Stundum hefur því verið slengt fram að fólk kjósi með veskinu. Með því er átt við að kauphegðun fólks geti haft áhrif á ákvarðanir framleiðenda og þannig hvaða vörur verði búnar til í framtíðinni.
Hvers kyns kauphegðun endurspeglar líka að einhverju leyti manns innri mann. Kunningi minn, sem bjó áður í sunnlenskri sveit, sagði einu sinni að hann hefði getað séð hverjar stjórnmálaskoðanir íbúa á bæjunum væru út frá því hvernig dráttarvél stæði í heimreiðinni. Ein tegund einkenndi Sjálfstæðismenn, önnur Framsóknarmenn.
Skoðanir fólks má sjá í kauphegðun þess. Fólk sem lætur sig lítilmagnann varða reynir að sniðganga Amazon og versla af minni birgjum – kaupir ef til vill sem mest lókalt. Fólk sem lætur sig umhverfið varða reynir að kaupa lífrænt. Fólk sem mótmælir síonískri stefnu Ísraels og tekur eindregna afstöðu með Palestínu kaupir yfirleitt ekki vörur frá Moroccanoil eða Sodastream-tæki.
Tíðarandinn er eins og vatnið
Ég held að pólitísk álitamál einskorðist þó ekki við sniðgöngu sumra á hinu ísraelska Sodastream heldur teygi sig yfir helstu leikendur á markaði kolsýrðra vatnsdrykkja.
Ölgerðin er risi á íslenska vatnsmarkaðnum. Fyrirtækið varð í fyrra fyrst til að hljóta vottun frá Samtökunum ‘78 sem hinseginvænn vinnustaður. Í framhaldinu breytti Ölgerðin slagorðinu fyrir kolsýrða vatnsdrykkinn Kristal þannig að það væri á svokölluðu kynhlutlausu máli.
„Það sést hverjir drekka Kristal“ varð fyrr á árinu að „Það sést hver drekka Kristal.“ Með þessu var reynt að ná betur til fleiri kynja en eingöngu þess sem kennt er við karla. „Þetta er aðeins upphafið að mun lengri og betri vegferð okkar allra,“ sagði Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, við þetta tilefni.
Þessi breyting lagðist þó ekki vel í alla. Um daginn varð á vegi mínum tæplega 200 manna hópur á netinu sem kallaði eftir sniðgöngu Ölgerðarinnar vegna hinsegin vottunarinnar og kynhlutlausa málsins.
Toppur stoppaður
Sumarið 2023 breyttist nafn drykkjarins sem landinn hafði þekkt sem Topp yfir í Bonaqua. Að sögn Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi var nafnabreytingin liður í stefnu fyrirtækisins að leggja áherslu á færri, en sterkari, vörumerki á alþjóðavísu.
Þessi nafnabreyting virtist þó ekki vekja mikla lukku. Hún var gagnrýnd harðlega og virtist hafa það í för með sér að fleiri kusu heldur að kaupa sér sódavatn af Ölgerðinni, og lítilmagnanum Bruggsmiðjunni Kalda á Árskógssandi. Norðlenski drykkurinn, sem ber nafnið Klaki og er tiltölulega nýr á markaðnum, hefur reyndar makað krókinn eftir að Toppur gerðist alþjóðlegri – en salan tók stökk eftir að Toppur umbreyttist í Bonaqua.
Ég hef heyrt um fólk sem þvertekur fyrir að kaupa sér Bonaqua vegna málverndarsjónarmiða. Það gera sennilega einnig þeir sem heillast mest af þjóðernishyggju. Ég get ímyndað mér að það fólk sem er hvað þjóðræknast myndi frekar velja sér drykk sem heitir Kristall, frekar en Bonaqua.
Þeir sem láta vekni, meintan pólitískan rétttrúnað eða jafnvel hugmyndina um hinsegin vottun, fara í taugarnar á sér myndu að sama skapi ef til vill forðast Kristal.
Falli maður í báða áðurnefnda hópa hlýtur sá kostur einn að sitja eftir að svala þorstanum með hinum rammíslenska og (að því er virðist) ópólitíska Klaka þegar svo ber undir. Ef það að vera alíslenskur og (að því er virðist) hlutlaus getur þá á annað borð talist ópólitískt.
Oft hefur íslenska vatninu verið þökkuð hreysti Íslendinga – en kannski er aukin skautun því kolsýrða að þakka.
Athugasemdir (1)