Streymi: Almar „í kassanum“ les upp úr nýrri bók

Almar Steinn Atlason varð þjóð­þekktur árið 2015 sem Almar í kass­anum eftir að hann dvaldi nak­inn í heila viku inni í gler­kassa í Lista­há­skól­anum. Hann var að senda frá sér skáld­sög­una Mold er mold - Litla systir mín fjöldamorð­ing­inn. Hér má horfa á beint streymi frá útgáfu­hóf­inu en upp­lestur Almars hefst upp úr klukkan 18.

Almar les upp úr nýrri skáldsögu sinni sem kallast Mold er bara mold.

Almar Steinn Atlason, sem er lands­mönnum að góðu kunnur vegna gjörn­inga sinna og mál­verka, hefur sent frá sér sína fyrstu skáld­sögðu sem ber heitið Mold er bara mold. Almar varð þjóð­þekktur árið 2015 sem Almar í kass­anum eftir að hann dvaldi nak­inn í heila viku inni í gler­kassa í Lista­há­skól­anum. 

Sam­eig­in­legt útgáfu­hóf Almars og Braga Páls Sig­urðs­sonar er haldið í Tjarn­ar­bíói og hófst síð­degis í dag, en nýjasta skáld­saga Braga Páls heitir Næst­síð­asta líf Jens Ólafs­sonar Olsen. 

Um er að ræða afar fram­úr­stefnu­legt útgáfu­hóf en þar mun hljóm­sveit Braga Páls, Dungeon Boyz, taka lagið, þá mun Bragi Páll lesa upp úr bók sinni og síðan tekur Almar við. Útgáfu­hófð er hér í beinu streymi en upp­lestur Almars hefst um klukkan 18. 

Skáldsagan Mold er bara mold er í þremur bindum sem koma saman í kassa. Und­ir­tit­ill verks­ins er Litla systir mín fjöldamorð­ing­inn, og utan á kass­anum er spurt: Er hægt að ger­ast fjöldamorð­ingi fyrir mis­skiln­ing?

„Þetta er sagan af Beggu Sól, ævin­týra­leg hetju­saga í þremur hlutum um erf­ið­leika, ofbeldi, afleið­ingar, sorgir og glóru­laust klúður. Við fylgjum Beggu eftir í gegnum völ­und­ar­hús skrif­finnsku­vél­ar­innar, myrkar dýflissur þeirra valda­gráð­ugu og virðu­legu og út í auðnir óra­blámans – handan þokunnar, rétt­læt­is­ins og fjall­anna. Mis­skiln­ing­ur­inn er sann­ar­lega það besta sem gvuð hefur fært mann­inum. Án hans gætum við aldrei elskað hvert annað,“ segir í lýs­ingu á skáld­sög­unni.

Hlut­arnir þrír kall­ast Með Venus í skrið­dreka, Þind­ar­laus frá­sögn af erf­iðum degi manns í Efra-Breið­holti, og Frelsið er tak­markað.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    fer þvagpokinn ekki að verða fullur.?
    Ég bið afsökunar, ég sofnaði út frá þægilegum lestri Almars og vaknaði við hann.*

    Góðan og blessaðan daginn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár