Hagkaup hættir með Sodastream vegna mótmælaaðgerða

Aðgerða­sinnar sem hvetja til snið­göngu á vörum frá Ísrael hafa sett lím­miða á Sodastr­eam-vörur í Hag­kaupum og þannig valdið skemmdum á umbúð­unum. Sigurður Reyn­alds­son, fram­kvæmda­stjóri Hagkaups segir umboðs­að­ila Sodastr­eam á Íslandi hafa end­ur­kallað vör­urnar vegna þessa. „Ég er maður friðar,“ segir fram­kvæmda­stjór­inn.

Hagkaup hættir með Sodastream vegna mótmælaaðgerða

Sigurður Reyn­alds­son, fram­kvæmda­stjóri Hagkaups, segir versl­un­ina vera að hætta með Sodastr­eam í sölu vegna end­ur­tek­inna skemmda sem aðgerða­sinnar hafa unnið á umbúðum utan um vör­una. „Það er ákvörðun inn­flutn­ings­að­ila að kippa vör­unni úr sölu, í það minnsta tíma­bundið, og koma með aðra val­kosti fyrir okkur,“ segir hann en Heim­il­is­tæki er umboðs­að­ili fyrir Sodastr­eam hér á landi, sem fram­leiða tæki til að búa til sóda­vatn og er eitt vin­sælasta merki heims á þeim mark­aði.

„Við höfum verið að lenda í því að menn eru að setja lím­miða á umbúð­irnar og eyði­leggja þær hér í versl­unum okkar. Við getum ekki selt vör­una í því ástandi og umboðs­að­il­inn vill gera breyt­ingar,“ segir Sigurður. 

Umræddir lím­miðar eru á vegum aðgerða­sinna sem hvetja til snið­göngu á vörum frá Ísrael vegna stríðs­ins á Gaza. Sodastr­eam er fram­leitt í Ísrael og hefur verið hvatt til snið­göngu á vörum fyr­ir­tæk­is­ins víða um heim í mót­mæla­skyni við aðgerðir Ísraels gegn Palest­ínu. 

Fram­kvæmda­stjóri Sigurður Reyn­alds­son, fram­kvæmda­stjóri Hagkaups, segir versl­un­ina ætla að hætta með Sodastr­eam í sölu vegna end­ur­tek­inna skemmda sem aðgerða­sinnar hafa unnið á umbúðum utan um vör­una.

„Dapur“ framkvæmdastjóri

Nafn­laust inn­legg birt­ist í Facebookhópnum „Snið­ganga fyrir Palest­ínu - BDS Ísland“ í morgun þar sem greint er frá því að fram­kvæmda­stjóri Hagkaups sé „dapur“ – „Ekki þó vegna nýj­ustu frétta um að Ísrael sé að brenna fólk lif­andi á sjúkra­húsum. Ekki heldur vegna frétta um fyr­ir­ætl­anir um að loka af Norður-Gaza og svelta þar hund­ruði þús­unda. Og allra síst vegna þess að Hagkaup tekur þátt í fjár­mögnun þess­ara hryðju­verka með sölu á vörum frá Ísrael,“ segir í færsl­unni. 

Þar er síðan haldið áfram: „Sigurður er dapur af því að við höfum sett pappír á papp­ír­inn utanum umbúð­irnar á þessum vörum, og upp­lýst neyt­endur um upp­runann. Neyt­endur sem skv. könn­unum vilja ekki kaupa þessar vörur en hafa gjarnan ekki tíma til að fletta upp upp­runa í versl­un­ar­ferðum.“

Kannast ekki við kæru

Sigurður segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það hafi ekki gerst áður að vörur hafi verið teknar úr sölu vegna mót­mæla­að­gerða af þessum toga. „Nei. Þessir aðilar hafa verið í frekar vin­gjarn­legum sam­skiptum við okkur og við höfum tekið ýmsar vörur til skoð­unar og reynt að gera þær breyt­ingar sem við getum. Sam­skiptin hafa verið á frekar góðum nótum, frið­sam­leg, þannig að maður er aðeins svekktur að menn séu farnir að valda tjóni á vörum inni í versl­unum. Þá finnst mér við vera komin á aðeins annan stað,“ segir Sigurður. 

Í Facebook-inn­legg­inu segir nafn­lausi not­and­inn að Sigurður ætli að kæra sig. Þetta seg­ist Sigurður ekki kann­ast við. Allt tjón sem unnið er inni í versl­unum sé hins vegar til­tækt á upp­tökum úr mynda­véla­kerfi og það fari í ákveð­inn far­veg, sem sé hjá lög­reglu.

Þá er í Facebookhópnum hvatt til þess að fólk sendi Sigurði póst: „Nú þurfum við að gefa í, og merkja vörur frá Ísrael í Hagkaup. Við þurfum líka að segja Sigurði að hann sé á rangri leið, glæpa­væð­ing akti­visma er hættu­leg þróun sem við þurfum að stöðva,“ segir þar og síðan er net­fang­inu hans deilt. 

 Sigurður kann­ast ekki við hafa fengið pósta sem megi tengja við þetta. Hann vill þó koma á fram­færi: „Ég er á móti öllu stríði í heim­inum. Ég er maður friðar og er á móti stríði hvar sem það er og í hvaða formi það er. Mér finnst ekki sann­gjarnt að það sé verið að búa mér til skoð­anir,“ segir hann. 

Ekki náð­ist tal af dreif­ing­ar­að­ila Sodastr­eam hjá Heim­il­is­tækjum þegar Heim­ildin hafði sam­band.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár