Ropvatn Neyt­endur með smekk fyrir kol­sýrðu vatni geta valið á milli mýmargra vöru­merkja, með hinum ýmsu bragð­teg­undum. Svipt­ingar hafa orðið á þessum mark­aði á árinu, eftir að einn vin­sæl­asti drykk­ur­inn breytti um heiti. Mynd: Golli

Bonaqua virðist á köldum Klaka eftir nafnbreytingu

Þátta­skil urðu á íslenska sóda­vatns­mark­að­inum í sumar, eftir að Toppur breytt­ist í Bonaqua. Því fylgdu tæki­færi fyrir sam­keppn­is­að­il­ann Klaka, sem kveðst nú vera með um 25 pró­sent hlut­deild á mark­að­inum. Fyrr­ver­andi íslensku­pró­fessor sem gagn­rýndi nafn­breyt­ingu Topps segir gleði­efni að erlend nafn­gift virð­ist hafa vakið svo sterk við­brögð.

Íslenskir neyt­endur freyð­andi vatns virð­ast hafa tekið það nærri sér þegar Coca Cola Europacific Partners á Íslandi, sem áður hét Víf­il­fell, breytti nafni rop­vatns­ins Topps yfir í Bonaqua, fyrr á þessu ári. Salan á sóda­vatn­inu Klaka, sem fram­leitt er af Rolf Johansen & Co., rauk upp eftir að breyt­ing­arnar gengu í gegn að sögn sölu­stjóra vöru­merk­is­ins.

„Við finnum fyrir því að Íslend­ingar eru ekki ánægðir með þessa breyt­ingu hjá þeim. Bara mjög óánægðir. Sem er mjög gott fyrir okkur,“ segir Brynjar Val­steins­son sölu­stjóri í sam­tali við Heim­ild­ina. 

KlakiBrynjar Val­steins­son er sölu­stjóri hjá Rolf Johansen & Co. sem fram­leiðir Klaka.

Klaki er orðið tíu ára gam­alt vöru­merki. Brynjar segir að það hafi verið að sækja í sig veðrið á mark­að­inum í sam­keppni við ris­ana tvo, Kristal og Topp, ekki síst frá því að fyr­ir­tækið frískaði upp á útlit umbúð­anna og hóf að bjóða drykki sína í áldósum fyrir …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Keypti Topp í bílförmum en mun aldrei kaupa Bonaqua
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það á allt að vera á útlensku, annars gengur það ekki upp.
    0
  • SS
    Stefanía Skarphéðinsdóttir skrifaði
    Löngu hætt að kaupa vatn frá Vífilfelli, enda ekki íslenskt vatn. Held að fólk átti sig ekki á þvi.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár