158 ára og sýnir engin ellimerki

Ritzau, elsta og stærsta frétta­stofa á Norð­ur­löndum tók til starfa árið 1866. Fjöl­miðla­heim­ur­inn hefur gengið í gegnum miklar breyt­ingar á þeim 158 árum sem liðin er frá stofnun frétta­stof­unnar en Ritzau heldur alltaf sínu striki. Starfs­menn eru um 180.

Á fyrsta degi febr­ú­ar­mán­aðar árið 1866 birt­ist í fjórum dag­blöðum í Kaup­manna­höfn aug­lýs­ing. Þar var greint frá því að stofnað hefði verið fyr­ir­tæki sem héti Nordisk Centralbureau for politiske og mercantile Tel­egraph – Medd­el­elser. Sá sem aug­lýsti hét Erik Nicolai Ritzau. Daginn áður hafði honum borist skeyti frá Hamborg sem stílað var á Ritzaus Bureau, nafnið sem fylgt hefur fyr­ir­tæk­inu allar götur síðan, og iðu­lega bara kallað Ritzau. Dag­blöðin fjögur sem aug­lýs­ingin birt­ist í voru Berl­ingske Tidende, Dansk Rigstidende, Dag­bla­det og Fædrelandet urðu jafn­framt fyrstu við­skipta­vinir þess­arar nýju frétta­stofu. Árið 1854 komst á skeyta­sam­band milli Kaup­manna­hafnar og Ham­borgar og þá gerð­ust áður­nefnd blöð áskrif­endur að þýskum frétta­skeytum.

Ætlaði í verslunarnám en leiðin lá annað

Frétta­nefErik Nicolai Ritzau

Erik Nicolai Ritzau fædd­ist í Kaup­manna­höfn 30. apríl 1839, fjöl­skylda hans kom frá Þýska­landi 200 árum fyrr og þaðan kemur Ritzau nafnið. Móðir Eriks rak um ára­bil blóma­búð og gróðra­stöð en fað­ir­inn sem var skó­smiður lést þegar Erik var rúm­lega tví­tugur. For­eldrar Eriks höfðu ákveðið að hann færi til Ham­borgar í versl­un­ar­skóla og þess vegna fékk hann sér­kennslu í ensku frönsku og þýsku. Ekkert varð þó af nám­inu í Hamborg en þess í stað fékk Erik fjórtán ára gam­all vinnu hjá póst­meist­ar­anum í Kaup­manna­höfn og var þar til árs­ins 1861. Þá var hann kvaddur til her­þjón­ustu. Eftir að síð­ara Slés­vík­ur­stríð­inu lauk 1864 var Erik um tíma atvinnu­laus en fékk síðan vinnu hjá nýstofn­uðu blaði, Dansk Rigstidende. Rit­stjór­inn þar á bæ, Alfred Fich ráð­lagði Erik að stofna frétta­þjón­ustu. Erik var hik­andi en ákvað svo að slá til og Ritzau frétta­stofan varð til 1866. Þá hafði Erik samið við dag­blöðin fjögur sem fyrr var getið um áskrift að frétta­þjón­ust­unni.

Gekk  strax vel

Áskrif­endum að Ritzau fjölg­aði hratt og strax á fyrsta ári voru auk 7 dag­blaða í Kaup­manna­höfn 22 dönsk lands­hluta- eða svæð­is­blöð komin með fasta áskrift og sömu­leiðis hirðin á Amali­en­borg, lög­reglan, ráðu­neytin og kaup­höllin í Kaup­manna­höfn. Nokkur sænsk dag­blöð gerð­ust sömu­leiðis áskrif­endur. 

Í byrjun var Ritzau með aðsetur við Ama­ger­torv (á Strikinu) en það hús­næði varð brátt of lítið og þá flutti fyr­ir­tækið í rýmra hús­næði við Højbroplads. 1874 þurfti enn að stækka og þá flutti Ritzau í hús við Købma­gergade. Þar bjó Erik með fjöl­skyldu sinni en hann hafði sama ár og  Ritzau var stofnað gengið í hjóna­band með Anna Elise Jensen. Þau eign­uð­ust 8 börn en Anna lést árið 1878, 41 árs gömul. Erik gift­ist aftur, seinni eig­in­konan hét Anna Bolette Brennecke, þau eign­uð­ust 3 börn. Yngst barna Eriks var Lauritz, sem var 18 ára þegar faðir hans lést árið 1903. Fjöl­skyldan var sam­mála um að Lauritz tæki við fyr­ir­tæk­inu eftir að hann hefði aflað sér mennt­unar.  Hann sett­ist í for­stjóra­stól­inn árið 1916, eftir að hafa  meðal ann­ars stundað nám hjá Reuters frétta­stof­unni í London. Lauritz var for­stjóri Ritzau allt til árs­ins 1958.

Ritzau fylgdist vel með

Það var stundum haft á orði í dönskum blöðum á fyrstu árum Ritzau að Erik Ritzau væri með frétta­auga á hverjum fingri. Og ekki síður fylgd­ist hann náið með öllum tækninýj­ungum í fjar­skipta­málum. Og þar var vissu­lega margt að ger­ast á ofan­verðri 19. öld. Árið 1883 fær Ritzau í fyrsta sinn tal­síma, það var bein lína við danska þingið, Fol­ket­inget. Tal­sím­inn var á þessum árum að ryðja sér æ meira til rúms og Ritzau var vel með á nót­unum. Land­sím­inn  kom til Jótlands árið 1895 og Ritzau opn­aði fljót­lega úti­búi í Árósum, Álaborg og Kolding. Einstaka rit­stjórar ótt­uð­ust þó að sam­töl í síma gætu frekar en skeyti valdið mis­skiln­ingi. Þessir efa­semd­ar­menn sáu þó fljót­lega að sím­inn hafði marga kosti umfram skeyta­send­ingar, ekki síst hvað fréttir bár­ust fljótt og hratt. Síma­teng­ing við Svíþjóð kom árið 1893 og tveimur árum síðar byrja til­raunir með síma­sam­band milli Dan­merkur og Þýska­lands. Þetta jók mögu­leika Ritzau til frétta­miðl­unar til mik­illa muna. Í þessu sam­bandi má nefna að til­kynn­ing um úrslit í for­seta­kjöri í Frakk­landi barst í síma frá Berlín. Frétta­skeyti frá París varð­andi þessi sömu úrslit barst ekki fyrr en klukku­stund síðar.

Reuters sagði nei en vildi kaupa

ReutersPaul Julius Reuter vildi kaupa Ritzau.

Á fyrstu árum Ritzau lagði Erik for­stjóri mikla áherslu á að ná samn­ingum við erlendar frétta­stofur um kaup á efni. Þær til­raunir gengu mis­vel, til dæmis vildi Reuters frétta­stofan í London ekki semja um neitt slíkt. Vildi hins­vegar kaupa Ritzau en þrátt fyrir langar við­ræður milli þeirra Juliusar Reuter og Eriks Ritzau varð ekki af kaup­unum. Julius Reuter vildi ekki gef­ast upp og sneri sér til rit­stjóra dönsku blað­anna og greindi frá til­boði sínu til Ritzau. Rit­stjór­arnir létu sér fátt um finn­ast. Árið 1868 sótti Ritzau um leyfi til að setja upp útibú í Rúss­landi en fékk afsvar. Erik sá að besta leiðin til að efla þjón­ust­una væri að treysta á eigin mann­skap frekar en að kaupa þjón­ustu af öðrum. Útibúum var komið á fót í París, London og víðar. Jafn­framt voru ráðnir frétta­rit­arar, meðal ann­ars á Jótlandi til að auka þjón­ust­una við lands­byggð­ina, eins og sagði í til­kynn­ingu.

Fráfall stofnandans en upphaf liðinnar aldar uppgangsár

Erik Ritzau hafði með dugn­aði og útsjón­ar­semi byggt upp frétta­stofu sem, þrátt fyrir gagn­rýni eins og gengur, naut mik­ils álits og við­skipta­vin­unum fjölg­aði jafnt og þétt. En um jóla­leytið 1903 var klippt á lífs­þráð­inn, Erik veikt­ist af tauga­veiki í Þýska­landi, þar sem hann var í vinnu­ferð, og lést á Þor­láks­messu. Hann hafði verið for­stjóri í 37 ár. Tveir tengda­synir Eriks tóku við stjórn­inni þangað til Lauritz, yngsti sonur Eriks varð for­stjóri tók við 1916 og sat til 1958.

Stundum hefur verið talað um fyrstu tvo ára­tugi lið­innar aldar sem gullöld Ritzau. Á fyrstu níu árum ald­ar­innar tvö­fald­að­ist veltan, árið 1906 eru öll dag­blöð og fjöl­mörg tíma­rit í Danmörku, fyrir utan ein­stak­linga, áskrif­endur fyr­ir­tæk­is­ins. Að næt­ur­lagi snemma í ágúst 1914 berst Ritzau hrað­skeyti (iltelgram) þar sem greint var frá að England hefði lýst yfir stríði við Þýska­land. Innihald þessa skeytis fór sem eldur í sinu um danskt þjóð­fé­lag á nokkrum mín­útum. Við tóku ann­rík­isár hjá Ritzau sem í upp­hafi fyrri heims­styrj­aldar hafði 54 starfs­menn á launa­skrá.

Stiklað á stóru

Í stuttum pistli er engin leið að fjalla um allt sem gerst hefur á vett­vangi Ritzau á þeim 158 árum sem liðin eru frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins. Einungis staldrað við það helsta.

Eftir að fyrri heim­styrj­öld­inni lauk var minna að frétta, ef svo mætti segja, og það hafði áhrif á rekstur Ritzau. Á milli­stríðs­ár­unum kom nokkrum sinnum til tals að Ritzau myndi auka sam­vinnu, eða jafn­vel sam­ein­ast öðrum frétta­stofum. Aldrei varð neitt úr slíkum hug­myndum. Fjar­skipta­tækn­inni fleygði ört fram og á fjórða ára­tugnum kom fjar­rit­inn á mark­að­inn. Fjarriti er þýð­ing á danska orð­inu fjernskriver, þessi orð notar eng­inn í dag (frekar en kannski tækið sjálft) en orðið telex þekkja flestir og iðu­lega var fax látið nægja.

Heims­styrj­ald­ar­árin síð­ari voru mikil fréttaár, en eftir her­nám Þjóð­verja á Danmörku tóku við ár rit­skoð­unar. Þjóð­verjar bönn­uðu Ritzau að nota frétta­skeyti frá Reuters og fleiri erlendum frétta­stofum. Í við­tölum við yfir­menn Ritzau eftir að stríð­inu lauk kom fram að frétta­flutn­ingur hafi verið „línu­dans“. 

Ritzau verður sameignarfélag

Fljót­lega eftir stríðslokin hófust umræður milli Ritzau og sam­taka danskra blaða­út­gef­enda um stofnun sam­eign­ar­fé­lags. Þeim við­ræðum lauk með því að 1. jan­úar 1947 varð til sam­eign­ar­fé­lagið Ritzaus Bureau I/S.  Yfir­stjórn Berl­ingske Tidende (heitir nú Berl­ingske) og Politi­ken höfðu efa­semdir um stofnun félags­ins en gengu ári seinna til liðs við félagið. Ákveðið var að hið nýja félag héldi Ritzau nafn­inu sem var þekkt víða um lönd. Eftir þessa breyt­ingu í árs­byrjun 1947 var Ritzau sem sé ekki lengur í eigu fjöl­skyldu stofn­and­ans en Lauritz Ritzau var áfram fram­kvæmda­stjóri til  1. júní 1958 en þá voru 50 ár síðan hann hóf störf hjá frétta­stof­unni. Lauritz Ritzau lést árið 1967.

158 áraFjöl­miðlun hefur tekið miklum breyt­ingum á þeim rúmu 150 árum sem liðin eru frá stofnun Ritzau.

Ekki þarf að fjöl­yrða um þær miklu breyt­ingar sem hafa orðið í  fjöl­miðla­heim­inum á allra síð­ustu árum. Öll frétta­öflun og frétta­miðlun hefur tekið gagn­gerum breyt­ingum, þar sem inter­netið, vef­ur­inn er í aðal­hlut­verki. Ótal dag­blöð hafa lagt upp laupana, önnur leggja sífellt meiri áherslu á vef­inn. Ritzau hefur alltaf haldið sínu striki og auk hefð­bund­inna frétta er lögð áhersla á fréttir af fjár­mála­mark­aðnum og sömu­leiðis íþrótta­f­réttir svo eitt­hvað sé nefnt.

Að lokum skal nefnt að árið 2012 birti Ritzau frétt, sem ein­hverjir hefðu kannski talið að væri apr­ílgabb, dag­ur­inn var hins­vegar 29. mars. Í þess­ari stuttu frétt var greint frá því að næt­ur­vaktin á Ritzau yrði fram­vegis í Sydney í Ástralíu. Þótt ýmsir hafi kannski hrist höf­uðið yfir þess­ari ákvörðun þögn­uðu þær gagn­rýn­is­raddir fljót­lega. Ekki leið á löngu þangað til margar aðrar frétta­stofur fet­uðu í fót­spor Ritzau og opn­uðu útibú í Sydney.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár