Assange frjáls – Hittir loks börnin sem þekkja bara pabba í fangelsi

Julian Assange, stofn­anda Wikileaks, var sleppt úr bresku örygg­is­fang­elsi í gær­morgun, eftir um fimm ára vist þar. Nú mun hann loks hitta syni sína tvo utan fang­els­is­veggj­anna.

Assange frjáls – Hittir loks börnin sem þekkja bara pabba í fangelsi
Assange Ætlar að snúa aftur til heima­lands­ins, Ástralíu. Hér sést hann á leið út í flug­vél frá Bret­landi í gær. Mál Banda­ríkj­anna á hendur honum verður tekið fyrir á Norður-Mar­ína­eyjum á morgun. Mynd: Skjáskot/Wikileaks

Julian Assange, stofn­anda Wikileaks, var sleppt úr fang­elsi í Bret­landi í gær­morgun eftir að hann náði sam­komu­lagi við banda­rísk stjórn­völd um að játa að hluta á sig brot sem þau hafa ákært hann fyrir.

„Eftir rúm fimm ár í 2x3 metra klefa þar sem hann var ein­angr­aður í 23 klukku­stundir á dag mun [Julian Assange] bráðum hitta eig­in­konu sína Stellu Assange og börnin þeirra, sem hafa kynnst föður sínum í gegnum rimla,“ segir í færslu Wikileaks um málið. 

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, sagði í færslu á Facebook í nótt að margra ára bar­átta væri að skila árangri. „Þakka stuðn­ing­inn,“ skrif­aði Kristinn.

Stella AssangeEig­in­kona Julians Assange á mót­mælum vegna máls Banda­ríkj­anna gegn honum. Hægra megin við hana má sjá Kristinn Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks.

Snýr aftur til Ástralíu

Banda­rísk yfir­völd hafa haldið því fram að birt­ing Wikileaks á skjölum frá stríði Banda­ríkj­anna í Írak og Afganistan hafi stofnað manns­lífum í hættu. Vegna þessa hefur Assange eytt síð­ustu fimm árum í bresku örygg­is­fang­elsi og barist gegn fram­sali til Banda­ríkj­anna. 

Samkvæmt banda­rísku frétta­stof­unni CBS mun Assange ekki vera settur í banda­rískt fang­elsi en útlit er fyrir að dóm­ur­inn vegna brot­anna sem hann er sagður ætla að játa á sig verði jafn langur og sú fang­els­is­vist sem hann hefur þegar setið af sér í Bret­landi.

Assange yfir­gaf Bretland síð­degis í gær og ætlar hann sér að snúa aftur til heima­lands­ins Ástralíu, sam­kvæmt færslu Wikileaks.  Tals­maður rík­is­stjórnar Ástralíu sagði við AFP í gær að mál Assange hafi dreg­ist of lengi. 

Ákæran sem Assange sam­þykkti að gang­ast við verður tekin fyrir hjá dóm­stólum á Norður-Mar­í­ana­eyjum á morgun. Banda­ríkin fara með stjórn eyj­anna og eru þær mun nær Ástralíu en banda­rískir dóm­stólar á Hawaii eða meg­in­landi Banda­ríkj­anna. 

Assange og lög­menn hans hafa lengi haldið því fram að mál Banda­ríkja­manna gegn honum sé af póli­tískum toga.

Yfirtók líf Stellu

Stella Assange ræddi mál eig­in­manns síns við Heim­ild­ina árið 2021. Þá biðl­aði hún til Íslend­inga um að berj­ast fyrir frelsun hans.

„Þetta hefur í raun og veru yfir­tekið líf mitt,“ sagði hún um bar­átt­una fyrir frelsi Julians.

„Ég gerði mér grein fyrir því frá byrjun að bar­áttan væri mjög hættu­leg. Það voru mjög myrk öfl sem vildu setja hann í fang­elsi til að þagga niður í honum og berj­ast gegn því sem Julian var að berj­ast fyrir.“

Þá sagði Stella að eig­in­maður hennar væri að berj­ast við valda­mikil öfl.

„Julian hefur reitt marga til reiði, ekki bara hern­að­ar­yf­ir­völd og njósn­a­stofn­anir í Banda­ríkj­unum, heldur einnig bank­ana, stóru lyfja­fyr­ir­tækin og svo fram­vegis. Svo það eru mjög sterk öfl sem vilja þagga niður í Julian. Við sáum það til dæmis árið 2010, þegar Wikileaks birti gögn frá banda­ríska hernum í Afganistan og Írak ásamt diplómata­skjöl­unum, að meira að segja kredit­korta­fyr­ir­tækin fóru að loka á Wikileaks. Þetta er bara eitt dæmi um hvernig póli­tíkin hafði áhrif á einka­geir­ann til að ráð­ast á Julian úr öllum áttum. Dóm­stólar á Íslandi komust síðan að þeirri nið­ur­stöðu að þessi aðgerð kredit­korta­fyr­ir­tækj­anna væri ólög­mæt.“

Gabriel og MaxSynir Assange hafa ein­göngu hitt föður sinn inni í sendi­ráði og fang­elsi.
Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    "Couldn't help but make me feel ashamed to live in a land where justic is a game"
    Bob Dylan Desire '78 Hurricane.
    Þó svo að samviska þessara tveggja vinaþjóða, USA og UK sé ekki upp á marga fiskana þá rankar hún við sér Þegar heilaþveginn almenningur stuggar við buddum þeirra.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Frábærar fréttir!
    En ég kemst ekki hjá því að vellta fyrir mér þeim möguleika að þetta útspil B.N.A. sé tilkomið til að fá ekki á sig óorðsstympil fyrir að dæma Assange saklausan í 100+ ára fangelsi.
    Og síðan þegar rykið er sest þá munu útsendarar CIA myrða Assange.
    Síðan eftir það verður því lýst yfir að sá sem sé helst grunaður um ódæðið.
    Sé einfari og talin frekar tæpur á geði.
    0
  • EHS
    Eiríkur Hans Sigurðsson skrifaði
    Þetta eru góðar fréttir. 🥰
    3
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Dásamlega góðar fréttir
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár