Svandís: „Við erum mætt og við erum í stuði“

Svandís Svav­ars­dóttir inn­við­a­ráð­herra sagði Vinstri græna vera mætta og í stuði í for­mannsávarpi sínu á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar í dag. Hún sagði að margt hefði farið á annan og verri veg hefði VG ekki verið hluti af núver­andi rík­is­stjórn.

Svandís: „Við erum mætt og við erum í stuði“

„Við erum mætt og við erum í stuði,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, inn­við­a­ráð­herra og nýkjör­inn for­maður Vinstri grænna, undir lok ávarps síns á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar síð­degis í dag. Ræðuna hélt hún eftir að hún varð sjálf­kjör­inn for­maður flokks­ins með 169 atkvæðum af 175, sex atkvæði voru auð.

Í ávarp­inu þakk­aði Svandís fyrr­ver­andi for­mönnum flokks­ins – Guðmundi Inga Guð­brands­syni og Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir þeirra fram­lag til Vinstri grænna.

Þá sagð­ist hún spennt fyrir fram­tíð­inni. „Ég er ein­læg­lega spennt fyrir þessu verk­efni, því mér þykir svo vænt um VG.“

Svandís tal­aði í ræð­unni gegn ein­stak­lings­hyggju og kap­ít­al­isma, sem hún segir að sjái í öllu gróða­von og sundri frekar en sam­eini. Þá vildi hún meina að sumir stjórn­mála­flokkar nýttu sér þró­un­ina í átt að frek­ari sundrun mark­visst til að ná til sín fólki. „Þess vegna ríður á að við í VG stöndum fyrir mennsku, sam­stöðu og sam­heldið sam­fé­lag. Að við tölum um gildi. Samveru og tengsl.“

Hefði farið á verri veg án VG

Svandís minnt­ist á að Vinstri græn hefðu síð­ustu ár setið í rík­is­stjórn með borg­ara­legum öflum, sem hefðu setið í rík­is­stjórn hvað lengst í lýð­veld­is­sög­unni. „Án okkar hefði margt farið á annan og verri veg,“ segir hún.

Starf Vinstri grænna snú­ist um að veikastar raddir í sam­fé­lag­inu hafi rödd og geti látið í sér heyra í gegnum hreyf­ing­una. „Verkefni okkar snýst um að tryggja styrk VG sem félags­legs afls í íslenskum stjórn­málum. Saman getum við lyft grettistaki.“ 

Svandís ræddi meðal ann­ars um mik­il­vægi nátt­úru­verndar, þess að hugað væri að lofts­lags­málum og mennta­kerf­inu. Þá þyrfti að skoða breyt­ingar á fisk­stjórn­un­ar­kerf­inu og sjáv­ar­út­veg­inum. Til dæmis væru frum­vörp um gagn­sæi í sjáv­ar­út­vegi grund­vall­ar­mál. „Þar fáum við að sjá hver, ef ein­hver, vill standa vörð um leynd­ar­hyggju í sjáv­ar­út­vegi. Þetta held ég að séu mik­il­væg­ustu frum­vörp sem tengj­ast auð­linda­nýt­ingu um ára­tuga­skeið.“

Hún kom inn á hús­næð­is­málin og efna­hags­málin, en ungt fólk á nú mjög erfitt með að eign­ast eigið hús­næði. Svandís segir það ósann­gjarnt að rík þjóð eins og okkar leggi það á ungu kyn­slóð­ina. Efla þurfi almenna íbúa­kerfið og skatt­leggja aðra og þriðju eign fólks. „Húsnæði á að vera heim­ili en ekki fjár­fest­ing. Sumu getum við náð fram í sam­starfi, annað hlýtur að vera skýrt ákall í kosn­inga­bar­áttu.“ 

Pláss fyrir sterka vinstri rödd

Nýr for­maður Vinstri grænna segir hægri bylgju hafa átt sér stað í íslenskum stjórn­málum. Sam­fylk­ingin hafi fært sig lengra til hægri og Mið­flokk­ur­inn, þrátt fyrir að kenna sig við miðju, sé lengra til hægri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Þetta gerði hlut­skipti VG og hlut­verk ef til vill mik­il­væg­ara en áður. Þá væri pláss fyrir sterka vinstri rödd.

Þó væri nú komin upp snúin staða, en sam­kvæmt nýj­ustu könnun Gallup kæm­ist flokk­ur­inn ekki á þing. „VG hefur oft verið spáð illu gengi, af fjöl­miðlum, af grein­endum, af and­stæð­ingum okkar. En allir þessir sér­fræð­ingar og þessir grein­endur hafa haft rangt fyrir sér og tím­inn hefur alltaf verið okkar megin, leitt annað í ljós.“

Svandís segir að í þess­ari stöðu sé þó fullt af mögu­leikum. „Við finnum að við eigum fullt erindi og erindið er brýnt. Við finnum að á tímum þar sem stjórn­málin eru að breyt­ast, flokkar eru að færa sig til á ásnum frá vinstri til hægri, er pláss fyrir sterka vinstri rödd sem talar máli félags­hyggju, mann­rétt­inda, sókn til friðar og nátt­úru­verndar.“ 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Leggja þennan flokk niður og senda forystufólkið í útlegð!!!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár