„Það er ekkert sem stoppar Landsvirkjun“

Sveit­ar­stjórnir Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps og Rangárs­þing ytra hafa sam­þykkt umsókn Lands­virkj­unar um fram­kvæmda­leyfi Hvamms­virkj­unar í Þjórsá. Fulltrúi minni­hlut­ans í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi lagð­ist gegn veit­ingu leyf­is­ins og segir til­gang fram­kvæmd­anna óljósan.

„Það er ekkert sem stoppar Landsvirkjun“
Hvamms­virkjun Lands­virkjun hyggst reisa virkj­un­ina í neðri hluta Þjórsá. Öll til­skilin leyfi liggja nú fyrir en búast má við frekara kæru­ferli vegna fram­kvæmd­anna. Mynd: Landsvirkjun

Sveit­ar­stjórn Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps hefur sam­þykkt umsókn Lands­virkj­unar um fram­kvæmda­leyfi Hvamms­virkj­unar í Þjórsá. Lands­virkjun hyggst reisa Hvamms­virkjun í neðri hluta Þjórsár, á landi sem til­heyrir ann­ars vegar Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi og hins vegar Rangár­þingi ytra, og felur fram­kvæmdin í sér fjög­urra fer­kíló­metra lón í byggð.  

Þetta er í annað sinn sem fram­kvæmda­leyfi virkj­un­ar­innar er sam­þykkt. Orku­stofnun gaf út virkj­un­ar­leyfi fyrir Hvamms­virkjun í des­em­ber 2022 og sveit­ar­fé­lögin sam­þykktu fram­kvæmda­leyfi sum­arið 2023. Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála bár­ust tíu kærur vegna virkj­un­ar­leyf­is­ins og var nið­ur­staða nefnd­ar­innar að fella leyfið úr gildi og þar með fram­kvæmda­leyfið. Virkj­un­ar­leyfi var end­ur­nýjað í haust og nú hefur fram­kvæmda­leyfi verið sam­þykkt í báðum sveit­ar­fé­lögum. 

Fram­kvæmda­leyfið var sam­þykkt sam­hljóða á fundi sveit­ar­stjórnar Rangárs­þings ytra í síð­ustu viku en leyfið var sam­þykkt með fjórum atkvæðum gegn einu í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi. Axel Á. Njarðvík, full­trúi U-list­ans, greiddi atkvæði gegn leyf­inu. „Fyr­ir­huguð Hvamms­virkjun mun hafa veru­leg og óaft­ur­kræf áhrif á nátt­úru, líf­ríki og lands­lag. Öllum ætti að vera löngu ljóst að tjónið og skað­inn sem Hvamms­virkjun mun valda á nátt­úru og sam­fé­lagi verður aldrei bætt,“ segir í bókun sem Axel lagði fram á fund­inum. Axel og eig­in­kona hans, Sig­þrúður Jóns­dóttir, hafa barist ötul­lega fyrir verndun Þjórs­ár­vera. Axel segir til­gang fram­kvæmd­anna enn óljósan auk þess sem óljóst er hvort orku­skipti sé yfir höfuð raun­veru­legur til­gangur virkj­un­ar­innar. 

„Öllum ætti að vera löngu ljóst að tjónið og skað­inn sem Hvamms­virkjun mun valda á nátt­úru og sam­fé­lagi verður aldrei bætt
úr bókun Axels Á. Njarðvík,
full­trúa U-list­ans í sveit­ar­stjórn Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps.

„Það er ekk­ert sem stoppar Lands­virkjun í því að hefja fram­kvæmdir af fullum krafti,“ segir Haraldur Þór Jónsson, odd­viti Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hann seg­ist samt sem áður full­með­vit­aður um að and­stæð­ingar virkj­un­ar­innar muni kæra leyf­is­veit­ingar til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála, rétt eins og gert var síð­ast þegar fram­kvæmda­leyfið var veitt. „Umræðan í þessum mála­flokki er póli­tísk deila,“ segir Haraldur.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár