Viðreisn bætir við sig í nýrri könnun

Viðreisn bætir við sig fylgi sam­kvæmt nýj­ustu könnun Maskínu. Ekki er mark­tækur munur á Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum. Sam­fylk­ingin er áfram stærsti flokk­ur­inn.

Viðreisn bætir við sig í nýrri könnun
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar Mynd: Bára Huld Beck

Viðreisn er með 13,8% fylgi sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokka á Alþingi. Flokk­ur­inn var með um 11% fylgi í síð­ustu könnun sem gerð var í sept­em­ber. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með 13,7% fylgi sam­kvæmt könn­un­inni og er ekki mark­tækur munur á fylgi flokk­anna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var með um 13% í könnun Maskínu fyrir sept­em­ber­mánuð.

Sam­fylk­ingin er áfram stærsti flokk­ur­inn, með 22,8% fylgi, Mið­flokk­ur­inn næst stærstur með 17% og koma Sjálf­stæð­is­flokkur og Viðreisn þar á eftir, sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum fyrir könnun októ­ber­mán­aðar.

Þrír flokkar mæl­ast með um 7% fylgi; Flokkur fólks­ins með 6,6%, Píratar 6,8% og Framsókn 7%. Sós­í­alistar eru með 5,3%, Vinstri græn með 4,5% og Lýð­ræð­is­flokk­ur­inn með 2,4%.

Samkvæmt fylgis­tölum miðað við svörun í könn­un­inni eftir stjórn­ar­slit, dag­ana 15.-18. októ­ber, myndu þing­sætin skipt­ast svo: Sam­fylk­ingin 14, Mið­flokk­ur­inn 12, Sjálf­stæð­is­flokkur 9, Viðreisn 8, Framsókn 5, Flokkur fólks­ins 5, Píratar 3, Vinstri græn 3 og Sós­í­alista­flokk­ur­inn 3.

Könnun Maskínu fór fram dag­ana 2.-18. októ­ber og tóku 1772 svar­endur afstöðu til flokks. Úrtakið var svo­nefnd Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá. Um net­könnun var að ræða.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár