Dásamlegt og klikkað jólabókaflóð

Rit­höf­und­ur­inn Margrét Tryggva­dóttir er jafn­framt for­maður RSÍ – Rit­höf­unda­sam­bands Íslands. Hún svarar hér örfáum spurn­ingum um gildi og stöðu bók­ar­innar – á umbrota­tímum.

Dásamlegt og klikkað jólabókaflóð
Senni­lega aldrei meiri „bókneysla“ „Ef við leggjum saman hlustun og lestur hefur „bókneysla“ senni­lega sjaldan eða aldrei verið meiri en núna og við sjáum aukið fjár­magn í geir­anum í heild. Það siglir að mestu fram­hjá heim­il­is­bók­haldi rit­höf­unda og þýð­enda sem hafa aldrei borið jafn lítið úr bítum og nú,“ segir Margrét Tryggva­dóttir, rit­höf­undur og for­maður RSÍ. Mynd: Heida Helgadottir

 Margrét gjör­þekkir jóla­bóka­flóðið, enda búin að gefa út fjöl­margar bækur en frum­leiki ein­kennir mörg verk hennar, meðal ann­ars að því leyti að mynd­skreyt­ingar og hönnun þeirra hafa ekki minna gildi en text­inn sjálfur.

Nú í ár er það bókin Einar, Anna og safnið sem var bannað börnum – sem hún gerði ásamt Lindu Ólafs­dóttur, en þær hafa vakið athygli fyrir bækur sínar sem búa ekki síður að ásýnd en inni­haldi. Í bók­inni er fjallað um lista­mann­inn Einar Jónsson og konu hans Önnu en þau stofn­uðu fyrsta lista­safnið á Íslandi í eigin hús­næði: Lista­safn Einars Jóns­sonar. Bókin er barna­bók – fyrir börn á öllum aldri. Frum­legur og girni­legur gripur en um leið til marks um hvernig bækur geta verið alls konar.

Því hefur verið fleygt að nú þegar bókin á í vök að verj­ast og sífellt fleiri hlusta á hljóð­bækur, þá skipti bókin sem bók­verk meira máli. Að grip­ur­inn sem slíkur …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár