Skrúfað fyrir Bjarna hjá Sameinuðu þjóðunum

Bjarni Bene­dikts­son fékk ekki að klára ræðu sína á leið­toga­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna á sunnu­dag­inn vegna þess að slökkt var á hljóð­nema hans. Í ræð­unni lagði Bjarni áherslu á heil­brigði hafs­ins og for­dæmdi harð­lega áhrif vopn­aðra átaka á almenna borg­ara.

Í miðri setningu Bjarni var stöðvaður í miðjum klíðum þegar hann flutti ræðuna.

Slökkt var á hljóð­nema Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra áður en ávarpi hans lauk á leið­toga­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York-borg á sunnu­dag­inn var. Bjarni tal­aði í rétt rúm­lega fimm mín­útur en fór yfir þann tíma sem honum hafði verið úthlutað og fékk ekki að ljúka við ræðu sína.

Í ávarp­inu lagði Bjarni áherslu á heil­brigði hafs­ins og það að virð­ing væri borin fyrir landa­mærum ríkja. Hann fagn­aði sam­þykktum um jafn­rétti kynj­anna og sagði mik­il­vægt að vinna gegn kyn­bundnu ofbeldi. Hann for­dæmdi það að almennir borg­arar yrðu fyrir áhrifum vopn­aðra átaka og nefndi að ekki nægði að ítreka fyrri skuld­bind­ingar til þess að end­ur­heimta tapað traust á alþjóð­legri sam­vinnu.

Bjarni skrif­aði á Facebook í gær að það hefði verið heiður að ávarpa fund­inn fyrir Íslands hönd. Hér má sjá ræðu Bjarna í heild sinni:

Sam­ein­uðu þjóð­irnar

Sáttmáli um framtíðina undirritaður

Á leið­toga­fund­inum und­ir­rit­uðu ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna Fram­tíð­ar­sátt­mála, sem sagður er marka þátta­skil og fram­tíð­ar­stefnu fjölda mál­efna. Sátt­mál­inn inni­heldur 56 skuld­bind­ingar, sem varða meðal ann­ars alþjóða­sam­vinnu, lofts­lags­mál, staf­ræna þróun, afvopnun og mann­rétt­indi.

Á sunnu­dag­inn hitti Bjarni António Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóra SÞ. Þeir ræddu fund­inn, sam­þykktir hans, mál­efni Úkraínu auk ástands­ins í Mið-Aust­ur­löndum. 

„Ég átti góðan fund með Antonio Guterres, aðal­rit­ara SÞ. Við ræddum af hrein­skilni um ógnir sam­tím­ans, m.a. stríðs­á­tök þar sem alþjóða­lög eru virt að vettugi,“ skrifar Bjarni á Facebook-síðu sína.

„Ísland á allt sitt undir því að slíkar leik­reglur séu virtar. Við megum aldrei sofna á verð­inum eða líta svo á að við séum ónæm fyrir þróun heims­mál­anna. Miklu máli skiptir í þessu sam­hengi að Sam­ein­uðu þjóð­irnar séu traustur vett­vangur til lausnar deilu­mála og sam­starfs ólíkra ríkja,“ sagði Bjarni enn fremur.

Ekki náð­ist í for­sæt­is­ráð­herra við vinnslu þess­arar fréttar. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VK
    Víðir Kristjánsson skrifaði
    "Hvað sagðirðu árás?"
    4
  • Kári Jónsson skrifaði
    Mjög líklegt er að við (kjósendur) höfum sjálfsval um það eftir næstu kosningar (fyrr en seinna) að skrúfa endanlega niður í spillingar-pésanum Bjarna Ben.
    4
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta mættu Íslendingar taka sér til fyrirmyndar. Hér fær hann að tala út í það endalausa og sveigja málefnið sér í hag.
    5
  • Hahahahahah það væri óskandi að það væri skrúfað endanlega niður í þessum!
    4
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Fleirum en mér þótt hann leiðinlegut
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár