnir séu að tapa, og tapa illa,“ sagði Ólafur.

Hér má nálg­ast töl­fræði um kosn­ing­arnar með nýj­ustu upp­lýs­ingum í graf­ískri fram­setn­ingu á vef Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár